Fréttablaðið - 14.07.2007, Side 64
Er því miður ekki hluti af nýjustu seríu „Tekinn“
Boðið verður upp á
risaslag í átta liða úrslitum VISA-
bikars karla mánudaginn 13. ágúst
þegar Valsmenn fá Íslandsmeistara
FH í heimsókn í Laugardalinn.
Hinir tveir úrvalsdeildar-
slagirnir eiga það líka sameiginlegt
að liðin mætast einnig í deildinni á
svipuðum tíma. Fylkir og ÍA spila
á Árbænum í bikarnum 12. ágúst
og mætast síðan uppi á Skaga
fjórum dögum síðar í deildinni.
Keflavík fær Breiðablik í heim-
sókn í deildinni 9. ágúst en fer
síðan í Kópavoginn þremur dögum
síðar í bikarnum. Lokaleikur átta
liða úrslitanna er síðan á milli 1.
deildarliðs Fjölnis og 2. deildarliðs
Hauka og það er því ljóst að neðri-
deildarlið kemst í undanúrslit.
FH-ingurinn Tryggvi Guðmunds-
son fagnar því að fá stórleik í
næstu umferð.
„Það er frábært að fá svona
stórleik. Menn vildu kannski fá
þessi lið í úrslitaleikinn en það er
fullt af góðum liðum eftir þannig
að það verður án efa einhver góður
úrslitaleikur,“ segir Tryggvi en
FH-liðið gat hugsanlega ekki
fengið erfiðara verkefni. „Þetta
var enginn draumadráttur en það
er ágætt að fá tækifæri til að
hefna tapsins fyrr en við ætluðum
okkur. Við vorum yfirspilaðir og
lélegri en Valur í þeim leik og
kannski kom sá leikur okkur
eitthvað niður á jörðina,“ segir
Tryggvi, sem er staðráðinn eins og
aðrir FH-ingar í að ná loksins í
bikarinn.
„Ég myndi halda að hungrið í
bikarinn ætti að vera mikið í
mönnum þar sem við höfum verið
nálægt því að fara alla leið í
nokkur ár en illa hefur gengið. Það
væri mjög gaman að fá að taka
þátt í úrslitaleiknum.“ Tryggvi var
að vonast eftir því að fá nágranna-
slag við Hauka. „Ég hefði viljað
sjá FH og Hauka mætast til að fá
að upplifa „derby-slag“ en það er
enn möguleiki á því,” sagði
Tryggvi að lokum.
„Það gat ekki verið erfiðara
fyrir FH,“ sagði Valsarinn Helgi
Sigurðsson í léttum tón og bætti
við: „Þetta verður hörkuleikur og
góður leikur fyrir áhorfendur en
ég held þó að hvorugt liðið hafi
viljað að þau mættust svona
snemma. Fyrst svo er var mikil-
vægt að fá heimaleikinn. Það var
aðalatriðið því þar eigum við að
geta unnið öll lið. Mig grunaði
samt fyrir fram að við myndum fá
FH,“ sagði Helgi. Valsmenn eru
eina liðið sem hefur unnið FH í
sumar en þeir unnu 4-1 í deildinni
á dögunum.
„Við eigum von á erfiðum leik
og sá næsti verður miklu erfiðari
en sá síðasti. Það er ekki oft sem
FH-ingar þurfa að hefna ófara frá
því síðast en það er ágætt að fá að
sjá hvernig þeir bregðast við því.
Við erum alveg klárir í leikinn en
það er það langt í hann að við erum
ekkert byrjaðir að hugsa út í þetta.
Við einbeitum okkur að deildinni
núna en svo einbeitum við okkur
að þessum leik þegar kemur að
honum,“ sagði markahæsti leik-
maður Landsbankadeildar karla í
sumar.
Einnig verður stórleikur í
undanúrslitum kvenna þegar
Breiðablik fær KR í heimsókn en
Blikar slógu Íslands- og bikar-
meistara Vals út í fyrrakvöld. Í
hinum undanúrslitaleiknum
mætast síðan Keflavík og Fjölnir
suður með sjó.
Topplið Landsbankadeildar karla drógust saman í átta liða úrslitum VISA-bikars karla. Valsarinn Helgi
Sigurðsson og FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson bíða spenntir eftir leiknum. Í undanúrslitunum hjá
konunum er einnig stórleikur á milli erkifjendanna í Breiðabliki og KR.
Breiðablik mun ekki
senda lið til leiks í Iceland
Express deild kvenna og þar með
eru liðin aðeins sjö í deildinni.
