Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 22
17. JÚLÍ 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið gott á grillið
LAX Á GRILLI MEÐ GRÁÐAOSTI Hér er stutt og einföld upp-
skrift að hollum og góðum grillrétti. Skornar eru rendur þvert í flak af laxi.
Gráðaosti er komið fyrir í röndunum og piprað örlítið. Flakinu er komið
fyrir á álbakka og skellt á grillið.
Þessi réttur er unaðslega góður,
sérstaklega með léttri jógúrtsósu
sem auðvelt er að hrista fram úr
erminni. Takið eina dós af hreinni
jógúrt og skerið graslauk út í. Þeir
sem vilja geta kreist eins og eitt
hvítlauksrif út í sósuna.
Pitsu er vel hægt að baka á grilli og
ef eitthvað er verður hún ennþá
betri en sú í ofninum. Pitsudeigið
má bæði hnoða heima eða kaupa
tilbúið úti í búð. Hverju er raðað á
pitsuna fer síðan eftir smekk hvers
og eins.
1. Hitið grillið á miðlungshita.
2. Setjið deigið á slétt yfirborð og
smá hveiti undir. Skiptið deiginu í
fjóra hluta og fletjið hvern þeirra
út svo hann sé u.þ.b. 24 sentimetr-
ar í þvermál og hálfur sentimetri
að þykkt. Setjið botnana á bökun-
arplötu eða álpappír og farið með
allt út að grillinu.
3. Leggið botnana á grillið og
lokið því svo. Eldið í þrjár mínútur
þar til botnarnir hafa aðeins lyft sér
og eru orðnir ljósbrúnir. Athugið að
botnarnir hafa að öllum líkindum
breytt um lögun.
4. Notið grilltangir til að snúa
botnunum við og setjið þá hráefn-
ið ofan á sem þið viljið. Til dæmis
tómatsósu, pestó og hvers kyns
góðgæti.
Pitsa á grillið
Hægt er að grilla ýmislegt sem
ekki er „hefðbundinn“ grillmat-
ur. Þar á meðal er ferskur ananas
en hann er lostæti grillaður. Hann
er hægt að bera fram einan og sér
eða setja vanilluískúlu ofan á skíf-
una og búa til framandi eftirrétt.
Fæstum dettur í hug að gott
sé að grilla fetaost. Sé honum
velt upp úr sykri og hann grillað-
ur létt verður hann hins vegar að
fyrirtaks forrétti. Svo má einn-
ig bregða út af vananum og nota
annað brennsluefni en kol eða
gas. Hægt er að grilla yfir rjúk-
andi birkikubb eða furugreinum
og fá þannig keim náttúrunnar í
grillmatinn. Bíða þarf eftir því að
logarnir hverfi en það getur tekið
nokkurn tíma svo slíkar grillveisl-
ur kalla á nokkurn undirbúning.
- tg
Óhefðbundið grill
Þegar komið er að grillinu gildir bara að prófa sig áfram. Ferskur ananas er til dæmis
góður grillaður.
Veitingastaðurinn Bautinn á
Akureyri er flestum Norðlend-
ingum og ferðalöngum norðan
heiða kunnur. Staðurinn er í
sögufrægu húsi í hjarta bæjar-
ins sem reist var skömmu eftir
aldamótin nítjánhundruð og
hefur boðið til borðs í 36 ár.
Bautinn er með fjölbreytta grill-
rétti á matseðlinum en býður jafn-
framt upp á grillþjónustu í veislum.
Að sögn Hákonar Sæmundssonar,
yfirkokks, mætir Bautinn í veislur
með grill sem þeir nefna Eldvagn-
inn og þá er ýmist hægt að velja
matseðil sem nefnist Partígrill,
Klassískt grill, Original grill eða
Grand grill. Þar meðal annars er
í boði grísarif, kjúklingur, pylsur,
kjúklingur og lamb ásamt með-
læti. Með grillmatseðlinum fylg-
ir leirtau og matreiðslumaður sem
undirbýr veisluna, eldar og geng-
ur frá.
