Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 10
 Ferðamenn sem leið eiga um nágrenni Mýrdalsjökuls verða varaðir við hættu sem getur skap- ast við Kötlugos. Upplýsingar um helstu hættur, líklega farvegi flóða og fleira verður að finna á upplýsingaskiltum og bæklingum frá almannavarnadeild Ríkislög- reglustjóra sem dreift verður á næstu vikum. Útbúnir hafa verið bæklingar, veggspjöld og skilti, en einnig munu björgunarsveitarmenn dreifa hljóðbombum og neyðar- flugeldum í skála á svæðinu, og kenna skálavörðum hvernig með- höndla á útbúnaðinn, segir Guð- rún Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild Ríkislög- reglustjóra (RLS). „Þetta er öryggisatriði, það eru margir sem ferðast um svæðið og það getur verið skammur tími til að bregðast við verði gos í Mýr- dalsjökli. Þá er öryggisatriði að ferðamenn viti hvað sé að gerast og hvernig þeir eigi að bregðast við,“ segir Guðrún. Eldfjallið Katla er undir Mýr- dalsjökli, og hefur gosið einu sinni til tvisvar á öld undanfarnar aldir. Katla gaus síðast 1918, og því tald- ar talsverðar líkur á að hún gjósi á næstunni. Við gos bráðnar mikið magn af jökulís á skömmum tíma og gríðarleg jökulhlaup frá eld- stöðinni geta haft mikla eyðilegg- ingu í för með sér. Heimildir herma að flest jökul- hlaup í kjölfar eldgoss í Kötlu hafi farið suður á Mýrdalssand eða Sól- heimasand, en fyrir sögulegan tíma eru vísbendingar um að hlaup hafi farið út í Markarfljót. Slíkt gæti haft afdrifaríkar afleiðingar, til dæmis fyrir ferðamenn í Þórsmörk, vegfarendur og íbúa nærri fljótinu. Þegar viðbrögð við Kötlugosi voru æfð síðasta sumar var upp- lýsingum dreift til heimamanna í nágrenni jökulsins. Nú verður næsta skref tekið og ferðamenn varaðir við. Guðrún segir ekki markmiðið að hræða ferðamenn frá því að ferðast á svæðinu, einungist að fræða þá um það hvernig sé rétt að bregðast við eldgosi. Ferða- menn sem fari um landið verði að sjálfsögðu að bera ábyrgð á sjálf- um sér. Vara ferðamenn við eldgosi undir jökli Bæklingum og viðvörunarskiltum sem vara við hættu á eldgosi í Kötlu verður dreift á næstu vikum. Skálaverðir á svæðinu verða þjálfaðir í notkun hljóð- bomba og neyðarflugelda. Viljum fræða ferðamenn ekki hræða þá segir RLS. Samtök verslunar og þjónustu vilja að verslunareigend- ur geti lokið þjófnaðarmálum í verslunum með borgarasátt án aðkomu lögreglunnar. Samtökin hafa sent tillögu um þetta til dóms- málaráðuneytisins. Sáttin yrði þannig að einstakl- ingur sem væri gómaður við hnupl gæti borgað bætur sem gengu til verslunarinnar vegna öryggis- kostnaðar og skrifað undir yfir- lýsingu þar sem hann játar brot sitt. Lögreglunni yrði síðan sent afrit af yfirlýsingunni og ætti brotið á skrá. Þar sem um sátt er að ræða kæmist brotið ekki til kasta dómstóla og færi því ekki á sakaskrá viðkomandi. „Það yrði ekki hægt að nota sáttina í öllum tilfellum. Til dæmis hjá ólögráða börnum og einnig þeim sem neita sök. Þá þyrfti að kalla til lögregl- una eins og gert er í dag,“ segir Sigurður. Sigurður telur að þessi leið sé tilvalin fyrir alla. „Það fer mikill tími hjá lögreglunni í að sinna svona málum. Það getur líka verið pínlegt fyrir þjófana að sitja með starfsmann yfir sér í allt að klukkustund og bíða eftir að lög- reglan mæti á svæðið.“ Þessi aðferð hefur verið notuð víða í Evrópu með góðum árangri að sögn Sigurðar og nefnir hann Holland og Bretland sem dæmi. Þjófar geri borgaralega sátt Fornleifafræðingar fundu um helgina 2.400 ára gamla gullgrímu í fornu grafhýsi í Búlgaríu. Einnig fannst gullhring- ur með grískri áletrun og mynd af skeggjuðum manni auk annarra smáhluta í gröf frá tímum Þrakverja. Stjórnandi uppgraftarins, Georgi Kitov prófessor, telur gripina hafa tilheyrt þrakversk- um leiðtoga frá 4. öld fyrir Krist. Þróun menningar í Þrakíu var sambærileg þeirri forngrísku að sögn Kitovs. Þrakverjar bjuggu þar sem nú er Búlgaría og að hluta til Grikkland, Rúmenía, Makedónía og Tyrkland. Ríki Þrakverja stóð frá 4.000 fyrir Krist til 8. aldar eftir Krist. Fundu forna gullgrímu Tveir unglingspilt- ar hafa verið handteknir vegna gruns um þeir hafi ætlað að framkvæma skotárás í Connetquot High School á Long Island í New York í apríl á næsta ári. Árásin var áformuð á sama degi og fjölda- morðin í Columbine árið 1999. Drengirnir eru 15 og 17 ára gamlir og unnu saman á McDon- ald‘s stað í nágrenninu. Sá yngri er talinn hafa skipulagt árásina, en í dagbók hans fann lögregla hótanir um hryðjuverk. Yngri drengurinn hefur ekki enn verið ákærður, en sá sautján ára kom fyrir rétt á föstudag, þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu. Undirbjuggu skotárás á skóla Tryggingamiðstöðin verður aðalstyrktaraðili Pæjumóts Siglufjarðar næstu þrjú árin og heitir mótið nú Pæjumót TM Siglufirði. Pæjumótið, sem er eitt stærsta knattspyrnumót landsins ár hvert, fer fram 10. til 12. ágúst næstkomandi og er fyrir stúlkur á aldrinum sjö til þrettán ára. Skráning í mótið stendur enn yfir. Stuðningur Tryggingamiðstöðv- arinnar við mótið og Knattspyrnu- félag Siglufjarðar er liður í skipulögðu átaki fyrirtækisins til að efla íslenska kvennaknatt- spyrnu. Tryggingamið- stöðin styrkir Um síðustu helgi létu meira en 70 manns lífið í sjálfs- morðsárásum og sprengjuárásum í norðvesturlandamærahéraði Pak- istans. Stjórnvöld í Pakistan eru að kanna hvort tengsl séu milli árás- anna og róttækra múslima í Rauðu moskunni í Islamabad, sem stjórn- arherinn réðst á í síðustu viku. Í síðustu viku hétu herskáir mús- limar því að hefna fyrir árásina á moskuna, sem kostaði meira en hundrað manns lífið. Mikil and- staða hefur verið við stjórnina, einkum í norðvesturhluta landsins. Um helgina lýstu leiðtogar helstu ættflokka í Norður-Wazir- istan, héraði sem liggur að landa- mærum Afganistans, því yfir að vopnahlé, sem þeir gerðu við stjórnvöld í Pakistan á síðasta ári, væri fallið úr gildi. Í Norður-Waziristan er mikill almennur stuðningur við bæði talibana og Al Kaída, og telja pak- istönsk stjórnvöld að róttæku múslimarnir í Rauðu moskunni hafi haft náin tengsl við herskáa hópa í Norður-Waziristan. Á síðustu dögum hefur stjórnin sent þúsundir hermanna til hérað- anna í norðvesturhluta landsins til þess að hafa hemil á starfsemi uppreisnarmanna, en þrátt fyrir það féllu 73 í árásunum um helg- ina. Ellefu manns frá átta löndum dvelja nú í Dalvíkur- byggð á vegum Veraldarvina. Veraldarvinir eru íslensk sjálfboðaliðasamtök sem vinna náið með alþjóðasamtökum. Sjálfboðaliðarnir dveljast á Dalvík í tvær vikur og sér bærinn þeim fyrir húsnæði og fæði. Að öðru leyti vinna sjálfboðaliðarnir launalaust. Munu þeir taka þátt í nokkrum verkefnum á vegum bæjarins. Í sjálfboða- vinnu á Dalvík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.