Fréttablaðið - 26.09.2007, Síða 48
Eins og fyrr hafa öfgar yfir-gnæft umræðuna um ástand
miðborgarinnar. Ólátum um nætur
jafnvel lýst sem neyðarástandi
sem er gróflega misnotuð skil-
greining. Þá á ég auðvitað ekki við
ofbeldi sem víða á sér stað, heldur
óspektir og sóðaskap sem lengst af
var látið óátalið. Aðferðin við að
innleiða betri siði hlýtur að vera
einfaldari en að loka sjoppunum
við háttatíma eldri borgara og
smala fólki út í iðnarhverfin, nema
markmiðið sé að leggja miðborg-
ina niður.
um zero tolerance
er meðal annars sú að með því að
taka á litlum afbrotum og auka
þannig aga sé jafnframt verið að
koma í veg fyrir alvarlegri brot.
Og hefur þann kost að beinast ekki
að löghlýðnum borgurum heldur
bara miðbæjarbullum. Margir eru
viðkvæmastir fyrir í veskjunum
sínum og hugsa sig um tvisvar
áður en þeir míga utan í Jón Sig-
urðsson ef það kostar tíu þúsund
kall. Áður var slíkt bara bannað en
kostaði ekki krónu og því bara
grín.
minna umburðarlyndi skuli
virka betur en meira er umhugs-
unarefni fyrir þau sem láta
smotteríin angra sig. Eins og að
græni karlinn skuli ekki vera kona,
stelpur skuli vera penar en strákar
prakkarar, að Ingibjörg sé ráð-
herra en ekki ráðfrú, fáklæddar
konur henti vel til að auglýsa bíla,
klámvæðingin geri lítið úr konum,
kvensköp séu kallaðar pjöllur eða
buddur og að konur séu svo sjald-
an viðmælendur í fjölmiðlum. Þau
sem láta pirra sig að kvenlegir
eiginleikar skuli taldir minna virði
svo litlir drengir sem prófa varalit
mömmu sinnar sendi kaldan hroll
niður bak foreldranna.
meðan er það bara efni í krútt-
lega sögu þegar pabbinn klæðir
barnið í náttfötin utan yfir útigall-
ann því hann hefur auðvitað ekk-
ert vit á svonalöguðu. Og þegar
konan sækir karlinn á bílnum og
tifar þæg yfir í farþegasætið svo
hann geti tekið við stjórninni. Þetta
eru lítil mál en mótandi fyrir hugs-
unarháttinn. Einstaka finnst upp-
lagt að kalla það fólk feminasista
sem kann heldur ekki að meta að
lög um kynbundið launajafnrétti
skuli vera án viðurlaga og því bara
grín.
er gróflega
misnotuð skilgreining. Hins vegar
gæti jafnréttisbaráttan alveg
notað dálítinn skammt af almennri
umræðu um zero tolerance.
Zero tolerance