Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 26
17. JÚLÍ 2007 ÞRIÐJUDAGUR6 fréttablaðið gott á grillið
Sigurður hjá Víni og skel segir
allt aðra stemningu felast í því
að grilla en elda á hefðbund-
inn hátt.
„Á laugardögum er oft mikil stemn-
ing í portinu hjá okkur hér fyrir
utan veitingastaðinn því þá erum
við með fiskmarkað og grill í gangi
klukkan ellefu til fjögur,“ segir Sig-
urður Rúnar Ásgeirsson matreiðslu-
maður á Víni og skel. „Við seljum þá
ferskan krækling, ódýran humar,
hrefnukjöt á spjóti og skelfiskspjót
sem fólk getur tekið með sér heim
á grillið eða við grillum fyrir það á
staðnum,“ bætir hann við.
Sjálfur segist Sigurður hafa
mjög gaman af að grilla og
gerir mikið af því. „Það er mun
skemmtilegri stemning í því að
grilla og allt öðruvísi en að steikja
á pönnu. Eins er gott að fá grill-
bragðið í gegn,“ segir hann og
bætir því við að mikið hafi verið
að gera á Víni og skel í sumar.
„Það hefur verið mjög mikið um
það í góða veðrinu í sumar að
fólk gangi inn af götunni seinni
part dags og á kvöldin, svo það er
ekki nauðsynlegt að vera búinn
að panta borð til að komast að hjá
okkur,“ segir Sigurður.
sigridurh@frettabladid.is
Fiskmarkaður og grill á laugardögum
Grillspjótin eru girnileg beint af grillinu með grænu salati og jarðarberjum. Svo er
auðvitað gott að kreista sítrónur yfir spjótin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Sigurður Rúnar Ásgeirsson, matreiðslumaður á Víni og skel, þræðir hráefni á grillspjót. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GRILLSPJÓT
hlýri
hörpuskel
grænskel
mangó
ananas
tómatur
ferskur maís
basil
rósmarínspjót
Salt, pipar og hvítlauksolía.
Þræðið hráefnið á rósmaríns-
pjótin. Berið hvítlauksolíuna á
og kryddið með salti og pipar.