Fréttablaðið - 04.07.2007, Side 1
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
Stoðirnar styrktar
félagið Stoðir lagði fram yfir
tökutilboð í danska fasteignafé
lagið Keops og bauð hluthöfum
annaðhvort reiðufé eða hlutabréf
í Stoðum í skiptum. Tveir stærstu
hluthafar Keops, Fons, sem fer
með 31,8 prósenta hlut, og Baug-
ur Group, sem á um 20,3 prósent,
tóku tilboði Stoða gegn greiðslu
hlutafjár.
Tapa á tískunni | Breska tísku-
vörukeðjan Mosaic Fashions tap-
aði rúmum 415 milljónum króna
á fyrsta ársfjórðungi, sem lauk
í enda apríl. Á sama tíma í fyrra
nam hagnaðurinn rúmum 100
milljónum króna.
Seldu í Actavis | Róbert Wess-
man, forstjóri Actavis, og Sindri
Sindrason stjórnarformaður til-
kynntu að þeir ætli að selja allt
sitt í félaginu til Novators, sem
hefur gert yfirtökutilboð í Acta-
vis.
Sameinaður stöndum vér |
Stjórnir sparisjóðanna Byrs og
SPK skrifuðu undir samrunaáætl-
un sem miðast við 1. janúar 2007.
Sameinaður sparisjóður er metinn
á um 45 milljarða króna miðað við
síðasta viðskiptagengi í Byr.
Baugur selur | Árdegi, félag í
eigu Sverris Berg Steinarssonar,
keypti Baug Group út úr dönsku
raftækjakeðjunni Merlin. Eftir
kaupin er Árdegi eigandi 65 pró-
senta hlutar í félaginu og Mil-
estone 35 prósenta.
Baugur kaupir
hyggst gera yfirtökutilboð í fast
eignafélagið Immo-Croissance.
Félagið er skráð í kauphöllina í
Lúxemborg og Euronext-kaup
höllina í Brussel.
Hallinn réttist
lönd voru óhagstæð um 10,7 millj
arða króna í maí. Hallinn var tæp
lega tveimur milljörðum minni en
á sama tímabili í fyrra.
Eik Bank Group
Íslandsvinir mæta
í Kauphöllina
Olía hefur fundist í tilraunabor-
unum Antrim Energy í Norður-
sjó, en þar á Geysir Petroleum
ehf. tíu prósenta hlut. Stærsti
hluthafi Geysis Petroleum er svo
aftur Straumborg ehf., félag í
eigu fjölskyldu Jóns Helga Guð-
mundssonar, sem fer með rétt
tæplega fimmtungshlut.
Olían fannst á 3.340 metra
dýpi að því er fram kemur í
tilkynningu. Borunin er hluti
af tilraunaborunum sem ætlað
er að ljúki innan hálfs mánað-
ar og verður þá upplýst frekar
um magn olíunnar sem fundist
hefur, að sögn Gunnlaugs Jóns-
sonar hjá GJ Fjármálaráðgjöf/
Norvest, en hann tekur innan
tíðar sæti í stjórn Geysis Pet-
roleum. Unnið er að sameiningu
Geysis Petroleum við Sagex Pet-
roleum og InOil. Að sameiningu
lokinni er stefnt að skráningu
sameinaðs félags í kauphöllina
í Ósló.
„Þetta er nokkuð merkileg-
ur olíufundur. Í fyrra fundum
við í samstarfi við aðra olíu og
erum nú að bora á nokkuð stærra
svæði og vonumst til þess að
finna meiri olíu en í fyrra,“ segir
Gunnlaugur, en nú er verið að
mæla olíuflæðið í nýju holunni.
Hann segir fundinn einnig skipta
máli fyrir félagið NorEnergy sem
Straumborg á líka stærstan hlut
í. „Bæði félögin eru þátttakend-
ur í þessum verkefnum með um
tíu prósent hvort á þessu svæði.
Geysir er íslenskt félag stjórnað
af Norðmönnum, en NorEnergy
norskt félag stjórnað af Kanada-
mönnum.“
Gunnlaugur segir starfsemina
ganga vel í báðum félögum og að
í kjölfar olíufundar og mögulegr-
ar vinnslu hafi á þessu ári, síðan
Straumborg kom að málum,
orðið gríðarleg verðmætaaukn-
ing í félögunum. - óká
Geysir tilkynnir um olíufund
Straumborg á meirihluta í tveimur félögum sem saman eiga um fimmtung
í olíuleitarverkefni í Norðursjó. Verið er að mæla magn nýfundinnar olíu.
Marel hefur enn aukið hlut sinn
í hollenska iðnfyrirtækinu Stork
samkvæmt heimildum Markað-
arins og nálgast nú 20 prósenta
hlut í gegn um félagið LME sem
einnig er í eigu Landsbankans og
Eyris.
Í hollenskum miðlum er frá
því greint að Marel vinni að yf-
irtökutilboði í Stork í félagi við
einn eða fleiri fjárfestingasjóði.
Marel hefur sóst eftir því að fá að
kaupa Stork Food Systems, mat-
vælavinnsluvélahluta Stork.
