Fréttablaðið - 17.07.2007, Qupperneq 24
17. JÚLÍ 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 fréttablaðið gott á grillið
Pálmi Jónsson, aðstoðaryfir-
kokkur á Vox, telur léttar sósur
henta best með grillmat.
„Sósur eru gríðarlega mikilvægur
þáttur þegar á að grilla, þar sem
þær mýkja matinn og kitla bragð-
laukana,“ segir Pálmi Jónsson, að-
stoðaryfirkokkur á veitingastaðn-
um Vox, og bætir við að sósur séu
núorðið oft léttari heldur en þekkt-
ist áður.
„Ástæðuna má rekja til þess að
í gamla daga hætti Íslendingum
gjarnan til að ofgrilla mat, sem
varð fyrir vikið alltof þurr. Síðan
drekktu þeir matnum með þykk-
um sósum,“ útskýrir hann. „Í dag
grillar fólk kjötið ekki eins mikið
og sósurnar eru hafðar annað-
hvort léttar eða hreinlega taldar
óþarfar.“
Pálmi segir úrval léttra sósa gott
á Vox, þar sem meðal annars er
boðið upp á hundasúru- og pipar-
sósur. „Þetta eru tvær léttar créme
fraise sósur, sem minna á salat-
dressing, fara vel saman og henta
nánast vel með öllu: nýveiddri
bleikju, nautasteik eða lambi og er
gott að bera fram ásamt grilluðu
grænmeti og salati.“
Pálmi segir kryddbragðið af
ljósri paprikusósunni engu lagi
líkt og grænleit hundasúrusós-
an sé afar einföld í gerð þar sem
meginuppistaðan er hundasúrur,
sem lítið mál sé að komast yfir.
Vaxi þetta bragðgóða blaðgræn-
meti ekki úti í garði, megi alltaf
nálgast það úti í búð og þá undir
heitinu sorrel.
Meðfylgjandi eru uppskriftir
að sósunum tveimur.
roald@frettabladid.is
Allt klappað og klárt, sósurnar tilbúnar
ásamt öðru meðlæti.
Galdurinn á bak við sósuna
Hundasúrusósan er einföld í gerð,
meðal annars þar sem meginuppistaðan
er hundasúrur.
Paprikusósan er mjög bragðgóð að
sögn Pálma.
Pálmi að störfum í eldhúsinu á Vox. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON
silico
l
ER
MAGINN
VANDAMÁL?
Silicol hjálpar!
Fæst í öllum apótekum
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
F
A
B
R
I
K
A
N
HUNDASÚRUSÓSA:
1 dl 10% sýrður rjómi
2 dl 18% sýrður rjómi
1 msk. majones
salt eða pipar
100 gr hundasúrur
Öllu hráefnið er blandað saman,
sett í blandara og maukað. Smakkið
til með salt eða pipar og majónesi
þar til réttu sýrustigi er náð.
PAPRIKUSÓSA:
3 rauðar paprikur
paprikukrydd
3 dl sýrður rjómi 18%
1 msk. majónes
salt eða pipar og tabasco-sósa
Paprika er brennd á grilli. Hýði
er síðan skolað eða skrúbbað af.
Paprikan er því næst skorin í litla
teninga. Sýrðum rjóma, majónesi og
papriku er blandað saman. Smakkað
til með salt eða pipar, paprikudufti
og tabasco.
Pálmi segir gott að einbeita sér vel og vandlega að öllum undirbúningi
og hráefnisvali þegar grillað er. Betra sé að hafa færri og betri rétti á
grillinu svo tími gefist til að sinna gestum og hvítvínsglasinu.
Auglýsingasími
– Mest lesið