Fréttablaðið - 17.07.2007, Page 6
Hentugt við grillið
einnota borðbúnaður á tilboðsverði
R
V
62
38
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Snæbjörn Árnason,
sölumaður hjá RV
Tilboðið gildir út júlí 2007
eða meðan birgðir endast.
296 kr.
Pappadiskar 23cm,
50stk (20ík)
446 kr.
Pappadiskar 18cm,
100stk (10ík)
356 kr.
Pappadiskar djúpir 19cm,
50stk (20ík)
Á tilboði í
júlí 2007
Plasthnífapör, pappadiskar
og plastglös
Lórítín®
– Kröftugt ofnæmislyf
Notkun:
Skömmtun:
Frábendingar: Varúðarreglur:
Aukaverkanir:
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
9
0
2
5
-
A
c
ta
v
is
7
0
4
0
0
3
Fylgist þú með fréttum af fræga
fólkinu?
Ertu ánægð(ur) með mótmæla-
aðgerðir Saving Iceland?
Dómari í Wales kvað
upp þann úrskurð í gær að ekki
skyldi slátra nautinu Shambo,
sem er heilagt dýr í hindúa-
klaustrinu Skanda Vale í Wales.
Nautið hefur greinst með
nautaberkla og átti að slátra því
af öryggisástæðum svo smit
bærist hvorki í menn né önnur
dýr.
Samkvæmt reglum um
dýrahald í Wales ber að slátra
berklaveikum nautum, en
hindúarnir segja nautið heilagt í
sínum huga og sé það veikt eigi
að hjúkra því. Með því að slátra
dýrinu sé verið að brjóta á rétti
þeirra til að iðka trú sína.
Heilagt naut
hlýtur náðun
„Við höfum verið hérna síðan
á föstudag og tökum bara hvern
dag fyrir sig,“ segir Kristján
Theodórsson frá Akureyri. Hann
og kona hans, Brynja Þorsteins-
dóttir, hafa dvalist á tjaldsvæðinu í
Laugardal ásamt fjölskyldu sinni
síðan á föstudag. „Við erum tíu í
heildina, afinn og amman og svo
þrjú af átta börnum okkar með
sínar fjölskyldur.“ Stórfjölskyldan
var að vonum ánægð með góða
veðrið og var úti í sólinni þegar
blaðamann bar að garði.
Kristján segir töluvert af Íslend-
ingum vera á svæðinu. Ein skýr-
ingin á því sé að Símamót stúlkna
í knattspyrnu var haldið í Kópa-
vogi um helgina. „Það var einn
fjölskyldumeðlimur okkar að
keppa í því. Hér voru fleiri sem
fylgdust með mótinu og hafa fram-
lengt dvölina út af góða veðrinu.“
Aðspurð sagði keppnismanneskj-
an Anna Helena Hauksdóttir að
mótið hefði gengið vel, þær Þórs-
stelpur hefðu lent í fimmta sæti.
Samkvæmt upplýsingum frá
tjaldsvæðinu er nokkuð um að
Íslendingar leggi leið sína þangað.
Kristján segir að þau hjónin hafi
verið á tjaldsvæðinu í nokkra daga
í fyrra og hafi þá uppgötvað hversu
góð aðstaða og þægilegt væri í
Laugardalnum.
„Ég reyni að skilja
þetta en það er svo erfitt því hann
vildi aldrei neitt með hana hafa og
er ekki einu sinni með hana,“ segir
Dagbjört Rós Halldórsdóttir, ung
móðir sem ekki hefur fengið að sjá
dóttur sína, sem nú er sautján mán-
aða, í um níu víkur.
Dagbjört fluttist með eiginmanni
sínum til Bandaríkjanna fyrir ári.
Henni var vísað úr landi fyrir
tveimur mánuðum en hún hafði þá
ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt
þar sem maður hennar hafði neitað
að skrifa undir. Dagbjörtu var vísað
úr landi ásamt syni sínum sem hún
átti fyrir. Litla dóttir hennar varð
eftir ytra. Dagbjört segir hana
dveljast hjá móður eiginmanns
síns. „Ég fékk ekki að taka neinar
myndir af henni með mér,“ segir
Dagbjört. Dagbjört kveðst hafa séð
fyrstu skref dóttur sinnar á vef-
síðu.
