Fréttablaðið - 17.07.2007, Side 1
Fjögurra manna áhöfn björg-
unarþyrlunnar TF-SIF sakaði ekki
þegar flugstjóri hennar neyddist
til að nauðlenda í sjónum við
Straumsvík í gærkvöldi. Áhöfnin
komst heilu og höldnu út úr
þyrlunni og um borð í björgunar-
skipið Einar J. Sigurjónsson sem
var við æfingar með áhöfn
þyrlunnar. Veður var mjög gott
þegar slysið varð. Skipstjórinn á
björgunarskipinu sendi stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar neyðarkall
klukkan 18.50.
Áhöfnin á TF-SIF var ásamt
björgunarskipinu að æfa hífingar
af skipi og úr sjó. Þyrlan var í lít-
illi hæð og missti snögglega vélar-
afl, að sögn sjónarvotta. Flugstjór-
inn neyddist til að nauðlenda
þyrlunni en samkvæmt upplýsing-
um frá tæknistjóra Landhelgis-
gæslunnar, er þyrlan að öllum lík-
indum ónýt.
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, gat ekki gefið
nákvæmar upplýsingar um slysið
þegar eftir þeim var leitað í gær-
kvöldi. „Málið er í rannsókn undir
stjórn rannsóknarnefndar flug-
slysa. Ég vil bara þakka guði að
þeir skuli hafa sloppið lifandi frá
þessu.“
Um borð í þyrlunni voru fjórir
menn sem allir voru vanir, að sögn
Georgs. „Þetta var mjög góð áhöfn
sem komust afburðavel frá þessu.
Þeir lentu mjög mjúklega á sjón-
um og lendingin gekk því mjög
vel. Þegar þeir voru komnir frá
vélinni þá hvolfir henni.“
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra tók á móti áhöfninni þegar
hún kom í land. Björn segir að sér
hafi brugðið illa þegar hann heyrði
fréttir af slysinu. „Maður spyr
náttúrlega hvort menn hafi bjarg-
ast eða ekki, það er fyrsta spurn-
ingin sem kemur upp í hugann.“
Björn segir þyrluna vera komna til
ára sinna en hún hafi reynst afar
vel. „TF-SIF hefur bjargað tugum
ef ekki hundruðum manna á sinni
starfsævi. Það er auðvitað erfitt
fyrir þá sem hafa unnið á þyrlunni
að sjá á eftir henni í hafið við þess-
ar aðstæður,“ segir Björn.
Að sögn upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslunnar leið áhöfn
þyrlunnar vel í gærkvöldi en gerð-
ar höfðu verið ráðstafanir til að
þeir fengju áfallahjálp vegna
slyssins.
Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur heldur
námskeiðið Sæl og sátt börn fjölsk ldvægi Á
Einn greipávöxtur á dag geturaukið líkurnar á brjósta-krabbameini.
Með því að borða einn greip-ávöxt á dag aukast líkurnar á brjóstakrabbameini umnæstum þriðjungsamkvæmt nýrrirannsókn sem unninvar í Bandaríkjun-um við háskólann íSuður-Kaliforníu ogHawaii. Rannsókninnáði til 50 þúsund kvennaá breytingaraldrinum og sýnirað aðeins einn fjórði af greip-ávextinum jók líkurnar um allt
að 30 prósent.Talið er að ávöxturinn auki estrógenmagn líkamans, en það er hormón sem talið er tengjasthættunni á brjósta-krabbameini. Greintvar frá þessu í nýj-asta eintakinu af British Journalof Cancer.
Vísinda-
mennirnir
sem unnurannsókninaásamt öðrum sérfræðingum voru sammála um að þörf væri á frekari rann-sóknum.
Í nýjasta tímariti New Eng-land Journal of Medicine erlíkum að því leitt að mp3-spilarar geti verið h
blanda svita hans og leiðni spil-arans til þess að eldingu sló niðurí manninn.
M ð
Galdurinn á bak
við grillsósuna
gott á grilliðÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 Galdurinn á bak við grillsósunaGrillsósa úr hundasúrum og grillaðri papríku BLS. 4
Skemmtilegur ferðafélagi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
8
8
2
Styrkir foreldra
sem uppalendur
Setur húsið
á sölu
Ökumaður mótorhjóls lést
eftir árekstur við strætisvagn
á mótum Innnesvegar og
Akrafjallsvegar við Akranes
um sjö í gærkvöldi.
Maðurinn var á fertugsaldri.
Loka þurfti veginum í
nokkrar klukkustundir eftir
slysið.
Bifhjólamaður
lést í árekstri
Engan sakaði þegar
TF-SIF brotlenti á sjó
Fjögurra manna áhöfn björgunarþyrlunnar TF-SIF sakaði ekki þegar hún nauð-
lenti við Straumsvík í gærkvöldi. Þyrlan var við æfingar og er talin ónýt.