Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 8
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
HREINIR OG
FÍNIR BÍLAR
Xtreme BÍLASÁPA
Framúrskarandi sápa fyrir
bílinn.
GLERÚÐI
Frábær glerú›i sem má
einnig nota á mælabor›.
Tilbo›i› gildir til 15. ágúst e›a
á me›an birg›ir endast.
20% afsláttur
af toppgræjum í bílaþ
vottinn
FELGUBURSTI
Sérstaklega hentugur til a› fjarlægja
erfi›u óhreinindin af álfelgunum.
MÆLABORÐSBURSTI
Mjúkur bursti til a› fjarlægja ryk og óhreinindi
af mælabor›um, tökkum, skífum og mi›stö›var-
opum. fiennan fjölhæfa bursta má einnig nota
á skrifstofunni e›a á heimilinu til fless a›
hreinsa lyklabor› og a›ra fleti sem erfitt er
a› fjarlægja ryk af.
BÍLAÞVARA
Til a› skafa bleytuna af bílnum
eftir flvott. Mjúkt gúmmíi› fer vel
me› málningu og glugga. fivöruna
má festa á Vikan skaft sem er
fáanlegt í ‡msum stær›um.
BÍLAKÚSTUR
Vikan bílakústur. Sveig› lögun
tryggir stö›uga snertingu vi› hvern
flöt á bílnum. Kústurinn er me› gúmmíbrún
og öflugu og endurbættu vatnsflæ›i.
Kústinn má festa á Vikan skaft sem er
fáanlegt í ‡msum stær›um.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
28
42
6
Guðlaug-
ur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segir
lagabreytingar í tengsl-
um við líffæragjafir
verða teknar til athug-
unar.
Í Fréttablaðinu í gær
kom fram að talið er að
þörf fyrir líffæragjafir
eigi eftir að aukast á
næstunni. Svokölluð líf-
færakort sem þeir sem
myndu vilja að líffæri
sín væru gefin gera tak-
markað gagn. Þau hafa ekkert
lagalegt gildi og ekki er haldið
utan um skráninguna.
„Þetta er eitt af því
sem er til skoðunar. Ég
fagna því að þetta sé
tekið til umfjöllunar því
líffæragjöf, og álitamál
í kringum hana, er ekki
pólitískt álitamál heldur
siðferðislegt mál sem
þarf að ræða. Það skipt-
ir máli að fólk líti inn á
við og kynni sér þessi
mál,“ segir Guðlaugur.
Runólfur Pálsson,
yfirlæknir nýrnalækn-
inga Landspítalans,
segir mismunandi löggjafir um
líffæragjafir í löndum. Víða sé
svokallað ætlað samþykki við
lýði, en þá er gengið út frá því að
fólk vilji gefa líffæri sín nema
annað hafi komið fram. Hér á
landi er gengið út frá ætlaðri
neitun. Runólfur kveðst helst
kjósa að litið yrði til lagasetning-
ar á Spáni þar sem ætlað sam-
þykki er í tengslum við líffæra-
gjafir en ávallt leitað til ættingja
til frekari staðfestingar. Þar hafi
almenningur einnig verið frædd-
ur vel um álitamál í tengslum
við líffæragjafir.
Guðlaugur segist enn ekki
hafa markað sér stefnu í þessu
máli en þau verði skoðuð vand-
lega.
Ný björgunarþyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-GNÁ, fór í
sitt fyrsta björgunarflug í gær.
Hífði áhöfnin mann úr báti á Við-
eyjarsundi.
Laust fyrir hádegi barst kall
frá lúxussnekkjunni Eldingu II,
sem gerð er út frá Ægisgarði í
Reykjavíkurhöfn. Pústbarki
hafði farið í sundur með þeim
afleiðingum að báturinn fylltist
af reyk. Ekki er vitað af hverju
pústbarkinn fór í sundur.
Einn maður var um borð, en
hann var að flytja bátinn yfir í
Sundahöfn í viðhald.
RÚN dró bátinn til hafnar, en
dæla þurfti úr honum sjó, sem
hóf að streyma inn þegar púst-
barkinn fór í sundur.
Maðurinn var fluttur í skýli
Landhelgisgæslunnar. Hann sak-
aði ekki. Að sögn Vaktstöðvar
siglinga gekk björgunin eins vel
og hægt var.
Eldur kom upp í hvalaskoðun-
arskipinu Hafsúlunni mánudag-
inn 25. júní síðastliðinn. Bátarnir
eru í eigu sama fyrirtækis. Eld-
urinn hafði verið slökktur þegar
báturinn kom til hafnar og engan
sakaði.
Að sögn Vignis Sigursveinsson-
ar rekstrarstjóra er nýbúið að
uppfæra öryggisbúnað í snekkj-
unni.
Elding II er helst notuð í einka-
ferðir, meðal annars sjóstang-
veiði, segir Vignir. Báturinn er
það sem kallað er lúxussnekkja.
„Það er hins vegar engin lúxus-
lykt í honum núna,“ segir hann.
„Það verður verk að þrífa.“
Fyrsta björgunarflug
TF-GNÁ tókst mjög vel
Ný björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, hífði mann úr lúxussnekkj-
unni Eldingu II á Viðeyjarsundi í gær. Pústbarki hafði farið í sundur og bátur-
inn fyllst af reyk. Manninn sakaði ekki en snekkjuna þarf að þrífa.