Fréttablaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 54
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.gatur.net
LEYSTU
KROSSGÁTUNA!
ÞÚ GÆTIR UNNIÐEPIC MOVIE Á DVD!
Dregið úr réttum svörum n.k.
fimmtudag kl. 12. - 99 kr. sms-ið
Þú sendir SMS skeytið
JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið 1900!
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
Fyrirtæki tískuhönnuðarins Valentino, Valentino
Group, hefur keypt 45 prósenta hlut í tískumerk-
inu Proenza Schouler.
Það eru hinir ungu
hönnuðir Lazaro Hern-
andez og Jack McColl-
ough sem hanna undir
merkinu en fyrir þá er
hið nýja fyrirkomulag
ákveðið öryggisnet.
Fyrir Valentino er
þetta spurning um að
yngja upp ímyndina.
„Við erum mjög
ánægðir að hafa þetta
öryggisnet fyrir fyrir-
tækið okkar en það
höfum við aldrei áður
haft,“ sagði Hernand-
ez. „Fyrirtækið hefur
vaxið stórkostlega á
undanförnum árum og
til þess að það sé hægt
er nauðsynlegt að hafa
sterka fjárhagsstöðu.
Einnig er gott að hafa
félaga sem styður við
bakið á manni og sem
kann á bransann.“
Proenza Schouler er
vinsælt tískumerki
sem vann CFDA-verð-
launin í kvenmanns-
fatnaði ásamt hönnuð-
inum Oscar De La
Renta.
„Þessir tveir ungu
drengir eru ferskir og
skemmtilegir,“ sagði
Stefano Sassi, fram-
kvæmdastjóri
Valentino Fashion
Group. „Ég tel þá hafa
mikla möguleika á að
vaxa og um leið getum
við hjálpað þeim með
fjárhagslegu hliðina.
Þetta er hið fullkomna
samband.“
Valentino kaupir hlut
í Proenza Schouler
„Hann tímdi varla að depla augun-
um og gaf sig svo mjög á vald lita
í runnum hinumegin árinnar, að
hann veitti því naumast athygli að
götuslóðinn rétti skyndilega úr
sér og lagðist sniðhallt upp silfur-
hvíta mosavaxna bungu. Hestur-
inn spyrnti fastara í jörðina og
reisti eyrun, niðurinn í ánni þyngd-
ist og dýpkaði, eins og flötum boga
væri strokið yfir dimmtóna
strengjahljóðfæri, það blikaði á
hvíta sveipi í straumnum og and-
artaki síðar birtist lítill foss í
slakkanum undir bungunni, freyð-
andi og bjartur.
Ólafur Jóh. Sigurðsson:
Litbrigði jarðarinnar (1947)
„Fréttaþula á líbanskri sjónvarps-
stöð var rekin...“ segir í Blaðinu
16. júní, en síðar er svo sagt „hinn
fréttaþulurinn“. Þulur er auðvitað
þulur, hvort sem hann er kona eða
karl. Orðið þula er aftur á móti
ljóð í frjálsu formi, romsa, rolla,
runa. Íslensk orðabók segir þó að
orðið geti merkt kvenkyns kynni,
„einkum í sjónvarpi“. Og það var
víst þar sem þessi vitleysa byrj-
aði. Í málinu er tvenns konar kyn:
eðlilegt kyn (karl – kona) og mál-
fræðilegt kyn, og þar má í raun
einu gildi um kyn þess sem starfi
gegnir, þótt hefð sé fyrir kyn-
greiningu sums staðar. En oft end-
ist sú greining ekki. Konur eru t.d.
miklu fremur kennarar en
kennslukonur. Eigum við að fara
að segja „lækna“ um konu sem er
læknir?
„Egill Helgason hefur ollið
úlfúð...“ segir í Fréttablaðinu á
þjóðhátíðardaginn, og sést enn
einu sinni hve illa blaðamenn
kunna að beygja algengar sagnir.
So. beygist valda – olli – valdið
(hann hefur valdið). Ég hef áður
sagt í þessum pistlum að málfar
blaðamanna er ekki einkamál
þeirra. Til þeirra verður að gera
kröfu um einhverja lágmarks
kunnáttu í íslenskri málfræði og
málnotkun. Svona málglöp eru
óafsakanleg.
„Ströngust allra listgreina er ball-
ett“ – segir í fyrirsögn hér í Frétta-
blaðinu 19. júní, og er vanhugsun,
svo að ekki sé meira sagt. Lo.
strangur á hér við ballett, sem er
karlkyns. Ef blaðamaður hefði
sett frumlagið fremst, hefði hann
(blaðamaður er karlkynsorð, þótt
hann kunni að vera kona) trúlega
séð villuna. Ballett er strangastur
allra listgreina. Umhugsun er
þörfust allra gerninga.
sagði íþróttafréttamaður í Sjón-
varpinu 18. júní, og þetta heyrir
maður því miður oft. Hér er rugl-
að saman tveimur orðum. Annars
vegar er orðið endir (þf. endi):
endalok, niðurstaða, og hins vegar
orðið endi: spotti á snæri, og á
hann má binda hnút, en ekki á
endalokin. Því skal segja: binda
enda á e-ð.
Ónefndur maður sendir þessi
heilræði:
Ef þú getur einhvern tíma orðið
maður
skaltu varast venjublaður,
vertu aldrei sjálfumglaður
Vilji menn senda mér brag-
hendu eða góðfúslegar ábending-
ar: npn@vortex.is