Gengi bréfa Stork er nú ná-
lægt 49 evrum, en fyrir liggur yf-
irtökutilboð frá breska fjárfest-
ingasjóðnum Candover upp á 47
evrur á hlut. Kaup Candover eru
því háð að 80 prósent hluthafa
samþykki kaupin og eignast því
varla félagið, jafnvel þótt kraf-
an lækkaði í 75 prósent líkt og
heimilt er samkvæmt hollensk-
um lögum, því Marel er á móti til-
boðinu, sem og Delta Lloyd með
um 5,2 prósenta hlut og að því
er heimildir Markaðarins herma
bandarískur fjárfestingasjóður
sem á um 4,5 prósent. - óká
Marel eykur
við sig í Stork
www.trackwell .com
Tíma- og verkskráning
fyrir starfsmenn og tæki
FORÐASTÝRING
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Ekki eru taldar líkur á að möguleg ákvörðun um
niðurskurð aflaheimilda eða 80 prósenta þak á há-
markslán Íbúðalánasjóðs komi til með að hafa
áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands sem
kynnt verður á morgun, fimmtudag.
Sérfræðingar telja þó sumir hverjir að hjöðnun-
aráhrif í hagkerfinu af þessu tvennu gætu orðið
til þess að stýrivextir lækki hraðar en ella þegar
tekin verður ákvörðun um að hefja lækkunarferli
þeirra. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greining-
ardeildar Kaupþings, segir þó ljóst Seðlabankinn
muni ekki lækka vexti fyrr en hann sjái enn skýr-
ari merki um samdrátt í hagkerfinu. „En við höfum
spáð vaxtalækkun í nóvember og teljum það enn
líklegt,“ segir hann.
Verði farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar
um niðurskurð aflaheimilda segir Ásgeir að megi
meta það sem eitt prósent af hagvexti á næsta ári.
Lúðvík Elíasson, sérfræðingur hjá greiningar-
deild Landsbanka Íslands, segir að komi til mikils
samdráttar í aflaheimildum megi einnig gera ráð
fyrir mótvægisaðgerðir af hálfu ríkisins til að bæta
stöðu þeirra sveitarfélaga sem mest finni fyrir nið-
urskurðinum. Þar með myndi fyrsta kastið draga
úr þensluhamlandi áhrifum niðurskurðarins og því
ólíklegt að Seðlabankinn bregðist hratt við fregn-
unum, heldur bíði og sjái hver áhrifin til lengri
tíma verði. Aukinheldur segir hann Seðlabankann
ekki hafa í áætlunum sínum gert ráð fyrir þeirri
endurlífgun sem verið hefur á fasteignamarkaði
undanfarna mánuði og myndi sú þensla því jafna
út áhrif af mögulegu þaki á útlán Íbúðalánasjóðs.
„Menn bregðast ekki mjög snöggt við breytingum
í Seðlabankanum, enda ekki ástæða til vegna þess
að áhrifanna gætir ekki fyrr en eftir eitt til tvö ár,“
segir Lúðvík.
Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Greiningu
Glitnis, gerir sömuleiðis ekki ráð fyrir að Seðla-
bankinn breyti út af fyrri áætlunum á fimmtudag,
þótt sjálfsagt setji hann inn í efnahagsspá sína frá-
viksspá með skerðingu á aflaheimildum og fjalli
um möguleg áhrif hennar.
Greiningardeildir bankanna gera allar ráð fyrir
ákvörðun um óbreytta stýrivexti á morgun.
orðið skarpari
Niðurskurður í aflaheimildum og fyrirséðar breytingar á
hámarkslánum Íbúðalánasjóðs stuðla að hjöðnun í hagkerf-
inu og gætu boðað hraðari lækkun stýrivaxta Seðlabankans.
Brynhildur Melot er átta ára gamall nemandi í
Vesturbæjarskóla. Hún er í sumarfríi núna en
ætlar síður en svo að sitja aðgerð lmeðal
Sumarnámskeiðin í KramhúsinBrynhildur
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bílaKomdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!Alltaf heitt á könnunni!
Smábátasjómenn upp-
lifa ekki hættuástand
26
79
/
IG
07
Þú færð
IG-veiðivörur
á næstu
Þjónustustöð
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
„Það er mitt mat að það sé heppi-
legt að afnema einkarétt á póstdreifingu sem
allra fyrst,“ segir Ingimundur Sigurpálsson,
forstjóri Íslandspósts. Samgöngunefnd Evr-
ópuþingsins hefur ákveðið að gefa Evrópu-
löndum tíma til 2011, í stað 2009, til þess að
afnema einkarétt á póstdreifingu pósts undir
50 grömmum. Tilskipun Evrópuþingsins
hefur verið felld inn í íslensk lög, fyrst árið
1998, síðan 2003 og 2005, og því hafa allar
breytingar á þeim áhrif hér á landi.
