Fréttablaðið - 17.07.2007, Page 12
„Hún sökk einhverja
metra niður en það er erfitt að átta
sig á hversu djúpt. Allavega náði
drullan upp að miðju stjórnhúsi
öðrum megin,“ segir Björn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækisins Hóls.
Beltagrafa í eigu Hóls sökk í mýri
þegar hún var við vinnu á vegum
Orkuveitu Húsavíkur nálægt
vatnsbóli bæjarins.
Að sögn Björns voru hans menn
upp undir hálfan sólarhring að
moka gröfuna upp með annari
gröfu. „Það fór allur dagurinn
eftir í að þrífa gröfuna. Stjórnhúsið
var orðið fullt af drullu,“ segir
hann. Björn segir að það geti
reynst erfitt að ná öllum aurnum
burt.
„Það leynist alltaf einhver drulla
sem erfitt er að ná burt. Hún
harðnar síðan og slöngur og annað
nuddast utan í. Það getur orðið
hvimleitt,“ segir hann.
„Þetta gerist stundum í þessum
bransa. Þessi grafa fór til dæmis
nokkrum dögum síðar út í sveit til
að ná upp gröfu sem sökk einnig í
mýri.“
Sökk upp að miðju stjórnhúsi
Pólsku stjórnmála-
flokkarnir Sjálfsvörn og Bandalag
pólskra fjölskyldna hafa ákveðið
að sameinast og nefna sameinaða
flokkinn Bandalag og sjálfsvörn.
Báðir flokkarnir eru í ríkisstjórn
ásamt þriðja flokknum, Lög og
réttlæti, sem er mun stærri og öfl-
ugri flokkur en þeir báðir til sam-
ans.
Í byrjun síðustu viku rak Jaros-
law Kaczynski forsætisráðherra,
sem jafnframt er leiðtogi Laga og
réttlætis, Andrzej Lepper úr ríkis-
stjórninni, en Lepper hafði verið
bæði landbúnaðarráðherra og
aðstoðarforsætisráðherra.
Mikil umræða hefur farið fram
innan Sjálfsvarnarflokks Leppers
hvort flokkurinn ætti að segja sig
úr stjórninni, sem hefði þýtt að
stjórnin væri fallin og boða þyrfti
til kosninga, en Lepper tók í gær
af skarið um að flokkurinn væri
áfram í stjórninni, en að litlu
flokkarnir tveir myndu jafnframt
sameinast og þannig styrkja stöðu
sína gagnvart flokki
forsætisráðherrans.
Lepper var rekinn vegna
ásakana um spillingu, en sjálfur
segist hann alsaklaus.
Sameinaði flokkurinn leggur
áherslu á að Pólland gefi ekkert
eftir í ágreiningsmálum við
Evrópusambandið.
Tveir litlir flokkar sameinast
Bifhjólamenn úr Sniglun-
um og bílaeigendur ætla að koma
saman á morgun til að árétta,
sérstaklega við unga ökumenn, að
aka hægar og nota bílbeltin.
Áætlað er að hittast hjá KFC í
Mosfellsbæ klukkan 18.30 og aka
að Gljúfrasteini í Mosfellsdal.
Guðmundur Ari Jensson snigill
skipuleggur þennan viðburð.
„Ég þekkti þann sem lést í
umferðarslysinu um þarsíðustu
helgi og datt þetta í hug,“ sagði
Guðmundur, „Haft hefur verið
samband við bílaklúbba og við
skorum á alla til að mæta. Við
munum aka með hvíta borða um
handlegginn.“
Mótmæla
hraðakstri
Alþingi samþykkti 13.
júní síðastliðinn þingsályktunar-
tillögu um
aðgerðaáætlun til
fjögurra ára til að
styrkja stöðu
barna og ung-
menna. Í þingsá-
lyktunartillögunni
er kveðið á um að
á vettvangi
Stjórnarráðsins
skuli skipaður
samráðshópur fulltrúa félags-
mála, heilbrigðis- og trygginga-
mála, dóms- og kirkjumála,
fjármála- og menntamálaráðu-
neyta.
Meginhlutverk samráðshópsins
er að stuðla að samræmingu og
eftirfylgni aðgerða í þágu barna
og barnafjölskyldna. Formaður
hópsins er Bragi Guðbrandsson.
Samráðshópur
skipaður