Breiðablik féll úr deildinni í vor
en samþykkt var að fjölga liðum
úr 6 upp í 8 á Ársþingi KKÍ í vor.
Á heimasíðu Breiðabliks kemur
fram að stjórn körfuknattleiks-
deildar Breiðabliks hafi ákveðið
þetta á fundi. „Við áttum góðan
fund með stelpunum þar sem
þetta varð niðurstaðan. Við erum
að fá stelpur sem eru uppaldar í
félaginu og vilja taka fram skóna
á nýjan leik og spila í 1. deildinni
sem er mikið fagnaðarefni. Við
höldum ótrauð áfram uppbygg-
ingu kvennaflokkanna í Breiða-
bliki og verðum með fimm flokka
næsta vetur en vorum með fjóra
síðasta vetur,“ sagði Pétur Hrafn
Sigurðsson, formaður deildarinn-
ar, í viðtali við heimasíðu
Breiðabliks.
Breiðablik þigg-
ur ekki sætið
Íslandsmeistarar FH-inga
og Fylkismenn fá um helgina
annað tækifæri til þess að skora
fyrir gott málefni en Landsbank-
inn heitir 30.000 krónum fyrir
hvert mark sem leikmenn Lands-
bankadeildarinnar skora í 10.
umferð karla um helgina og 9.
umferð kvenna sem leikin er föstu-
daginn 27. júlí.
FH og Fylkir gerðu markalaust
jafntefli í 5. umferð en í þeirri
umferð hét Landsbankinn einnig
30.000 krónum fyrir hvert mark.
Skagamenn skiluðu mestu en þeir
skoruðu þrjú mörk gegn KR og
gáfu 90 þúsund krónur til Geðhjálp-
ar en áheit Landsbankans renna til
málefna sem liðin hafa sjálf valið.
Hvert lið valdi sitt málefni og því
munu alls nítján málefni njóta góðs
af átakinu.
Bankinn tryggir að hvert málefni
fái að minnsta kosti 30.000 krónur
takist einhverju liði ekki að skora.
Fyrri hluti átaksins Skorað fyrir
gott málefni fór fram fyrr í sumar
og þá skoruðu leikmenn samtals 38
mörk. Konurnar stóðu sig öllu
betur, skoruðu 25 mörk og söfnuðu
750.000 krónum. Karlarnir skoruðu
á hinn bóginn 13 mörk og söfnuðu
390.000 krónum.
Kvennalið KR skilaði mestu en
fimm mörk vesturbæjarstelpna
þýddu að 150 þúsund krónur runnu
til Ljóssins, endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð fyrir krabba-
meinsgreinda og aðstandendur
þeirra.
FH og Fylkir eru enn á núllinu
Einn skrautlegasti
handboltakappi allra tíma,
Þjóðverjinn Stefan Kretzschmar,
leggur skóna endanlega á hilluna
í dag þegar hann leikur kveðju-
leik sinn í Bördelandhalle í
Magdeburg. Kretzschmar hefur
leikið með félaginu um árabil og
var óhemju vinsæll hjá stuðnings-
mönnum félagsins og það lýsir
sér best í því að uppselt var á
leikinn á innan við klukkutíma.
Í kveðjuleiknum mun stjörnulið
Kretzschmars mæta liði Magde-
burgar. Í liði Kretzschmars verða
ekki ómerkari menn en Ólafur
Stefánsson, Magnus Wislander,
Lars Christiansen og Nenad
Perunicic svo einhverjir séu
nefndir. Þjálfararnir sem taka
síðan þátt í leiknum eru Alfreð
Gíslason, Heiner Brand,
landsliðsþjálfari Þjóðverja og
Noka Serdarusic, þjálfari
Þýskalands- og Evrópumeistara
Kiel.
Alfreð og Óli
með í leiknum
Óhætt er að segja að
spænska deildin byrji með látum
helgina 25. til 26. ágúst. Spænsku
meistararnir í Real Madrid fá þá
nágranna sína í Atletico í
heimsókn á Santiago Bernabeu-
leikvanginn.
Þetta verður fyrsti deildarleik-
ur Real undir stjórn Þjóðverjans
Bernd Schuster en liðið verður þá
búið að spila í spænska ofur-
bikarnum þar sem það mætir
Sevilla í tveimur leikjum, 11. og
19. ágúst.
Eiður Smári Guðjohnsen,
Thierry Henry og félagar í
Barcelona mæta Racing Santand-
er í fyrsta leik. Fyrri risaslagur
Real og Barca verður á Nou
Camp á Þorláksmessu en sá síðari
á Bernabeu 7. maí.
Stórslagur í
fyrstu umferð