Fréttablaðið - 14.07.2007, Qupperneq 8
Engar nýjar vísbend-
ingar hafa komið fram um það
hver myrti hermanninn Ashley
Turner á varnarliðssvæðinu í ágúst
2005, og er líklegt að morðingja
hennar verði aldrei refsað, að mati
ofursta í
bandaríska flug-
hernum sem
hefur yfir-
umsjón með
herréttar-
höldum.
Hin tvítuga
Ashley Turner
var myrt 14.
ágúst 2005 í
herstöðinni á Miðnesheiði. Hún
fannst látin í líkamsræktarsal sem
íbúar hússins hennar höfðu aðgang
að, og hafði verið barin og stungin.
Grunur féll strax á hermanninn
Calvin Eugene Hill, sem bjó í sama
íbúðarhúsnæði. Hann hafði stolið
fé að andvirði um 175 þúsunda
króna af reikningi Ashley Turner,
og átti hún að bera vitni gegn
honum nokkrum dögum síðar. Við
rannsókn málsins fannst blóðdropi
úr Ashley á skó hans og hann hafði
ekki fjarvistarsönnun.
Hill var ákærður fyrir morðið,
en sýknaður við herréttarhöld
nýverið. Hann játaði þó á sig ýmis
smávægilegri brot, til dæmis þjófn-
að. Hann var lækkaður í tign,
dæmdur til erfiðisvinnu í þrjá mán-
uði og til að greiða sekt.
„Niðurstaðan kom ákæruvaldinu
verulega á óvart,“ segir Scott
Martin, ofursti í bandaríska flug-
hernum, sem stýrir herréttarhöldum
flughersins. „Hill var sá eini sem
við höfðum grunaðan um morðið,
og mér skilst að rannsakendur
bandaríska flotans [sem fóru með
rannsókn málsins] hafi engar vís-
bendingar sem þeir ætli að fylgja
eftir eins og staðan er í dag.
Staðreyndin er sú að við hjá flug-
hernum trúðum því að Hill væri
morðinginn, en hann var sýknaður,“
segir Martin.
Líklegt er að morðingja Ashley
Turner verði aldrei refsað. „Ef ekki
koma fram nýjar vísbendingar eða
gögn sem benda til þess að einhver
annar hafi framið morðið, er ólík-
legt að málið leysist, og því líklegt
að morðingjanum verði aldrei refs-
að,“ segir Martin.
„Flugherinn lét þann seka
sleppa,“ segir Lawrence W. Turner,
faðir Ashley. „Íslendingar ættu
ekki að hleypa þessum manni aftur
til landsins.“
Hann segir rannsakendur og sak-
sóknara hafa fullvissað fjölskyldu
Ashley um það allt fram að sýknu-
dóminum að það væri formsatriði
að fara í gegnum réttarhöldin, aug-
ljóst væri að Hill væri sekur. Hann
ætti dauðarefsingu yfir höfði sér,
eða í það minnsta lífstíðardóm.
Rannsóknin hafi ef til vill liðið fyrir
þetta viðhorf.
„Við könnuðum möguleikana á
því að fara í einkamál, en við eigum
ekki möguleika á því, þar sem ekki
má rétta yfir manni tvisvar fyrir
sömu sakir,“ segir Turner. Hann
segir fjölskylduna skoða hvort hún
geti krafið bandarísk stjórnvöld
um skaðabætur.
Turner gagnrýnir fyrrum yfir-
völd á varnarsvæðinu harðlega
fyrir að hafa látið dóttur sína og
Hill búa í sama húsnæði, þrátt fyrir
að til stæði að hún bæri vitni gegn
honum, og að honum hafi verið
skipað að halda sig fjarri Ashley.
Flugherinn lét þann seka
sleppa.
Við hjá flughernum
trúðum því að Hill væri
morðinginn, en hann var sýknaður.
Engum refsað
fyrir morðið
Bandarísk yfirvöld hyggjast ekki rannsaka morð á
varnarsvæðinu frekar í kjölfar sýknudóms. Foreldr-
ar fórnarlambsins eru viss um að morðingi hennar
hafi verið sýknaður en geta ekki höfðað einkamál.
Hvað heitir fyrrverandi KGB-
maðurinn sem er grunaður
um að hafa drepið Alexander
Litvinenko í London í fyrra?
Hvað heitir samgönguráð-
herra?
Hvað heita fræin sem fallið
hafa líkt og snjór til jarðar
í sumarveðrinu í Reykjavík
síðustu daga?
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Komdu við í næstu Vodafone verslun og nældu þér í gæðabolta.
Almennt verð 1.990 kr.
Þú færð bestu kjörin með því að vera með allt hjá okkur í Og1.