Hákon segir slíkar veislur vera
gífurlega vinsælar til dæmis á
ættarmótum, í afmælum og brúð-
kaupum. Enda hefur verið heitt
í kolunum síðan í vor og Hákon
segir að stefnan sé tekin á grill
fram í desember enda veðrið allt-
af gott fyrir norðan. Á grillmat-
seðlinum á Bautanum er bæði sí-
gildur og framandi grillmatur
og Hákon ákvað að bjóða lesend-
um Fréttablaðsins uppskrift af
hrefnu, kálfafillet og steinbít.
rh@frettabladid.is
Grilluð hrefna með norðurljósa-
bjarma og kartöfluskífum.
Hrefnukjöt
Kartöflur
Olía
Gróft salt og svartur pipar
Tómatur
Ferskt salat
Fetaostkur
Ólífur
Sólþurrkaðir tómatar
Ein dós sýrður rjómi
3 matskeiðar týttuberjasulta
Kartöflurnar eru skornar í
sneiðar, penslaðar með olíu og
grófu salti og svörtum pipar sáldr-
að yfir þær. Síðan grillað í 15 til 20
mínútur.
Hrefnan skorin í 1,5 cm þykk-
ar sneiðar og lögð í steikar og grill
olíu (hægt að nota olíu, smá soja-
sósu og kjötkraft blandað saman)
og grilluð á vel heitu grilli í stutta
stund á hvorri hlið og látin jafna
sig á efri grindinni á grillinu.
Sósan blönduð úr sýrðum rjóma
og þremur matskeiðum tyttuberja-
sultu. Tómatur skorinn í tvennt og
penslaður með olíu og grillaður.
Borið fram með fersku salati
með fetaosti, ólífum og sólþurrk-
uðum tómötum.
Grillað kálfafillet mexíkanó með
bakaðri kartöflu og graslaukssósu
Kálfakjöt
Ein dós sýrður rjómi
Saxaður graslaukur
Smá hunang
Salt og pipar
Kryddlögur á kálf:
4 msk. olía
1 msk. paprika
1 msk. karrí
Salt og pipar.
Lagið kryddlöginn og leggið kjöt-
ið í hann. Grillið kálfinn miðlungs
svo hann sé ekki hlaupinn í gegn
annars vill hann verða seigur.
Gott er að hafa ferska ávexti
eins og ananas, vínber eða jarðar-
ber.
Kartöflurnar eru bakaðar á
grillinu með graslaukssósu. Bland-
ið saman einni dós sýrðum rjóma,
söxuðum graslauk, smá hunangi
og smakkið til með salti og pipar.
Grillaður steinbítur og grasker
með fersku mangó salati.
Steinbítur
Grasker
Olía
Timían
Salt og grænn og rauður pipar
Salat
Ferskt mangó
Paprika
Grasker skorið niður, lagt í olíu
og kryddað með timían, salti og
pipar.
Grillað í um það bil korter á vel
heitu grilli, látið jafna sig á meðan
steinbíturinn grillast. Steinbítur-
inn er kryddaður með grænum og
rauðum pipar, salti og pipar eftir
smekk. Borið fram með salati,
fersku mangói og papriku.
Grillað af hjartans lyst
Steinbítur á grillið er frábær fyrir þá sem
eru hrifnari af fiski en kjöti.
Grillað kálfafillet. Stórgóð sunnudags-
steik jafnt heima sem á ferðalagi.
Hrefnan er framandi á grillið og spenn-
andi í sumarveisluna.
Hákon Sæmundsson yfirkokkur á Bautanum grillar af hjartans lyst í allt sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Hákon Sæmundsson yfirkokkur á Baut-
anum og Guðmundur Karl Tryggvason,
matreiðslumeistari og eigandi Bautans.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS