Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 56
Þegar Roni Horn kom
Vatnasafni sínu á fót í
Stykkishólmi var stór hluti
af áætlunum hennar og
breska listafyrirtækisins
ArtAngel að þar yrði sköp-
uð aðstaða fyrir Hólmara og
aðkomumenn til samkomu-
halds. Annað kvöld rætist
það: Guðlaugur Kristinn
Óttarsson og Einar Melax
verða þar með tónleika.
Yfirskrift tónleikanna er útúr-
snúningur úr kunnum íslenskum
frasa: Vatn úr myllu Kölska kalla
þeir félagar tónleikahaldið sem
hefst annað kvöld kl. 20.30. Frum-
flutt verður nýtt tónverk eftir
Einar, Ópusar af Dense Time-
safninu sem Guðlaugur sendi frá
sér í fyrra auk verka eldri meist-
ara. Gripið er í ýmis hljóðfæri við
flutninginn: Rafgítar, tölvugít-
ar, forvera knéfiðlunnar, viola
da gamba auk slagverks af ýmsu
tagi.
Einar vann á sínum yngri árum
með ýmsum fjöllistamönnum:
hann var í Medúsu-hópnum úr
Breiðholtinu, hinum sérstaka ís-
lenska ungskáldahóp sem hóf upp
raust sína á árum pönksins og kom
með séríslenskan súrrealisma inn
í íslenskar bókmenntir. Þar voru
með Einari í för Sjón, Jóhamar og
Þór Eldon, síðar Sykurmoli. Einn-
ig starfaði hann í hljómsveitinni
Fan Houtens Kókó, sem leiddi
hann síðar beint inn í hljómsveit-
ina Kukl sem varð fyrsta útrásar-
sveit Íslendinga – með ófyrirséð-
um afleiðingum – svo sem Syk-
urmolunum og sólóferli Bjarkar.
Einar lauk BA-prófi í tónlistar-
kennslu 1989 frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík, og síðar fram-
haldnámi í tónsmíðum og tónvís-
indum frá sama skóla, og hefur
starfað síðan sem tónlistarkennari
og skólastjóri við ýmsa tónlistar-
skóla á Íslandi. Hann hefur verið
afkastamikið tónskáld, jafnt í nú-
tímatónlist, kvikmyndatónlist sem
og alþýðutónlist. Af kvikmynda-
tónlist má nefna „Dagsverk“ eftir
Kára Schram, heimildarmynd
um Jón úr Vör og „Draumadísir“
eftir Ásdísi Thoroddsen. Helstu
nútímatónverk Einars eru t.d.
„Sketches for Piano“, „String Tra-
vels“, „Grandmother“, „Introitus“,
„On the 128th Birthday of Eric
Satie“, og „Tribute to Spring and
Franz Liszt“. Af nýjustu viðfangs-
efnum Melaxar má helst nefna:
Óperu við texta Dags Sigurðar-
sonar skálds, söfnum náttúru-
legra umhverfishljóða og smíði
klassískra miðaldarhljóðfæra, en
á tónleikunum í Vatnasafninu mun
Einar leika á eitt af smíðaverk-
um sínum: viola da gamba, sem er
undanfari knéfiðlunnar.
Lagsbróðir hans, Guðlaugur
Kristinn Óttarsson, er þekktur
fyrir gítarleik sinn og tónsmíðar
en hann hefur leikið með ýmsum
hljómsveitum og tónlistarmönn-
um á löngum ferli sínum. Á ní-
unda áratugnum var hann einn af
þeim sem leiddu endursköpun ís-
lenskrar rokk- og popptónlistar
með hljómsveitunum Þey og Kukli
þar sem hann bæði lék á gítarinn
og samdi talsvert af efni sveit-
anna. Hann hefur líka komið víða
við í samstarfi við aðra hljómlist-
armenn og tónskáld, til að mynda
sömdu hann og Björk lög saman
og hann hefur leikið á flestöllum
hljómplötum Megasar frá því á
níunda áratugnum.
