Fréttablaðið - 17.07.2007, Side 19
Verslunin Börn náttúrunnar við
Skólavörðustíg er um margt
ólík öðrum leikfangaverslun-
um. Hjónin Sigrún Halldóra
Gunnarsdóttir og John Tóm-
asson selja þar leikföng sem
eru vistvæn og um leið örvandi
fyrir ímyndunarafl barnsins.
„Við horfum til þess ímyndunar-
afls sem við fæðumst öll með og
það má segja að sextíu til sjötíu
prósent af leikföngunum í búðinni
séu nærandi fyrir þennan þátt,“
segir Sigrún og á þar við að vekja
ímyndunarafl barnsins og viðhalda
því. „Ég kalla leikföngin opin
leikföng því þau geta breyst í
hest eða hvað sem á við í leik
barnsins hverju sinni,“ bætir
hún við.
Hitt sérkennið á búðinni
segir Sigrún vera að leik-
föngin þar eru umhverfis-
væn. „Þau eru öll náttúru-
gerð og brotna upp í
náttúrunni. Líklega eru
um níutíu prósent leikfang-
anna í búðinni umhverfisvæn.“
Sigrún segist hvetja foreldra til
að búa til leikföngin sjálfir ef þeir
hafi tök á því í stað þess að
koma og versla hjá
henni. „Barnið upplifir
þannig hvaðan leikfangið kemur
og hvernig það er búið til þannig að
það fær meiri umhyggju og virð-
ingu fyrir leikfanginu,“ segir hún.
Hugmyndina á bak við búð-
ina segir Sigrún hafa vakn-
að þegar hún var í uppeld-
isfræðinámi þar sem hún
lærði að verða Waldorf-
uppeldisfræðikennari. „Í
stuttu máli snýst Wald-
orf-stefnan um að í
grunninn er litið á barnið
sem þríþætta mann-
eskju sem þarf að
mennta á þríþætt-
an máta. Í gegn-
um hugann,
hjartað eða til-
finningar og
höndina. Það er
því ekki nóg að
kenna barninu vits-
munalega heldur verð-
um við líka að kenna því
með því að gera, finna, þreifa á og
fleira þannig að það er mjög mikið
um handverk, leiki, takt og fleira
sem huga þarf að í uppeldinu,“
segir Sigrún sem lagði upp með
slíka hugsjón þegar þau hjónin
opnuðu verslunina fyrir um einu
og hálfu ári síðan.
Umhverfisvæn
og opin leikföng
topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722
Allar þessar ólíku vörur eiga það sameiginlegt að fást hjá
topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið