Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
38%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
D
V
37%
69%
5%
D
VV
D
V
DD
Harpa Einarsdóttir er meðal þeirra kraftmiklu ungu Íslendinga sem eruað hasla sér völl á sviðifatahönnunar. Um þessarmundir starfar hún líkameð CCP þar sem hún hannar búninga á persón-ur Eve Online.
„Þeir eru að breyta leiknumþannig að það er hægt að sjá alla karakterana frá toppi til táar og af því tilefniþurftu þeir ný föt. Ég var ráðin í þetta af því ég getbæði teiknað og málað en erjafnframt fatahönnuður,“ segir Harpa.
Spurð hvað henni finnistum augljósan áhugaíslenskra ungmenna á fatahönnun segir hún þettavera erfiðan bransa.„Það eru til dæmis frekarfáir sem halda áfram eftirútskrift. Aðalvandamálið erað byrja að markaðssetjalínuna. Sjálf er ég með tvö börn og þarf að vera í fullu starfi til að geta komið þessu í gang. Maður þyrftieiginlega sponsor,“ segirHarpa en hönnunarlínuhennar, undir merkinuStarkiller, er hægt að kíkja á í Kjörgarði á þriðju hæð. „Við Selma, stelpan semég vinn þetta með, ætlum að markaðssetja línu nú í október en eins og staðan er í dag fást fötin í einniverslun í Stokkhólmi “ se iHa
Hannar búninga á
persónur Eve Online
Töframenn og að-
þrengdar eiginkonur
hafnarfjörðurFIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 Kvikmyndagerð í Hafnarfirði
Víkingar öðlast líf BLS. 12
®
ÚTS
ALA
ÚTS
ALA
ÚTSALA ÚTSALA
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Áætlað er að íslensk-
ir fíkniefnaneytendur noti að
minnsta kosti 640 kíló af hörðum
fíkniefnum á ári og um 1.100 kíló
af kannabisefnum. Samkvæmt því
veltir fíkniefnamarkaðurinn hér á
landi hátt í tveimur tonnum af
fíkniefnum á ári.
Ofangreint magn miðast við
svokallaða götuþyngd, það er
þegar efnin hafa verið þynnt út til
sölu. Hörð fíkniefni eru kókaín,
amfetamín og e-töflur.
Þessar tölur eru samkvæmt
útreikningum frá sjúkrahúsinu
Vogi fyrir árið 2005-2006. Til
grundvallar eru lagðar ýmsar upp-
lýsingar sem safnað hefur verið,
svo sem um fjölda fíkla sem leggj-
ast inn á Vog, aldursskiptingu, teg-
und efnis, tíðni neyslu og magn
sem þessir sömu fíklar hafa neytt.
Þórarinn Tyrfingsson, yfir-
læknir á Vogi, segir að neysla á
amfetamíni hér á landi hafi farið
vaxandi á árunum 2005-2006.
Samkvæmt nýjustu útreikningum
megi gera ráð fyrir að um 400 kíló
af amfetamíni hafi verið til sölu á
árinu 2006.
„Neysla á amfetamíni hefur
einkum aukist meðal fólks á aldr-
inum 20 til 35 ára. Hjá hinum sem
yngri eru hefur neyslan einnig
aukist, en þó hlutfallslega minna
en hjá hinum eldri miðað við 2005.
Neysla á kókaíni og e-töflum
stendur nokkuð í stað. Aðalniður-
staða úr tölum ársins 2006 er sú að
fíkn í örvandi vímuefni fer vax-
andi, bæði nýgengi og algengi.“
Þórarinn segir að kannabisfíklar
hafi aldrei verið fleiri en undan-
farin tvö ár. „Það sem er þó
gleðilegt í þessu er að þeir allra
yngstu eru ekki eins margir og
áður,“ útskýrir hann. „En neyslan
færist upp aldurshópinn, þannig
að magnið stendur nokkuð í stað
milli ára.“
Að sögn Þórarins dró heldur úr
fjölda sprautufíkla á árinu 2006:
„Nýju tilfellunum hefur fækkað
nokkuð, einkum meðal ungs fólks,
sem eru vissulega gleðitíðindi.
Vímuefnafíkn almennt er minni
meðal þeirra sem eru undir tví-
tugu.“
Þórarinn segir aukna tíðni lifrar-
bólgu C mikið áhyggjuefni. Hún
smitast með notuðum sprautunál-
um. Árið 2005 greindust 26 ný til-
felli lifrarbólgu C á Vogi en 44 á
síðasta ári.
Fíkniefnaneysla tæp tvö tonn
Yfirlæknir á Vogi segir að á Íslandi séu notuð tæp tvö tonn af fíkniefnum á ári. Gera má ráð fyrir að um
400 kíló af amfetamíni einu saman hafi verið á markaði á síðasta ári. Tilfellum lifrarbólgu C stórfjölgar.
Sérfræðingar telja
hámarki olíuframleiðslu í heimin-
um nú þegar vera náð, sem þýðir
að olíuverð getur ekki annað en
haldið áfram að hækka. Jafnframt
er því spáð að bílum fjölgi um
meira en
helming í
heiminum á
næstu tuttugu
árum. Þetta,
ásamt kröfunni
um að þjóðir
heims dragi
verulega úr
losun gróðurhúsa-
lofttegunda,
veldur því að mikið kapphlaup er
nú í gangi til að finna nýja
orkugjafa og tækni sem geti tekið
við er líður að endalokum olíualdar.
Þessar aðstæður opna Íslending-
um tækifæri til að verða fyrsta
þjóðin í heiminum sem verður
nánast óháð jarðefnaeldsneyti.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í fyrstu grein greinaflokks
um framtíðarorkuna og farar-
tækin, sem hefur göngu sína í
Fréttablaðinu í dag.
Tækifæri fyrir
Íslendinga
Á fimmta tug starfsmanna Alþingis mun
sinna öryggisgæslu á ársþingi Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), sem haldið verður í Reykjavík 5.
til 9. október næstkomandi.
Meðal starfsmanna Alþingis sem sinna munu
öryggisgæslu á þinginu er mötuneytissstarfs-
menn, starfsmenn tölvudeildar, ritarar og þing-
verðir.
„Til þess að halda kostnaði í lágmarki höfum við
reynt að fá sem flesta starfsmenn þingsins með
okkur í þetta verkefni,“ segir Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis.
Staðið hefur verið fyrir öryggisnámskeiðum
þar sem starfsmönnum var meðal annars kennd
vopna- og sprengjuleit.
Búist er við um 340 þingmönnum frá hinum 26
aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins á þingið.
Helgi segir ljóst að verkefnið verði mjög kostnaðar-
samt og því hafi verið gripið til þessara aðgerða.
Fólk hafi almennt haft gaman af námskeiðunum.
„Starfsmönnum Alþingis þykir alltaf gaman að fást
við ný verkefni,“ segir hann.
Þetta verður 53. ársfundur NATO-þingsins en í
fyrsta sinn sem hann er haldinn á Íslandi. Þetta er
stærsti fundur alþjóðlegra þingmannasamtaka sem
Alþingi á aðild að.
Vímuefnafíkn almennt er
minni meðal þeirra sem
eru undir tvítugu.