Fréttablaðið - 14.07.2007, Qupperneq 34
hús&heimili
„Stétt bólstrara varð ekki til hér
á landi fyrr en um 1920 þannig
að hún er innan við hundrað ára
gömul,“ segir Birgir og bætir því
við að í dag séu tæplega þrjátíu slík
verkstæði á höfuðborgarsvæðinu.
„Sjálfur byrjaði ég að læra þegar
ég var sextán ára gamall en þá
kippti pabbi mér bara með sér í
vinnuna,“ bætir hann við.
Birgir segist hafa verið á leið til
Danmerkur í húsgagnaarkitektúr
eftir að hann lærði bólstrunina hjá
föður sínum en síðan hafi það allt-
af dregist. „Ég fór í sumarvinnu í
Hvalstöðinni á sumrin og fór svo í
íbúðakaup og slíkt þannig að allt-
af dróst það að fara út í nám,“
segir Birgir sem er nú eigandi að
Bólstrun Karls Jónssonar, sem
faðir hans stofnaði á árum áður.
Spurður hvort eitthvað verk
sé skemmtilegra en annað, segir
Birgir: „Ég verð að segja að verk-
efnið sem ég er að vinna hverju
sinni sé skemmtilegast enda
finnst mér ekkert verk neitt
sérstaklega leiðinlegt. Mörgum
finnst leiðinlegast að binda niður
gormana í gömlum húsgögnum og
mér fannst það líka þegar ég var
að byrja en það verður auðveld-
ara með tímanum þegar maður
nær tökum á því.“
Birgir segist merkja að fleiri
láti bólstra húsgögnin sín nú en
fyrir nokkrum árum. „Ég held að
það sé vegna þess að fólk er farið
að skynja gæði húsgagna miklu
betur en áður. Tekkhúsgögnin eru
mjög vinsæl í dag og því er ég að
bólstra mikið af slíkum mublum
en það er ekki langt síðan fólki
þótti þau ómerkileg og henti þeim
í stórum stíl. Núna svermir fólk
hins vegar fyrir þessum húsgögn-
um og þau þykja mjög flott,“ segir
Birgir. sigridurh@frettabladid.is
Bindur sessur með pappa
Birgir Karlsson hefur verið bólstrari í 36 ár en iðnina lærði hann af föður sínum Karli
Jónssyni. Birgir, sem á og rekur Bólstrun Karls Jónssonar, segir greinina mjög skemmti-
lega og starfið fjölbreytt.
Það er sennilega algengt að fólk fái snert af valkvíða þegar velja skal efni á mublurn-
ar því að úrvalið er gríðarlega mikið.
Stólarnir verða alveg eins og nýir þegar
Birgir er búinn að hnýta í þá nýtt band
en það er nokkuð sérstakt að bandið í
þessum stólum er úr pappa og endist í
allt að þrjátíu ár.
Starf bólstrarans felst ekki aðeins í því að klæða sófa og stóla. Birgir er einn af fáum hér á landi sem fást við að binda sessur í stóla
eins og þennan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
STAÐIÐ Á DÝRAFÓTUM Diva er borð með óvenjulega
borðfætur, en þeir eru nákvæm eftirlíking af strúti. Borðið
tilheyrir línu sem heitir Mobilier de Compagnie og er hönnuð af
franska hönnunarteyminu Ibride. Önnur borð í línunni eiga sér
einnig fyrirmynd í dýraríkinu, svo sem lághund, dádýr og kind.
Hugmyndin að línunni kviknaði samhliða hugmynd Ibride hópsins
um nýsköpun í hönnun og tilraunum hans til að búa til sterkara
samband á milli borðplötunnar og fótanna.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
14. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR4