Fréttablaðið - 17.07.2007, Síða 37
We Are The Night er sjötta plata
Chemical Brothers, en hljóm-
sveitin hefur þegar sýnt meira
úthald heldur en flestar danstón-
listarsveitirnar sem komu fram
á tíunda áratugnum. Eitt af því
sem efnafræðibræðurnir Tom
Rowlands og Ed Simons kunna er
að velja sér samstarfsmenn til að
auka fjölbreytnina á plötunum
þeirra. Þeir hafa áður gert góða
hluti með gestum eins og Bobby
Gillespie, Bernard Sumner, Noel
Gallagher, Q-Tip og Beth Orton,
en á We Are The Night eru gesta-
innkomurnar sérstaklega vel
heppnaðar. Kanadíska beat-
skáldið Bill Bissett les texta frá
1967 yfir titillagið, Willy Mason
syngur í laginu Battle Scars, Ali
Love í hinu bráðskemmtilega Do
It Again, Jamie úr Klaxons syng-
ur í All Rights Reversed og Tim
Smith úr eðalsveitinni Midlake
syngur í hinu frábæra popplagi
The Pills Won ‘t Help You Now
sem lokar plötunni. Þá er ótalið
framlag rapparans Fatlip úr LA-
sveitinni The Pharcyde, en hann
rappar í laginu The Salmon
Dance en í því lagi fáum við að
heyra söguna af hinum eitur-
hressa og dansglaða laxi Samma.
Lag sem kemur mér og tveggja
ára syni mínum báðum í mikið
stuð.
We Are The Night er léttasta
og poppaðasta plata The Chemi-
cal Brothers til þessa. Þeir sem
voru að vonast eftir nýrri Exit
Planet Dust verða kannski fyrir
vonbrigðum. We Are The Night er
sumarplata. Á henni eru bæði
laufléttir hip-hop skotnir dans-
smellir og nokkur af bestu indí-
popplögum sveitarinnar til þessa.
Á heildina litið fín plata sem
virkar vel í sólinni. Hún jafnast
ekki á meistaraverkin Exit Planet
Dust eða Dig Your Own Hole en
hún sýnir að bræðurnir kunna
enn að búa til plötur.
Bræðurnir í poppgír
Hljómsveitin Stuðkompaní-
ið hefur gefið út plötuna
2X Tólf sem er samsett úr
tveimur tólf tommu vínil-
plötum sveitarinnar sem
komu út 1987 og 1988, auk
jólalagsins sígilda Jóla-
stund.
Stuðkompaníið steig fram í sviðs-
ljósið eftir að hafa unnið Músíktil-
raunir árið 1987.
Sveitin naut
töluverðra
vinsælda
og voru
lög á borð
við Tungl-
skins-
dansinn,
Þegar allt
er
orðið hljótt og Framadraumar
mikið spiluð í útvarpinu. „Ég fæ
símtal um daginn þar sem Sena
spyr hvort ég geti gert plötukover
fyrir þá,“ segir söngvarinn Karl
Örvarsson, sem starfar sem graf-
ískur hönnuður. „Það væri fyrir
gamla hljómsveit sem heitir Stuð-
kompaníið,“ segir hann og hlær.
Karl hófst vitaskuld þegar handa
við gerð umslagsins. Skartar það
forláta hárblásara sem hann segir
táknrænan fyrir hljómsveitina.
„Hárblásarinn var vel við hæfi.
Ég held maður hafi aldrei farið
óblásinn á svið. Þetta er eins konar
stuðblásari.“
Platan er gefin út í tilefni þess að
tuttugu ár eru liðin frá útkomu
fyrstu tólf tommu Stuðkompanís-
ins, Skýjum ofar. „Það hefði hent-
að mér miklu betur ef þetta hefði
verið gert í fyrra þegar við vorum
með „kombakk“, þar sem við mið-
uðum við stofnun sveitarinn-
ar. Við héldum það heima á
Akureyri. Bandið var alveg
frábært og menn orðnir kannski
flinkari hljóðfæraleikarar. Það má
kannski segja að um leið og ákveð-
inn galsi og neisti fór var ákveðin
fágun komin í staðinn. Svona tut-
tugu árum síðar held ég samt að
við höfum náð að koma galsanum
nokkuð vel til skila,“ segir Karl.
Hann viðurkennir að skiptar skoð-
anir hafi verið um Stuðkompaníið
á sínum tíma. „Ég taldi mig hafa
fengið ansi óvægna gagnrýni í
gamla daga. Mig minnir að það
hafi verið Dr. Gunni sem skrifaði
að hljómsveitin væri fullkomlega
ömurleg og söngvarinn léti tilfinn-
ingarnar hlaupa með sig í gönur.
Núna tuttugu árum seinna get ég
skilið þetta en ég held að flestum
þyki samt vænt um þennan tón.“
Karl segir ekkert ákveðið með
annað „kombakk“ Stuðkompanís-
ins, enda er bróðir hans Atli
búsettur í Los Angeles þar sem
hann semur kvikmyndatónlist. „Ef
Atli myndi óvænt birtast á landinu
myndum við örugglega hittast og
taka lagið. Þjóðin á skilið að heyra
í Stuðkompaníinu einu sinni enn.“
Eigandi bandarísks listagallerís
hefur höfðað mál gegn leikstjór-
anum Steven Spielberg vegna mál-
verks sem hann keypti fyrir átján
árum. Spielberg keypti verkið í
góðri trú um að allt væri með
felldu en komst að því fyrr á árinu
að það væri á lista bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, yfir eft-
irlýstustu málverk landsins.
Málverkið nefnist Rússneska
skólastofan og er eftir Bandaríkja-
manninn Norman Rockwell. Hefur
Spielberg safnað verkum eftir
hann í gegnum árin en mun vænt-
anlega hugsa sig tvisvar um næst
þegar hann kaupir verk eftir hann.
Rússnesku skólastofunni var
stolið úr galleríi í Missouri fyrir
34 árum. Er verkið metið á um 42
milljónir króna. Auk þess að höfða
mál gegn Spielberg hefur eigandi
gallerísins höfðað mál gegn FBI
og kveðst hann vera lögmætur
eigandi verksins. Telur hann að
FBI hafi leyft Spielberg að eiga
verkið þrátt fyrir að stofnunin
vissi að það væri stolið.
Með stolið málverk
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
10
0
06
/0
7
TNF Tadpole
2 manna göngutjald
Þyngd: 2,13 kg
Tjaldalandi
- við Glæsibæ
Tjaldaúrvalið er í
Verð:
32.990 kr.
Grillveislur
Steikarhlaðborð
Aðeins það besta
Auglýsingasími
– Mest lesið