Fréttablaðið - 17.07.2007, Síða 4
Iðnaðarráðherra
hefur vísað frá öllum umsóknum
um rannsóknarleyfi sem lágu
fyrir í ráðuneytinu. Elsta umsókn-
in um að rannsaka virkjanakosti
var frá árinu 2000.
Ákvörðunin er að sögn ráðu-
neytisins vegna ákvæðis í sátt-
mála ríkisstjórnarinnar um að
ekki verði farið inn á óröskuð
svæði áður en rammaáætlun um
náttúruvernd liggur fyrir árið
2009.
„Þetta eru óröskuð svæði sem
eru umdeild,“ segir Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra. „Til
að enginn þyrfti að vaða í villu og
svima um afstöðu iðnaðarráðherra
ákvað ég að vísa þeim öllum frá.“
Össur segir Alþingi þurfa að
samþykkja ef veita eigi ný rann-
sóknar- eða nýtingaleyfi. Hann
muni þó ekki styðja slíkt á þingi.
„Þessi ákvörðun mun örugglega
ekki auðvelda stóriðjuframkvæmd-
ir,“ segir Össur. „Hins vegar er ég
einfaldlega ekki klár á því með
hvaða hætti hún kann að hafa áhrif
á einstaka framkvæmdir.“
„Það er ekkert á
stefnuskrá þessa meirihluta að
fara að leyfa millilandaflug frá
Reykjavíkurflugvelli, sérstaklega
þegar framtíð flugvallarins er í
fullkominni óvissu,“ segir Jón
Kristinn Snæhólm, aðstoðarmað-
ur borgarstjóra, um hugmynd Ice-
land Express (IE) þessa efnis.
Slíkt leyfi þýddi að lofa þyrfti
Icelandair, British Airways og
fleiri að gera hið sama. „Við þurf-
um auðvitað að gæta jafnræðis-
sjónarmiða í þeim efnum,“ segir
hann. „Og þá yrðu borgarar
Reykjavíkur endanlega brjálaðir,
ef hér væru risaþotur að taka á
loft og lenda á hálftíma fresti.“
Forsvarsmenn IE sendu Flug-
stoðum ohf. erindi í lok síðasta
mánaðar og báðu um að fá að reisa
6.500 fermetra flugstöð við
Reykjavíkurflugvöll. Þannig gætu
þeir komið á samkeppni í innan-
landsflugi, auk áðurnefnds milli-
landaflugs.
Jón telur útilokað að IE fái
umræddar lóðir, enda sé búið að
eyrnamerkja þær og úthluta
öðrum fyrirtækjum. „Þessi ágæti
forstjóri IE leyfir sér að setja
[flugstöðina] inn á miðja lóð
Háskóla Reykjavíkur, sú tillaga
dæmir sig nú sjálf,“ segir hann.
Erindi IE hafi ekki einu sinni
borist formlega inn á borð borgar-
stjórnar og því sé enginn grund-
völlur til að ræða það til að byrja
með. Ekki sé nóg að senda Flug-
stoðum, sem reka Reykjavíkur-
flugvöll, erindi til að fá formlega
afgreiðslu borgaryfirvalda.
Matthías Imsland, forstjóri IE,
sagðist í gær engin viðbrögð hafa
fengið við erindi sínu, en ekki náð-
ist í hann aftur eftir samtalið við
Jón Kristin.
„Flugstoðir lögðu áherslu á að
fá okkur inn í þessa samgöngu-
miðstöð og lofuðu okkur einhverri
bráðabirgðalausn þangað til, en
við höfum ekki heyrt neitt meira,“
sagði Matthías. Samgöngumiðstöð-
in væri þó alltof lítil, eða jafnstór og
sú flugstöð sem IE vill reisa.
Matthías sagðist reikna með svör-
um frá borginni innan skamms. „Ég
bara bíð eftir svari. Stjórnsýsla
hlýtur að virka þannig að menn
svari innan ákveðins tíma.“
Upplýsingafulltrúi Flugstoða,
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir,
segir að unnið sé að því að finna
lausn fyrir IE þar til samgöngu-
miðstöð rísi árið 2009.
Framtíð flugvallar í
fullkominni óvissu
Núverandi meirihluti stefnir ekki að millilandaflugi um Reykjavíkurflugvöll,
segir aðstoðarmaður borgarstjóra. Hann furðar sig á hugmyndum um flugstöð
á lóð HR. Forstjóri Iceland Express hafði engin viðbrögð fengið frá borginni.
Ísraelsk stjórnvöld
munu sleppa 250 palestínskum
föngum úr fangelsi á föstudag-
inn. Ehud
Olmert,
forsætisráð-
herra Ísraels,
greindi
Mahmoud
Abbas, forseta
Palestínu, frá
þessu á fundi
þeirra í
Jerúsalem í
gær.
Flestir þeirra
sem fá frelsið
eru liðsmenn Fatah og afgangur-
inn frá minni hópum. Engum
Hamas-liðum verður sleppt.
Ísraelsk stjórnvöld hafa
undanfarið unnið að því að
styrkja stöðu Abbas og Fatah-
hreyfingar hans í Palestínu eftir
að Hamas-samtökin lögðu undir
sig Gaza-ströndina. Í kjölfarið
myndaði Abbas nýja ríkisstjórn
án aðkomu Hamas.
Olmert og Abbas munu funda
á ný eftir tvær vikur.
Palestínskum
föngum sleppt
Ekki er nóg að halda
grunuðum hryðjuverkamönnum í
28 daga, sem er hámarkslengd
gæsluvarðhalds án ákæru, að
mati helsta ráðgjafa breskra
stjórnvalda í hryðjuverkalögum,
Carlile lávarðar.
Fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, Tony Blair, reyndi að
fá í gegn 90 daga hámarkslengd
gæsluvarðhalds en þingið
minnkaði það niður í 28 daga.
Carlile lávarður sagði jafnframt
að dómarar en ekki þing ættu að
ákvarða hámarkslengd varðhalds.
28 daga varð-
hald ekki nóg
Enn á ný mælast Íslend-
ingar í hópi hamingjusömustu
þjóða heims. Samkvæmt evrópska
hamingjukvarðanum, svonefndum
Happy Planet Index, ríkir hvergi
meiri hamingja í Evrópulöndum en
einmitt hér á landi. Bresk dagblöð
skýrðu frá þessu í gær.
Kvarðinn er byggður á þremur
þáttum, nefnilega ævilengd,
lífsánægju og útblæstri gróður-
húsalofttegunda. Íslendingar
lenda í þriðja sæti þegar spurt er
um tvo fyrstu þættina, en skýtur
hinum Evrópuþjóðunum ref fyrir
rass og lendir í efsta sæti þegar
hreina loftið hér er tekið með í
reikninginn.
Hreina loftið
gerir útslagið
Fimm íslensk
fiskiskip skiluðu aflaverðmæti
fyrir rúmlega milljarð króna
hvert á síðasta ári. Þetta sýnir
úttekt Fiskifrétta úr gögnum
Hagstofu Íslands. Þrjú skipanna
eru frystitogarar og tvö vinnslu-
skip á uppsjávarveiðum.
Það var Hákon EA sem var með
mesta verðmætið, eða 1.079
milljónir króna. Arnar HU var
með mesta verðmæti frystitogara
en Þór HF, Höfrungur III AK og
Engey skiluðu einnig svipuðu
verðmæti. Heildaraflaverðmæti
íslenskra skipa á árinu 2006 var
76 milljarðar króna.
Fimm skip fóru
yfir milljarðinn
Tilvalið í ferðalagið
Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs!
Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is