Fréttablaðið - 04.07.2007, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 04.07.2007, Qupperneq 13
Þegar F-14 Tom- cat-orrustuþotan var fyrst tekin í notkun snemma á áttunda ára- tugnum kostaði stykkið 38 millj- ónir dollara og var tákn um hern- aðarlega yfirburði Bandaríkjanna í lofti. Bandaríkjaher lagði síðustu slíku vélunum sem hann hafði í þjónustu sinni síðastliðið haust. Og nú er verið að mola þær í brotajárn til að hindra að vara- hlutir lendi í röngum höndum. Eftir að það fregnaðist í byrjun þessa árs að varahlutir í F-14- þotur bærust frá Bandaríkjunum í hendur Írana og fleiri þjóða sem bandarísk yfirvöld hafa lagt bann við hergagnasölu til, brá banda- ríska varnarmálaráðuneytið á það ráð að banna alla sölu á slík- um varahlutum. Til að tryggja það bann enn betur er nú verið að klippa vél- arnar sem eftir eru, í flugvéla- kirkjugarði Bandaríkjahers í Tucson í Arizona, niður í smá- bita. Íranar keyptu áttatíu F-14- þotur á áttunda áratugnum, þegar landið var enn bandamaður Bandaríkjanna. Klerkastjórnin, sem tók við völdum í Teheran árið 1979, reynir enn að halda flota F-14-þotna í flughæfu ástandi. Í dag eru 50 ár liðin frá því að Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri í Kópavogi, fyrst kvenna á Íslandi. Af því tilefni verður opnuð sýning um störf Huldu í Bókasafni Kópavogs. Þar verða sýndir munir í eigu afkomenda hennar auk opinberra skjala. Það eru afkomendur Huldu og jafnréttisnefnd Kópavogs sem standa fyrir sýningunni. Dagskrá verður á bókasafninu í Kópavogi klukkan fimm í dag vegna opnunarinnar en að henni lokinni fer fram afhending árlegrar jafnréttisviðurkenningar nefndarinnar. Viðurkenningin er nú veitt í sjötta sinn. Minnast merks jafnréttisáfanga Botnráslokur Kára- hnjúkavirkjunar voru opnaðar í gær til þess að hægja á fylling- arhraða Hálslóns. Lokurnar verða opnar þangað til á föstu- dagskvöld. Á heimasíðu Kárahnjúkavirkj- unar segir að í fyrstu verði litlum spýjum hleypt í gegnum stífluna en seinni partinn í dag verða lokurnar opnaðar til fulls. Þegar líður á júlímánuð verða botnlokurnar opnaðar á nýjan leik og verða þá opnar meira og minna út ágústmánuð og jafnvel fram í september. Meðan botnlokurnar eru opnar eykst rennsli í farvegi Jökulsár á Dal um 135 til 310 rúmmetra á sekúndu. Rennsli eykst í Jöklu á ný Sigurður Eyþórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda. Jafnframt því mun Sigurður gegna fram- kvæmdastjóra- starfi hjá Markaðs- ráði kindakjöts. Sigurður hóf störf hjá Fram- sóknarflokknum árið 1994 og varð framkvæmdastjóri flokksins 2003. Hann lét af því starfi um áramót. Sigurður, sem er fæddur og uppalinn í Kaldaðarnesi í Flóa, var formaður nefndar forsætis- ráðherra sem fjallaði um fjármál stjórnmálaflokka. Sigurður til sauðfjárbænda í góðu tjaldi SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Tjaldaland Útilífs er við hliðina á TBR-höllinni The North Face Tadpole 2ja manna Göngutjald. Verð 32.990 kr. Troðfull flöt af uppsettum tjöldum! SUÐURLAN DSBRAUT SUÐURLAN DSBRAUT GNOÐAR VOGUR GLÆSIBÆ R T B R 1 T B R 2 Á L F H E IM A R G R E N S Á R S V E G U R Tjaldaland Taranto Plus 6 manna Fjölskyldu-braggatjald með tveimur svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk milli svefntjaldanna. Opnast á tvo vegu. Verð 29.990 kr. Como 4ra og 6 manna Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum. Fortjald er á milli svefntjaldanna. Tveir inngangar. Verð 14.990/19.990 kr. Andros 6 manna Fjölskyldu-braggatjald með tveimur svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk. Öflugar álsúlur. Verð 42.990 kr. Lindos 6 manna og 8 manna Fjölskyldu-braggatjald með mikilli lofthæð. Rúmgott fortjald. Öflugar álsúlur. Verð 44.990/49.990 kr. The North Face Rock 2ja manna Göngu-kúlutjald. Verð 22.990 kr. Njóttu sumarsins Nevada 3ja manna 3ja og 4ja manna sígilt kúlutjald. Verð 6.990kr. Kira 3ja og 4ra manna Kúlutjald með fortjaldi. Verð 8.990/10.990 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 37 74 6 05 /0 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.