Fréttablaðið - 17.07.2007, Síða 42
Landsbankadeild karla
1. deild karla
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Komdu við í næstu Vodafone verslun og nældu þér í gæðabolta.
Almennt verð 1.990 kr.
Þú færð bestu kjörin með því að vera með allt hjá okkur í Og1.
Meistaradeildarboltar á aðeins 990 kr.
fyrir Og1 viðskiptavini.
Hittu í mark
Viljum alls ekki missa Valdimar
Ólafur Stefánsson var
valinn í lið ársins í spænsku úrvals-
deildinni í handbolta og er einn af
fjórum leikmönnum meistaraliðs
Ciudad Real sem eru í sjö manna
liðinu. Kosningin fór fram á heima-
síðu deildarinnar, www.asobal.es.
Hinir leikmenn Ciudad Real í
liðinu eru markvörðurinn Arpad
Sterbik, línumaðurinn Rolando
Urios og vinstri skyttan Alberto
Entrerríos. Ólafur fékk 34,8 pró-
sent atkvæða í sína stöðu en annar
var Eric Gull hjá BM. Valladolid.
Línumaðurinn Urios fékk bestu
kosninguna en 56,5 prósent kusu
hann.
Aðrir í úrvalsliðinu eru Juanín
García, vinstri hornamaður Barce-
lona, Ivano Balic leikstjórnandi
Portland San Antonio og Albert
Rocas hornamaður Portland San
Antonio. Besti þjálfarinn var val-
inn Manolo Cadenas, þjálfari Sig-
fúsar Sigurðssonar hjá Ademar
León. Ólafur varð í 2. sæti í kosn-
ingunni í fyrra en hann er í liði árs-
ins í fyrsta sinn síðan tímabilið
2003 til 2004 en þann vetur vann
Ciudad Real einnig titilinn.
Ólafur var með einstaka skotn-
ýtingu í vetur en hann nýtti 109 af
143 skotum sínum sem gerir 76
prósenta nýtingu. Ólafur skorað
4,4 mörk að meðaltali í leik og átti
síðan að venju ótal stoðsendingar á
félaga sína.
Fékk 34,8 prósent atkvæða
Það verður sjálfur
forseti UEFA, Michel Platini, sem
afhendur sigurlaunin í úrslita-
keppni Evrópumóts undir 19 ára
kvenna sem hefst hér á landi á
morgun.
Þrír leikir hefjast kl. 16.00 en
fjórði leikurinn, á milli Íslands og
Noregs, hefst kl. 19.15 á Laugar-
dalsvelli. Platini verður viðstadd-
ur úrslitaleikinn og afhendir
nýbökuðum Evrópumeisturum
gullið og bikarinn.
Úrslitaleikurinn sjálfur fer
fram á Laugardalsvelli 29. júlí og
verður sýndur beint á sjónvarps-
stöðinni Eurosport.
Platini afhendir
bikarinn
Óhætt er að segja að fyrstu
tíu mínútur leiks Fylkismanna og
Breiðabliks hafi verið algerlega á
skjön við það sem síðar kom. Fylk-
ismenn byrjuðu betur og fór leik-
urinn að mestu fram á vallarhelm-
ingi Blika. Þá fannst fyrirliðanum
Arnari Grétarssyni, nóg komið og
tók leikinn í sínar hendur. Arnar
virðist aldrei þurfa fleiri en eina
snertingu til að koma boltanum á
samherja. Nokkuð sem sjaldgæft
er að sjá í efstu deild hér á landi.
Drifnir áfram af fyrirliðanum
tóku leikmenn Breiðabliks heldur
betur við sér. Sóknarkvartett liðs-
ins; Nenad Zivanovic á vinstri
vængnum, Gunnar Örn Jónsson á
þeim hægri og þeir Prince Rajcom-
ar og Kristinn Steindórsson í fram-
línunni, sköpuðu hvað eftir annað
usla í vörn Fylkismanna.
Hægir varnarmenn Fylkis áttu
ekki roð í sóknarmenn Blika. Krist-
inn og Prince leiddu miðverðina
hvað eftir annað út úr stöðunum, á
meðan Gunnar og Zivanovic léku
sér að arfaslökum bakvörðunum.
Guðni Rúnar Helgason hefur vænt-
anlega þurft aspirín í hálfleik, svo
illa fór Gunnar Örn með hann.
Gunnar Örn Jónsson skoraði
fyrsta mark leiksins á fimmtándu
mínútu, úr fyrsta markskoti Blika.
Vann knöttinn á miðsvæðinu, óð
upp völlinn, lét vaða nokkrum
metrum fyrir utan teig og hafnaði
boltinn neðst í markhorninu. Stór-
glæsilegt mark.
Blikar bættu síðan öðru marki
við á tuttugustu og annarri mínútu.
Kristinn Steindórsson ýtti þá bolt-
anum yfir línuna eftir skottilraun
Srdjan Gasic.
Áhorfendur þurftu ekki að bíða
lengi eftir þriðja markinu. Fylkis-
menn misstu boltann strax eftir að
hafa tekið miðju, Kristinn fékk
stungusendingu og afgreiddi bolt-
ann í markhornið. Þrjú núll eftir
tuttugu og þrjár mínútur og leikur-
inn svo gott sem búinn.
Síðari hálfleikur var öllu daufari
en sá fyrri. Fylkismenn gerðu tvær
breytingar í hléinu; inn komu þeir
Albert Ingason og Peter Gravesen.
Blikar spiluðu þó áfram eins og sá
sem valdið hefur, héldu boltanum
vandræðalaust gegn máttlitlum
Fylkismönnum. Kristinn Stein-
dórsson fékk nokkur tækifæri til
að ná sínu þriðja marki, en inn vildi
boltinn ekki.
Gunnar Örn Hilmarsson, var
besti maður vallarins í Árbænum í
gærkvöldi þrátt fyrir að vera að
spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði
í efstu deild. „Við höfum oft spilað
vel í sumar en munurinn liggur í
því að í kvöld nýttum við færin. Ég
var ekkert sérlega stressaður fyrir
leikinn og þegar fyrstu snerting-
arnar gengu vel, sá ég að þetta yrði
minn dagur.“
Leifur Garðarsson, þjálfari Fylk-
ismanna, var hreinskilinn í leiks-
lok „Góð lið nýta sér það þegar
andstæðingurinn er slakur. Ég sé
enga ljósa punkta í okkar liði.
Boltastrákarnir voru bestu menn
Fylkis í dag, og þeir voru fengnir
með fimm mínútna fyrirvara.“
Blikar voru frábærir í gær og
ekki veikur hlekkur í liðinu. Arnar
Grétarsson sá til þess að boltinn
gengi hratt milli manna og ungu
strákarnir í framlínunni, þeir
Kristinn og Gunnar, léku sér að
varnarmönnum Fylkismanna.
Hjá Fylki stóð ekki steinn yfir
steini. Helst að Christian Christi-
ansen í framlínunni og markvörð-
urinn Fjalar Þorgeirsson geti borið
höfuðið. Aðrir voru hreinlega ekki
með.
Breiðablik skoraði þrjú mörk á fyrstu tuttugu og þremur mínútum leiksins
gegn Fylki. Hinn sautján ára gamli Kristinn Steindórsson skortaði tvö mörk í
sínum fyrsta byrjunarliðsleik.