Fréttablaðið - 26.09.2007, Síða 8
Sveitarstjórn Gríms-
ness- og Grafningshrepps hefur
verið kærð til sýslumannsins á Sel-
fossi fyrir að stöðva ekki bygg-
ingaframkvæmdir við tvö ný
sumarhús í landi Kiðjabergs í
Grímsnesi.
Hjónin Þórdís Tómasdóttir og
Þór Ingólfsson sættu sig ekki við
nýtt deilskipulag sem í næsta
nágrenni við bústað þeirra í Kiðja-
bergi gerði ráð fyrir nýjum frí-
stundahúsum sem mættu vera allt
að 250 fermetrar og tvær hæðir.
Að sögn hjónanna telja þau frið-
helgi sína skerta og eru ósátt við
að hafa ekki fengið stækkun á
sinni lóð auk þess sem útivistar-
svæði hafi verið rýrð.
Hjónin kærðu til úrskurðar-
nefndar skipulags- og byggingar-
mála sem í júlí felldi nýja deili-
skipulagið úr gildi þar sem
sveitarstjórnin hafði ekki auglýst
breytingar á skipulaginu. Jafn-
framt felldi nefndin úr gildi bygg-
ingarleyfi sem sveitarstjórnin
hafði gefið út vegna tveggja sum-
arhúsa sem hafa verið í byggingu
frá því í fyrra. Þessi hús eru ann-
ars vegar 170 fermetrar og hins
vegar 109 fermetrar auk 18 fer-
metra geymslu. Samkvæmt gild-
andi skipulagi frá 1990 mega húsin
ekki vera yfir 60 fermetrar. Hús
Þórdísar og Þórs er tæpir 40 fer-
metrar.
Í lögum er kveðið á um að ef hús
séu reist án þess að deiliskipulag
sé fyrir hendi sé ekki hægt að
breyta skipulaginu til samræmis
við húsin nema fjarlægja þau
fyrst. Ívar Pálsson, lögmaður Þórs
og Þórdísar, hefur því krafist þess
fyrir þeirra hönd að húsin verði
rifin.
Í kæru til sýslumanns segir Ívar
að þrátt fyrir niðurstöðu úrskurð-
arnefndarinnar hafi áfram verið
unnið í húsunum tveimur. Vegna
vanrækslu starfsmanna sveitarfé-
lagsins séu hjónin tilneydd til að
kæra sveitarstjórnina til lögregl-
unnar.
Einnig krefjast hjónin þess að
sýslumannsembættið taki sjálft að
sér að stöðva framkvæmdir við
húsin tvö. Ívar segir að unnið hafi
verið í öðru húsinu í síðustu viku
og að starfsmaður byggingarfull-
trúa hafi verið á staðnum án þess
að aðhafast nokkuð.
„Umbjóðendur mínir geta í ljósi
þess og allrar forsögu málsins ekki
treyst á að sveitarfélagið eða
starfsmenn þess stöðvi hinar ólög-
legu framkvæmdir,“ segir Ívar.
Sveitarstjórnin sagði fyrir
úrskurðarnefndinni að gæta yrði
meðalhófs og hafa í huga hags-
muni húseigenda og sjónarmið um
eyðileggingu verðmæta: „Fjarlæg-
ing eða niðurrif eignar hans væri
augljóslega verulega íþyngjandi,“
segir sveitarstjórn Grímsnes- og
Grafningshrepps.
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Rýmum fyrir
2008 línunni
AFSL
ÁTTU
R AL
LT AÐ
600.
000
KR.
Nú er tækifæri til að kaupa draumahjólhýsið á gjafverði.
Við bjóðum 2007 árgerðina með 200–600 þúsund kr. afslætti
og geymum hýsið til vors, þér að kostnaðarlausu.
Hjón krefjast niðurrifs
nýbyggðra sumarhúsa
Tvö glæný sumarhús í Grímsnesi verða rifin ef farið verður að kröfu hjóna sem
eiga eldri bústað í nágrenninu. Leyfi fyrir húsunum byggðist á ógildu deili-
skipulagi. Hjónin hafa kært sveitarstjórnina til sýslumanns fyrir aðgerðaleysi.
Leiðtogar margra helstu
ríkja heims hvöttu í gær herfor-
ingjastjórnina í Búrma til að halda
aftur af sér og láta mótmælendur í
friði.
Á mánudag hótaði stjórnin í
Búrma því að beita hervaldi gegn
mótmælendum, sem dag eftir dag
halda út á göturnar í borgum lands-
ins til að mótmæla ofríki stjórnar-
innar. Eftir að mótmælum lauk í
gær setti stjórnin á útgöngubann
og sendi fjölda hermanna að pagóð-
unni í Rangún, þar sem mótmæl-
endur hafa jafnan safnast saman.
Mótmælin, sem hófust í ágúst,
eru orðin þau mestu sem þekkst
hafa í sögu landsins frá því að her-
foringjastjórnin barði niður lýð-
ræðishreyfingu árið 1988.
Á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York skýrði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
frá hertum refsiaðgerðum gegn
Búrma og hvatti önnur ríki til að
beita þrýstingi.
David Miliband, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði á flokks-
þingi Verkamannaflokksins í gær
að Aung San Suu Kyi, sem árum
saman hefur verið í stofufangelsi,
ætti að verða næsti þjóðarleiðtogi
í Búrma.
Nóbelsverðlaunahafinn Des-
mond Tutu, erkibiskup í Suður-Afr-
íku, hrósaði íbúum Búrma fyrir
hugrekki og líkti þeim við fjölda-
hreyfinguna í sínu landi sem
steypti aðskilnaðarstjórninni.
Herstjórnin býr sig undir átök
Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
í sex mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að ganga í skrokk á
lögreglumönnum þar sem þeir
voru við störf sín. Maðurinn beit
meðal annars lögreglumann í
handlegg, þannig að hann hlaut
meiðsl af.
Maðurinn veittist í upphafi að
lögreglumanni sem hugðist taka
skráningarmerki af bifhjóli hans.
Annar lögreglumaður skarst þá í
leikinn, en maðurinn náði taki á
hálsi hans og beit hann síðan.
Maðurinn var jafnframt
dæmdur fyrir alvarlega atlögu
að tveimur öðrum lögreglumönn-
um sem voru við skyldustörf.
Beit í handlegg
lögreglumanns
Japanska þingið kaus í
gær Yasuo Fukuda nýjan
forsætisráðherra landsins.
Þingið var klofið í afstöðu sinni
til Fukuda þar sem meirihluti
neðri deildarinnar studdi hann en
meirihluti efri deildarinnar
studdi keppinaut hans. Neðri
deildin varð hlutskarpari í
samræmi við þingreglur.
Fukuda tekur við af Shinzo
Abe, sem sagði af sér í síðustu
viku eftir aðeins tæpt ár í
embætti. Röð hneykslismála og
tap stjórnarflokksins í efri deild
þingsins í júlí sköpuðu vantraust
á Abe og flokk hans.
Nýr forsætis-
ráðherra Japana
Hvar mun ný bjórverksmiðja
rísa á næsta ári?
Hvaða lið er í efsta sæti í
Landsbankadeild karla í knatt-
spyrnu?
Hvaða íslenska hljómsveit
nýtur mikilla vinsælda á Filipps-
eyjum?