Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 34
Tuttugu og fimm ár eru frá því Grace Kelly prinsessa af Mónakó lést vof- veiflega í bílslysi. Í tilefni af þessum tímamótum var opnuð sýning í Grim- aldi-safninu í Monte Carlo undir heitinu „The Grace Kelly Years,“ þar sem farið er yfir líf og starf kvikmyndastjörnunn- ar, tískugyðjunnar og prinsessunnar. Grace Kelly er af mörgum talin ein fegursta kona heims. Hún fæddist þann 12. nóvember árið 1929 í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Faðir hennar var vel þekktur milljónamæringur og pólitíkus en móðir hennar var fyrirsæta. Grace byrjaði að leika strax á barns- aldri og hóf síðan nám í American Acad- emy for Dramatic Arts í New York að loknu skyldunámi. Hún vann fyrir sér sem fyrirsæta og með leik í sjónvarps- auglýsingum þar til hún fékk loks hlut- verk á Broadway. Tveimur árum síðar fékk hún fyrsta Hollywood-hlutverk- ið sitt í kvikmyndinni Fourteen Hours. Árið 1954 lék Grace á móti Bing Crosby í The Country Girl en fyrir það hlutverk fékk hún Óskarsverðlaunin. Grace Kelly var í miklu eftirlæti hjá Hitchcock og það var einmitt þegar hún lék í mynd- inni To Catch a Thief á frönsku Rivi- erunni sem hún kynntist eiginmannin- um tilvonandi, Rainier prins af Mónakó. Þau voru gefin saman árið 1956 í glæsi- legri athöfn sem minnti helst á ævin- týrabrúðkaup. Grace hætti kvikmyndaleik eftir að hún varð prinsessa að ósk mannsins síns. Hún eignaðist þrjú börn með furst- anum, þau Albert, Karólínu og Stefan- íu, sem síðar hafa komist í kastljósið, meðal annars fyrir villtan lífsstíl. Grace Kelly var aðeins 52 ára þegar hún lést í bílslysi. Karólína dóttir henn- ar var með í bílnum en sakaði ekki. Sýningin um ævi Grace Kelly stend- ur til 23. september og byggist upp á fimmtán sýningarsölum. Þar má helst nefna Fíladelfíu-herbergið þar sem rifj- uð er upp æska Grace, Hollywood-her- bergi, Hitchcock-herbergi og heilt her- bergi tileinkað fyrstu kynnum Rainiers og Grace. Að sjálfsögðu er eitt herbergi lagt undir brúðkaupið en auk þess verða til sýnis fallegir kjólar sem Grace Kelly klæddist við hin ýmsu tækifæri í prins- essuherberginu. „Það er síðasta ósk margra deyjandi barna að fá að hitta mig.“ Disneyland opnar í Kaliforníu AFMÆLI Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir, bróðir, mágur, fyrrverandi eiginmaður og afi, Jón Haukur Hermannsson Dalseli 31, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans þann 13. júlí síðastlið- inn. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 20. júlí kl. 15.00. Sigurrós Arna Hauksdóttir Þorsteinn Þorsteinsson Þórarinn Hauksson Margrét Valgerður Pálsdóttir Hulda Hauksdóttir Svava Hrafnkelsdóttir Ólína Fjóla Hermannsdóttir Pétur Torfason Díana Svala Hermannsdóttir Þorleifur Kristján Guðmundsson Guðrún Þórarna Þórarinsdóttir og barnabörn. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir og mágur, Óskar Sigurbjörn Pálsson Hagaflöt 2, Garðabæ, varð bráðkvaddur 8. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna. Sjöfn Óskarsdóttir Páll Ólafur Pálsson Sjöfn Óskarsdóttir Ragna Pálsdóttir Erwin Austin Erwin Sólveig Pálsdóttir Árni Jónsson og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, Ingibjörg Richardsdóttir Engjaseli 54, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 14. júlí á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 20. júlí kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Kristinn Karl Dulaney Erla Kristinsdóttir Snorri Bjarnvin Jónsson Richard Kristinsson Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Ingibjörg Kristinsdóttir Hans Welling Erla Þórðardóttir, Þórdís Richardsdóttir Per Otto Sylwan og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Finnbogason verslunarmaður, Gnoðarvogi 68, andaðist föstudaginn 6. júlí á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Neskirkju, miðvikudaginn 18. júlí kl. 15.00. Steinunn Stefanía Magnúsdóttir Ísleifur Jónsson Jóhanna Finnborg Magnúsdóttir Hafliði Sigtryggur Magnússon Svanhildur Agnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar fóstursystur minnar og frænku okkar, Marfríðar Sigurðardóttur Hátúni 10a, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk meltingarfæra- og nýrnadeildar 13E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir þeirra góðu umönnun og hlýju. Smári Karlsson og aðrir aðstandendur. 60 ára afmæli Lilja Hjelm (Digga) verður sextug 26. júlí næstkomandi. Hún ætlar að halda upp á það laugardaginn 21. júlí í félagsheimili hestamanna á Selfossi klukkan 18.00 og vill hún bjóða öllum vinum og vandamönnum að koma og þigg ja þar veitingar. Vigdís J. R. Hansen Hraunbæ 172, Rvk, lést á líknardeild Landspítalans Landakoti að morgni laugardagsins 14. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. júlí kl. 11.00. Aðstandendur og vinir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.