Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 48
Eins og fyrr hafa öfgar yfir-gnæft umræðuna um ástand miðborgarinnar. Ólátum um nætur jafnvel lýst sem neyðarástandi sem er gróflega misnotuð skil- greining. Þá á ég auðvitað ekki við ofbeldi sem víða á sér stað, heldur óspektir og sóðaskap sem lengst af var látið óátalið. Aðferðin við að innleiða betri siði hlýtur að vera einfaldari en að loka sjoppunum við háttatíma eldri borgara og smala fólki út í iðnarhverfin, nema markmiðið sé að leggja miðborg- ina niður. um zero tolerance er meðal annars sú að með því að taka á litlum afbrotum og auka þannig aga sé jafnframt verið að koma í veg fyrir alvarlegri brot. Og hefur þann kost að beinast ekki að löghlýðnum borgurum heldur bara miðbæjarbullum. Margir eru viðkvæmastir fyrir í veskjunum sínum og hugsa sig um tvisvar áður en þeir míga utan í Jón Sig- urðsson ef það kostar tíu þúsund kall. Áður var slíkt bara bannað en kostaði ekki krónu og því bara grín. minna umburðarlyndi skuli virka betur en meira er umhugs- unarefni fyrir þau sem láta smotteríin angra sig. Eins og að græni karlinn skuli ekki vera kona, stelpur skuli vera penar en strákar prakkarar, að Ingibjörg sé ráð- herra en ekki ráðfrú, fáklæddar konur henti vel til að auglýsa bíla, klámvæðingin geri lítið úr konum, kvensköp séu kallaðar pjöllur eða buddur og að konur séu svo sjald- an viðmælendur í fjölmiðlum. Þau sem láta pirra sig að kvenlegir eiginleikar skuli taldir minna virði svo litlir drengir sem prófa varalit mömmu sinnar sendi kaldan hroll niður bak foreldranna. meðan er það bara efni í krútt- lega sögu þegar pabbinn klæðir barnið í náttfötin utan yfir útigall- ann því hann hefur auðvitað ekk- ert vit á svonalöguðu. Og þegar konan sækir karlinn á bílnum og tifar þæg yfir í farþegasætið svo hann geti tekið við stjórninni. Þetta eru lítil mál en mótandi fyrir hugs- unarháttinn. Einstaka finnst upp- lagt að kalla það fólk feminasista sem kann heldur ekki að meta að lög um kynbundið launajafnrétti skuli vera án viðurlaga og því bara grín. er gróflega misnotuð skilgreining. Hins vegar gæti jafnréttisbaráttan alveg notað dálítinn skammt af almennri umræðu um zero tolerance. Zero tolerance

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.