Fréttablaðið - 06.07.2007, Síða 60
Íslenska nördaliðið, KF Nörd, undir
stjórn Loga Ólafssonar hyggur á
hefndir í kvöld þegar liðið mætir
sænska nördaliðinu á Kópavogsvelli
klukkan átta. Við sama tilefni verður
ný stúka vígð og því mikið um dýrð-
ir í Kópavogi enda stendur Lands-
mót UMFÍ sem hæst í bænum. Liðin
voru á opinni æfingu í gær og boð-
uðu til blaðamannafundar síðar um
daginn en þar kom fram að íslensku
strákunum sveið stórt tap A-lands-
liðsins fyrir Svíum nýverið í undan-
keppni Evrópumótsins.
Nördaleikur í dag
Allt virðist vera í hers
höndum á milli Kate Moss
og Petes Doherty en Pete
býr núna í hjólhýsi. Hann
fór fyrir rétt á þriðjudaginn
fyrir að hafa verið gripinn
með eiturlyf í fórum sínu
og fékk harða viðvörun frá
dómaranum en slapp við
fangelsisvist í bili. Kate er
búin að sparka Pete út og
hefur einnig skipt um lás á
húsinu sínu bara til þess að
hann komist ekki inn.
Eftir fréttir af framhjáhaldi Petes
flúði Kate til Parísar í von um að
slúbbertinn Pete elti hana. Í stað-
inn fór hann þó á rosalegt fyllerí og
hefur látið hafa eftir sér að það hafi
verið hann sem sleit sambandinu.
„Ég þarf mitt svigrúm,“ sagði hann.
Þau hafa víst rifist heiftarlega und-
anfarna daga og Doherty líkir sam-
búðinni við að búa með umsáturs-
manni og finnst eins og Moss kæfi sig. „Hann segir að það eina sem
Kate geri sé að öskra á sig í símanum
og skella á,“ sagði heimildarmaður.
Kate virðist vera alveg miður sín
yfir málinu og þurfti að hætta við
að koma fram á tískusýningu Johns
Galliano fyrir Dior. Stuttu eftir að
fyrirsætan fór til Parísar komu
flutningamenn heim til hennar og
báru allt dót Dohertys út. Þar mátti
sjá meðal annars málverk af Kate,
gítara og gamlar ferðatöskur.
Jefferson Hack, barnsfaðir Kate,
hefur svo miklar áhyggjur af ástandi
fyrirsætunnar að hann hefur komið
henni til aðstoðar með því að sjá um
dóttur þeirra Lilu Grace.
Þó svo að Pete ber sig vel er aug-
ljóst að honum líður alls ekki vel. Í
réttinum á þriðjudaginn var hann
spurður um heimilisfang og gaf þá
upp heimili Moss án þess að hugsa
en sagði svo: „Reyndar hefur það
breyst.“ Svo brotnaði hann saman
og skældi, rokkarinn mikli.
Kaupi fötin þar sem þau eru flott
“
„
„