„Ég hef ekki sett mig inn í þessi mál en
þetta verður til umræðu á fundi samgöngu-
ráðherra Norðurlandanna í haust og þá skýr-
ist málið,“ segir Kristján Möller samgöngu-
ráðherra um ákvörðun Evrópuþingsins.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og
fjarskiptastofnunar, segist líta svo á að nú
hafi íslensk stjórnvöld frest fram að 2011, í
stað 2009, til að afnema einkarétt á póstdreif-
ingu en Alþingi og ráðherra hafi það á valdi
sínu hvenær einkarétturinn verður afnum-
inn. „Það liggur fyrir að þetta hefur verið
gert [einkaréttur á póstdreifingu afnuminn] í
ýmsum Evrópuríkjum þannig að ég get ekki
séð að Evróputilskipanir banni slíkt. Hvort
það verður gert er á valdi ráðherra og Alþing-
is og um það tjái ég mig ekki.“
Einkarétturinn, sem Evrópuþingið hefur
gefið rýmri frest til þess að afnema, er á dreif-
ingu á pósti sem er undir 50 grömmum. Fyrst
voru einkaréttarmörkin ákveðin fyrir bréf
undir 350 grömmum og þau voru síðan lækkuð
í 100 grömm og 50 grömm frá ársbyrjun 2006.
Afnám einkaréttar á póstdreifingu hefur
verið deiluefni meðal Evrópusambandslanda í
nokkurn tíma. Helst hefur verið deilt um
hversu langan tíma lönd sambandsins eiga að
hafa til þess að afnema einkaréttinn. Sam-
göngunefnd Evrópusambandsins ákvað á
fundi sínum 18. júní síðastliðinn að fresta, eins
og fyrr segir, afnámi einkaréttarins en þó er
að finna undanþáguákvæði þar sem löndum
gefst tími til þess að fresta afnámi einkarétt-
arins í tvö ár til viðbótar.
Vill afnema einkaréttinn
Forstjóri Íslandspósts segir fyrirtækið tilbúið fyrir afnám einkaréttar á póstdreifingu. Málið verður rætt til
hlítar á fundi samgönguráðherra Norðurlandanna í haust. Hef ekki kynnt mér málið, segir Kristján Möller.
Fór á sumarnám-
skeið í Kramhúsinu
sjómannslífMIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Danfoss hf
Sagt hefur verið
um kvótakerfið að það geri nýlið-
un í sjávarútvegi erfiða. Það á þó
ekki við um Hjört A. Guðmunds-
son. Hann er aðeins nítján ára
gamall en gerir út trilluna Gísla
KÓ 10 fyrir föður sinn. „Nei, ég
rekst svo sem ekki á marga jafn-
aldra mína í þessu,“ segir Hjörtur
og hlær.
Yfirleitt róa þeir frá Kópavogi
en Hjörtur hefur verið í Bolungar-
vík undanfarna daga. „Það fiskað-
ist ekkert á Faxaflóa, þannig að ég
sigldi bara hingað til Bolungarvík-
ur og hef veitt vel. Held ég sé kom-
inn upp í fimmtán til sextán tonn á
tíu dögum,“ segir hann. Hjörtur
var við löndun á höfninni í Bolung-
arvík þegar blaðamann bar að
garði. „Þetta var reyndar ekkert
sérstakur túr, líklega eitt og hálft
tonn, en ég var líka svo stutt úti.
Mér heyrist líka á þeim í talstöð-
inni að það sé komin bræla.“
Hjörtur er nýstúdent frá
Menntaskólanum í Kópavogi og
verður tvítugur í desember. Hann
er því mögulega yngsti trillukarl
landsins og er vitaskuld með
pungapróf, eins og lög gera ráð
fyrir. Hann segist hafa fengið gott
verð fyrir aflann, en bendir á að
það fari þó minnst í hans vasa.
„Við leigjum kvóta og það fer auð-
vitað mest í að borga það.“
Sjómennskan hefur fram að
þessu verið sumarstarf hjá Hirti
og hann játar að það sé vissulega
ágætt upp úr þessu að hafa, sér-
staklega samanborið við flesta
jafnaldra hans.
Nítján ára trilluskipstjóri
„Þyrlur eru frábærar til
brúks á Íslandi og ég er viss um
að við eigum eftir að sjá meira af
því að menn
kaupi sér slík
farartæki,“ segir
athafnamaðurinn
Ólafur Ólafsson í
Samskipum.
Athygli hefur
vakið að Ólafur
flýgur á þyrlu til
og frá jörð sinni
á Snæfellsnesi.
Hann segist hafa
greitt um 150 milljónir fyrir
gripinn sem er af gerðinni Euroc-
opter AS 350 B3.
Ólafur hefur haft einkaflug-
mannspróf lengi en bætti við sig
þyrluprófi nýverið og ákvað í
framhaldinu að kaupa sér þyrlu.
„Flugkennarinn flaug henni hing-
að til lands fyrir mig. Sjálfur hef
ég flogið henni til landa í kring-
um Bretland og svo hérna innan-
lands.“
Nágrannar Ólafs eru ekki
sáttir við þyrluflug hans. Þau
segja það fæla skepnur og að
auki hafi ekki heyrt mannsins
mál í fermingarveislu hjá þeim
um liðna helgi.
Flýgur á 150
milljóna þyrlu