Sem tónskáld sameinar Guð-
laugur ýmsar stefnur og nálgan-
ir og erfitt er að skipa tónsmíðum
hans á bás. Þótt hann hafi átt þátt
í að skapa hið kraftmikla pönk ný-
bylgjuáranna eru verk hans sjálfs
flóknar smíðar og vandasamar,
jafnt í hljómskipan sem rythma,
enda Guðlaugur annálaður fyrir
djúpan skilning sinn á stærð- og
tónfræði. Það má kannski segja
að verkin standi einhvers staðar á
mótum djass og rokks, en með tón-
smíðaaðferðum sem oft eru meira
í ætt við Bach eða tuttugustu aldar
tónskáld eins og Sjostakovitsj eða
Pärt.
Fyrir rúmu ári síðan kom út
platan Dense Time þar sem Guð-
laugur flytur verk sín ásamt
ýmsum tónlistarmönnum. Á
þeirri plötu má finna gott yfir-
lit yfir verk hans síðustu tuttugu
árin og kynnast þeim tónheimi
og þeirri nálgun sem Guðlaug-
ur hefur þróað með sér. Tónleik-
arnir í Vatnasafninu byggja ann-
ars vegar á efninu sem þar er að
finna, en í upphafi tónleikanna
verður frumflutt nýtt verk; „On
the binary nature of triad struct-
ures in the subnuclear realm“ auk
verka tónskáldanna Vivaldi, Bach
og Charles Mingus.
Forvitnilegt verður gestum að
heyra þá félaga flytja verk sín
í sérkennilegum heimkynnum
Vatnasafnsins þegar kvöldsólin
skín beint inn um glugga safnsins
sérstaka í Hólminum.
Nýtt hefti af
myndasögu-
blaðinu Blek er
komið út en það
ber nú heitið
Neo-Blek. Þetta
er tólfta blaðið í
hinni merku út-
gáfu íslenskra
myndasögu-
smiða og hefur
útgáfa þess ekki
notið nægilegrar athygli. Blað-
ið er 60 bls. í svarthvítu. Meðal
efnis í blaðinu að þessu sinni er
viðtal við Bjarna Hinriksson. Les-
endur kynnast frekari ævintýrum
Jakobs. Yfir honum hvílir bölvun
sem tekur engan enda. Nýr sögu-
höfundur er kominn frá Austfjörð-
um til að kynna fyrir okkur nýju
hetjuna sína sem hjálpar fátækum
á götum stórborga.
Blaðið er til sölu í Nexus og hjá
Froskur-útgáfu.
Nýtt Blek
Það er komið að sýn-
ingarlokum á fyrstu
einkasýningu Davíðs
Arnar Halldórsson-
ar í Safninu á Lauga-
vegi. Hann er fæddur
í Reykjavík, býr þar og
starfar. Davíð Örn fæst
við málaralistina og
hefur gert síðan hann
útskrifaðist frá Mynd-
listardeild Listaháskóla
Íslands árið 2002.
Verk Davíðs Arnar
eru gjarnan byggð
á atburðum úr dag-
lega lífinu; persónu-
leg úrvinnsla á umhverfisskynjun
Davíðs, sem hann útfærir gjarnan
í formi myndmáls sem á sér grunn
í og vísar til teiknimynda, veggja-
listar (graffiti), pop-listar og til
vestrænnar listasögu. Bakgrunnur
Davíðs úr námi í grafík við Lista-
háskólann leynir sér ekki í verkum
hans; það er sá efnislegi grunnur
sem listamaðurinn byggir á.
Í Safni sýnir Davíð
Örn málverk, sem
máluð eru með bland-
aðri tækni á fundnar tré-
plötur. Davíð Örn málar
einnig á veggi Safns
og notar á þá litað lím-
band sem hluta af vegg-
verkum. Goddur segir
um verk hans: „Hann
myndbirtir úthverfa-
kúltúrinn. Hann kemur
úr úthverfi, er Breið-
holtsgötustrákur. Samt
er eins og maður gangi
inní expressjóníska mið-
evrópska landslagshefð,
allt frá secessjónistum til Hund-
ertwassers. Hann málar á fundna
hluti, borð, hurðir, palla, mottur,
dúka o.þ.h. Hann notar túss, sprey
og stensla, það flæðir út á vegg-
ina og myndar einskonar abstrakt
landslag hugvíkkandi sýrunnar.
Tónlistin er nálæg. Maður sér í
ecstasíuna, danskúltúrinn og reif-
ið.“
Lokahelgi Davíðs
Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu!
Miðasala á netinu!
www.leikhusid.is