Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 17
Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur heldur
námskeiðið Sæl og sátt börn, fjölskyldan í jafn-
vægi.
„Ég kenni foreldrum og uppalendum að uppgötva
eigin gildi og koma þeim á framfæri til barna,“ segir
Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Live-Navigation, um námskeiðið Sæl
og sátt börn, fjölskyldan í jafnvægi, sem haldið verð-
ur 15. september næstkomandi á Hótel Nordica.
„Það er alls ekki verið að segja fólki hvaða gildi séu
rétt, þar sem þau geta verið svo mismunandi eftir
fjölskyldum, og það er reyndar mjög mikilvægt að
fólk átti sig á því,“ segir Ágústína, sem hafði áður
innleitt námskeiðið SOS-hjálp fyrir foreldra og hald-
ið í tvö ár áður en Félagsvísindastofnun keypti það af
fyrirtæki hennar árið 2001. SOS-hjálp fjallaði um
uppeldistækni og atferlismótun við uppeldi barna og
er Sæl og sátt börn nýr vinkyll á þá umræðu.
„Áhersla er á fjölskyldugildin,“ segir Ágústína.
„Að kenna fullorðnum að láta til sín taka, svo þeir láti
ekki umhverfið móta börnin. Þess vegna er gott að
uppfræða börn um umhverfið. Til dæmis með því að
fara í skoðunarferð um nágrennið og gera það spenn-
andi með því að flétta inn í fróðleik eins og sögu,
landa- og umhverfisfræði.
Slíkt er gott mótvægi við allar upplýsingarnar sem
börn þurfa að takast á við án þess að búa yfir þroska
til þess að vinna úr þeim á viðeigandi hátt. Eins og í
tölvuleikjum þar sem lagt er upp úr einstaklings-
hyggju, karlmennsku og töffaraheitum, án þess að
börnin skilji út á hvað slagsmálin ganga.“
Þess skal getið að þótt námskeiðið fjalli um börn
eru þau ekki fyrir börn. Ágústína segist hins vegar til
í endurskoða það, sé vilji fyrir hendi innan foreldra-
hópsins og sé þá hægt að vinna með börnin í samráði
við foreldra þeirra.
Að uppgötva eigin gildi
og koma þeim áleiðisEnga tónlist í þrumuveðri
Greipávöxtur getur valdið
brjóstakrabbameini
Einn greipávöxtur á dag getur
aukið líkurnar á brjósta-
krabbameini.
Með því að borða einn greip-
ávöxt á dag aukast líkurnar á
brjóstakrabbameini um
næstum þriðjung
samkvæmt nýrri
rannsókn sem unnin
var í Bandaríkjun-
um við háskólann í
Suður-Kaliforníu og
Hawaii. Rannsóknin
náði til 50 þúsund kvenna
á breytingaraldrinum og sýnir
að aðeins einn fjórði af greip-
ávextinum jók líkurnar um allt
að 30 prósent.
Talið er að ávöxturinn auki
estrógenmagn líkamans, en það
er hormón sem talið er tengjast
hættunni á brjósta-
krabbameini. Greint
var frá þessu í nýj-
asta eintakinu af
British Journal
of Cancer.
Vísinda-
mennirnir
sem unnu
rannsóknina
ásamt öðrum
sérfræðingum voru sammála
um að þörf væri á frekari rann-
sóknum.
Í nýjasta tímariti New Eng-
land Journal of Medicine er
líkum að því leitt að mp3-
spilarar geti verið hættulegir
í þrumuveðri.
Læknar frá Vancouver í Kanada
hafa varað fólk við því að fara út
með mp3-spilara í þrumuveður í
nýjasta hefti læknaritsins New
England Journal of Medicine.
Læknarnir rekja í bréfi til
blaðsins mál ungs manns sem
fékk eldingu í sig þegar hann fór
út að skokka í þrumuveðri. Mað-
urinn var með iPod og varð
blanda svita hans og leiðni spil-
arans til þess að eldingu sló niður
í manninn.
Maðurinn brenndist illa á
eyrum, bringu og vinstri fótlegg,
eða á öllum þeim stöðum sem
spilarinn snerti. Eldingin
sprengdi einnig hljóðhimnur
mannsins.
Læknarnir segja að raftæki
eins og mp3-spilarar einir saman
laði ekki að sér eldingar en þegar
vökva og svita sé blandað í málið
geti þeir verið varhugaverðir.
Þeir beina því þeim tilmælum til
fólks að skilja raftækin eftir
heima í þrumuveðrum.