Bandaríska sendiráðið neitar
Dagbjörtu um vegabréfsáritun til
að fara til Bandaríkjanna til að
sækja rétt sinn. Í fréttum Stöðvar 2
í gær kom fram Utanríkisráðuneyt-
ið aðstoði Dagbjörtu, með því að
veita ráðgjöf. Hún verði aðstoðuð
við að finna lögfræðing í Banda-
ríkjunum. Kostnaðurinn við það
geti þó hlaupið á tugum milljóna.
Það verði hún að greiða sjálf. „Mér
finnst erfiðast að reyna útskýra
þetta fyrir bróður hennar sem
saknar litlu systur svo sárt,“ segir
Dagbjört.
Fær ekki að sjá dóttur sína
Engin krafa hefur komið
frá heimsminjaskrá UNESCO um
að barrtré á Þingvöllum verði
felld, en í áætlun um skógarhögg
og grisjun á Þingvöllum frá 2001
kemur fram að fella eigi trén og
hlúa að gróðri sem eigi sér lengri
sögu á Þingvöllum.
Þingvellir voru skráðir á heims-
minjaskrá UNESCO árið 2004, í
kjölfar þess að íslensk stjórnvöld
sóttu um þá upphefð Þingvöllum
til handa. Í umsókninni, sem sam-
þykkt var árið 2003, kemur ekkert
fram um að barrtrén eigi að víkja,
aðeins að þau hafi verið grisjuð og
því verði haldið áfram.
„[Árið] 1999 gáfu Þingvalla-
nefnd og Skógrækt ríkisins út
samstarfsyfirlýsingu um eftirlit
og umhirðu skógarins í þjóðgarð-
inum á Þingvöllum. Í samræmi við
hana gerðu starfsmenn þjóðgarðs-
ins og skógræktarinnar áætlun
árið 2001 um það, hvernig skógar-
höggi og grisjun yrði háttað,“
segir Björn Bjarnason, formaður
Þingvallanefndar, í tölvubréfi til
Fréttablaðsins.
„Í áætluninni er það markmið
meðal annars sett, að barrtré í
þinghelginni víki en hlúð skuli að
gróðri, sem á sér lengri sögu á
Þingvöllum. Þetta er gert í því
skyni að varðveita hinn forna
þingstað sem opið sögusvið fyrir
komandi kynslóðir. Sama á við um
nokkra aðra sögufræga staði innan
þjóðgarðsins, meðal annars
Ölkofradal,“ segir Björn.
„Að mati þeirra, sem gerst
þekkja til innan þjóðgarðsins, er
með öllu ástæðulaust að telja að
vegið sé að þjóðgarðinum með
þeim markmiðum, sem hér er lýst
eða áætlunum á grundvelli þeirra.
Hitt er einnig fráleitt að kenna
þessa rækt við þjóðgarðinn við
lögbrot,“ segir Björn.
Sigurður K. Oddsson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum, staðfestir að
UNESCO hafi ekki gert neinar
kröfur um að barrtrén á Þingvöll-
um verði felld. Hugsunin á bak við
þjóðgarða væri hinsvegar sú að
leitast við að varðveita svæðin í
sem upprunalegastri mynd. Stefn-
an sé að Þingvellir verði sem næst
því að vera eins og þeir voru við
landnám, löngu áður en barrtré
festu rætur hér á landi.
Ekki verða öll barrtré í þing-
helginni felld. Furulundinum sem
plantað var 1899, sem markaði
upphaf skipulegrar skógræktar á
Íslandi, verður leyft að standa,
enda er hann friðaður með öllu.
Talsverður birkiskógur er á Þing-
völlum og mögulegt að plantað
verði samskonar birkitrjám til að
stækka þann skóg, segir Sigurð-
ur.
Skógarhöggið ekki
að kröfu UNESCO
Fram kemur í áætlun frá 2001 að fella eigi barrtré innan þinghelgi á Þingvöll-
um. Engin krafa hefur komið frá UNESCO um að trén verði felld þó Þingvellir
séu á heimsminjaskrá. Fráleitt að kenna skógarhögg við lögbrot segir ráðherra.