Fréttablaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 6
 Kjöt- og brauðmeti er tæplega níutíu prósentum dýrara á Íslandi en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Sömu vörur kosta töluvert minna á Norður- löndunum. Aðeins Noregur kemst nálægt Íslandi, sem situr á toppn- um. Hagstofa Evrópusambandsins, EuroStat, lét gera vöruverðskönn- un í 37 ríkjum Evrópu, þar af 27 sem eru í Evrópusambandinu. Matvæli, áfengi og tóbak var dýr- ast á Íslandi af öllum löndunum sem könnuð voru, 61 prósenti yfir meðaltalinu. Noregur kom næst á eftir með 56 prósent. Ef eingöngu matvörur og óáfengir drykkir eru skoðuð er verðið hér samt hæst, 64 prósentum yfir meðaltali. Í einstökum matvöruflokkum er kjöt og brauðmeti áberandi dýrast á Íslandi af Norðurlöndunum. Aðeins mjólkurvörurnar eru ódýr- ari á Íslandi en í Noregi, sem er næst okkur í verðlagi. Haraldur Benediktsson, for- maður Bændasamtakanna, segir fjölgun austur-evrópskra þjóða í Evrópusambandinu lækka meðal- talið og þar með hækka hlutfalls- legt verð á Íslandi. Þó detti honum ekki í hug að neita því að kjöt sé dýrt hérlendis. „Þrátt fyrir að innflutningstoll- ar hafi lækkað um fjörutíu pró- sent að jafnaði og innflutnings- rýmið á kjöti hafi verið aukið er verðlag í landinu almennt mjög hátt,“ segir hann. „Ég er súr yfir því að við komum svona illa út en við höfum reynt að minnka þennan mun. Áhrifanna af þessum breytingum er ekki farið að gæta enn.“ Jóhannes Gunnarsson, formað- ur Neytendasamtakanna, segir þessar niðurstöður staðfesta enn eina ferðina að á Íslandi sé hæsta matvælaverð í heimi. Jafnvel þótt lækkun virðisaukaskatts síðan í mars á þessu ári sé tekin með í reikninginn sé verðið allt of hátt. „Þetta er ekki ásættanlegt fyrir íslenska neytendur, það er eitt- hvað meiri háttar að. Lega lands- ins og smæð þess skýrir ekki nema lítinn hluta af þessum mun milli Íslands og hinna Norðurlanda- þjóðanna.“ Hann hvetur ríkis- stjórnina til að taka á þessu máli, meðal annars með því að lækka innflutningstolla. Borgum tvöfalt meira fyrir kjöt og brauð Kjöt og brauð er níutíu prósentum dýrara hér en hjá Evrópusambandsþjóðum. Almennt eru matvæli dýrust hér, um og yfir sextíu prósentum fyrir ofan meðaltal. Súr yfir því að við komum svona illa út, segir formaður Bændasamtakanna. Danskir stjórnmála- menn hafa síðustu daga sýnt veru- legan áhuga á því að láta reisa brú yfir Kattegat milli Sjálands og Jót- lands. Litlu virðist muna að fram- kvæmdin hafi nú meirihlutafylgi á þingi, eftir því sem danskir fjöl- miðlar fullyrða. Hugmyndin er sú að nýja akleið- in liggi frá bænum Kalundborg á Sjálandi yfir brú til Sámseyjar og þaðan áfram yfir aðra brú til Jót- lands skammt fyrir sunnan Árósa. Þar með væri hægt að aka frá Kaupmannahöfn til Árósa á rétt um það bil einni klukkustund. Varla er liðið hálft ár síðan þessi hugmynd kom fyrst fram og hefur hún mælst vel fyrir í skoðana- könnunum, þótt margir finni henni flest til foráttu. Fyrir stuttu gerðu Danir og Þjóðverjar með sér samkomulag um að byggja brú milli landanna. Sú brú á að liggja frá Rødbyhavn á Lálandi yfir til þýsku eyjarinnar Fehmarn og verður hún 19 kíló- metra löng. Hugmyndin um brú yfir Kattegat kom fyrst fram nú seinni part vetrar og sögðu upphafsmenn hugmyndarinnar miklu nær að brúa Kattegat til að leysa innanlandsvanda í umferðinni, frekar en að ráðast í miklu dýrari brúargerð til Þýskalands, sem aldrei yrði jafnmikið notuð. Núna er stemningin hins vegar sú að brúargerðin yfir Kattegat verði næsta stóra brúarfram- kvæmdin í Danmörku, á eftir brúnni til Þýskalands. Danir vilja nú ólmir brúa Kattegat Hefur þú fylgst með fréttum af málefnum Hitaveitu Suðurnesja? Er rétt að fella öll barrtré innan þinghelgi Þingvalla?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.