Meistaradeildarboltar á aðeins 990 kr.
fyrir Og1 viðskiptavini.
Hittu í mark
Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin í Vín segir að
írönsk stjórnvöld hafi nú veitt
kjarnorkueftirlitsmönnum á
vegum Sameinuðu þjóðanna leyfi
til þess að heimsækja í lok mán-
aðarins kjarnorkuver til að ganga
úr skugga um að kjarnorkuvinnsl-
an þar sé ekki liður í smíði kjarn-
orkuvopna.
Samkomulag um þetta tókst á
fundi íranskra embættismanna
með fulltrúum Kjarnorkumála-
stofnunarinnar nú í vikunni.
Árum saman hefur stofnunin
ekki átt nein ráð til að ganga úr
skugga um hvort Íranar segi satt
þegar þeir halda því fram að þeir
hafi engin áform um smíði kjarn-
orkuvopna. Kjarnorkuvinnslan sé
eingöngu hugsuð í friðsamlegum
tilgangi. Íranar hafa jafnan neit-
að stofnuninni um aðgang að
kjarnorkumannvirkjum sínum.
Standi Íranar við þetta sam-
komulag gætu Bandaríkjamenn
átt erfiðara með að fá öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna til að sam-
þykkja frekari refsiaðgerðir gegn
Íran, jafnvel þótt Íranar neiti
áfram að verða við kröfum um að
hætta við eða fresta öllum kjarn-
orkuáformum.
Á fundi sínum nú í vikunni kom-
ust Íranar og fulltrúar kjarnorku-
eftirlitsins einnig að samkomu-
lagi um það með hvaða hætti
frekari ágreiningur milli þeirra
skyldi leystur.
Leyfa aðgang að kjarnakljúfi
Neyðarstjórnin í
Palestínu sagði af sér í gær og við
tekur bráðabirgðastjórn sem
situr í óákveðinn tíma. Forsætis-
ráðherra verður áfram Salam
Fayyad og
ráðherraskipan
stjórnarinnar
verður að mestu
óbreytt, þótt
nokkrir nýir
ráðherrar bætist
í stjórnina.
Neyðarstjórn-
in, sem setið
hefur í um það
bil mánuð, tók við af ríkisstjórn
Hamas og Fatah eftir að Hamas
tók í sínar hendur öll völd á
Gazasvæðinu. Í kjölfar þess lýsti
Mahmoud Abbas forseti yfir
neyðarástandi og hefur síðan
stjórnað með tilskipunum.
Neyðarástandinu var aflétt í
gær og tók þá nýja bráðabirgða-
stjórnin við völdum.
Ráðherraskipan
breytist lítið
Franskur lögregluþjónn
tók í gær upp byssu sína á
lögreglustöð í úthverfi Parísar,
skaut yfirmann sinn, tvö börn sín
og síðan sjálfan sig.
Harmleikurinn átti sér stað um
hádegisbilið í gær á lögreglustöð í
Malakoff, úthverfi Parísar. Ekki
er vitað hvað manninum gekk til
en hann er sagður hafa notað sitt
eigið skotvopn.
Börnin tvö voru um það bil tíu
ára gömul. Nafni lögreglumanns-
ins er haldið leyndu.
Skaut börnin
sín, yfirmann
og sjálfan sig
Gott samræmi er milli
verðmælinga ASÍ og Hagstofu
Íslands, að því er kemur fram í
fréttatilkynningu frá ASÍ. Segir
sambandið ekkert hæft í fullyrð-
ingum Samtaka verslunar og
þjónustu sem hafa sagt verðmæl-
ingar ASÍ óviðunandi og niður-
stöður þeirra allt aðrar en
niðurstöður Hagstofu Íslands.
Segir í fréttatilkynningu ASÍ að
samtökin harmi að Samtök
verslunar og þjónustu velji þá
leið að svara gagnrýni á verðþró-
un með dylgjum og órökstuddum
brigslyrðum í stað þess að svara
efnislega.
Vísa fullyrðing-
um SVÞ á bug
Lögregla handtók í
fyrrakvöld mann sem var
grunaður um ölvun við akstur.
Reynt var að stöðva hann fyrir of
hraðan akstur á Gullinbrú, þar
sem hann mældist á 136 kíló-
metra hraða. Maðurinn lét ekki
segjast og veitti lögreglan honum
því eftirför. Í eftirförinni
mældist hraði hans enn meiri og
gerðist hann einnig sekur um
vítaverðan akstur í mikilli
umferð.
Var maðurinn loks stöðvaður á
Miklubraut og sviptur öku-
réttindum. Honum var sleppt
síðar um kvöldið.
Keyrði ölvaður