Fréttablaðið - 27.09.2007, Qupperneq 2
Samtals höfðu verið lagðir ríflega 7,5
milljarðar króna í Gagnaveitu Reykjavíkur og
fyrirrennara hennar í lok júní, á verðlagi þess tíma,
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Hann
segist enn þeirrar skoðunar að einkavæða eigi Gagna-
veituna, sem á og rekur ljósleiðaranet á höfuðborgar-
svæðinu.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fól Landsbankanum
og Glitni að meta verðmæti Gagnaveitunnar, en
trúnaður ríkir um niðurstöðurnar. Heimildir
Fréttablaðsins herma að verðmæti Gagnaveitunnar
sé um ellefu milljarðar króna samkvæmt mati
Landsbanka Íslands, og gæti orðið um 28 milljarðar
árið 2011. Glitnir mat verðmætið á um sjö milljarða.
„Í þessu mati er gert ráð fyrir verulegri aukningu
viðskiptavina með tengingar, sem eru mjög fáar í
dag. Ef það minnkar eitthvað örlítið breytist virði
eiginfjár verulega mikið,“ segir Vilhjálmur. „Það eru
forsendur sem þeir gefa sér, og það skiptir öllu hvort
þær standist.“
Vilhjálmur segir að Orkuveitan eigi að losa sig út
úr rekstri Gagnaveitunnar vegna þess að hún eigi
ekki að standa í samkeppni og sinna verkefnum sem
fyrirtæki í einkaeigu geti sinnt. „Það hefur verið mín
skoðun frá upphafi og hún er óbreytt.“
„Þegar um er að ræða verkefni
sem einkafyrirtæki geta sinnt með
ágætum á markaðurinn að taka á
því. Við eigum ekki að standa í
samkeppni, heldur verja okkar
fjármunum til annarra verka,“
segir Vilhjálmur.
Stjórn OR samþykkti að láta
meta verðmæti Gagnaveitunnar og taka svo ákvörðun
um söluferlið. Vilhjálmur segir að nú sé verið að
skoða matið, en stjórnin taki ákvörðun um fram-
haldið. „Við verðum að skoða það þegar söluferli fer í
gang hvaða verð markaðurinn býður,“ segir Vil-
hjálmur.
Gagnaveita Reykjavíkur er dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur, og varð til úr Línu.neti hf. Miklar deilur
stóðu um fyrirtækið í borgarstjórn Reykjavíkur og
náðu þær hámarki árið 2001.
Borgarstjóri vill selja
Orkuveituljósleiðara
Samtals hafa verið lagðir 7,5 milljarðar í Gagnaveitu Reykjavíkur, segir borgar-
stjóri. Landsbankinn mat verðmæti veitunnar um ellefu milljarða í dag og 28
milljarða árið 2011. Borgarstjóri vill að OR losi sig úr rekstri Gagnaveitunnar.
Skiptafundi í Eignar-
haldsfélaginu Samvinnutrygging-
um, sem halda átti næstkomandi
föstudag, hefur verið frestað um
óákveðinn tíma. Talið er að um 51
þúsund einstaklingar eigi virk
réttindi í félaginu.
Sérstök skilanefnd fékk það
verkefni að fara yfir eigendur
réttinda í félaginu, alls um 65
þúsund, og meta hversu margir
eigi virk réttindi, að því er segir í
tilkynningu frá nefndinni.
Verkefnið reyndist tíma-
frekara en ráð var fyrir gert, og
er viðbúið að það dragist fram á
næsta ár. Nýr skiptafundur
verður boðaður síðar.
Fundi frestað
ótímabundið
Símafyrirtækið Nova
ehf. hefur leigt aðstöðu á þökum
nokkurra skóla í Reykjavík og
óskað eftir leyfi byggingarfull-
trúa til að fá að setja þar upp
farsímasenda. Um er ræða
Borgaskóla,
Ölduselsskóla,
Rimaskóla,
Réttarholts-
skóla, Selja-
skóla og
Breiðholts-
skóla. Einnig er
félagið að setja
upp búnað á
Kjalarnesi og
víðar. Nova
hefur rekstrar-
leyfi fyrir 3G-farsímaþjónustu.
Ætlunin er að þjónustan nái til
höfuðborgarsvæðisins og
Reykjaness fyrir lok þessa árs og
til tíu prósenta landsmanna á
næsta ári. Eigandi Nova er
Björgólfur Thor Björgólfsson.
Sækir um leyfi
fyrir 3G-senda
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Eggert, var bara Eggert eftir?
Gæsluvarðhalds-
úrskurður yfir pilti um tvítugt,
sem handtekinn var á bílaleigubíl
á Fáskrúðsfirði á fimmtudaginn í
síðustu viku, rennur út í dag en
lögreglan hyggst óska eftir því að
hann verði áfram í haldi. Það stað-
festi Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins, við
Fréttablaðið í gær.
Pilturinn er grunaður um að
hafa ætlað að aðstoða Guðbjarna
Traustason og Alvar Óskarsson,
sem báðir eru 25 ára, við að fara
frá Fáskrúðsfirði á bifreið en Guð-
bjarni og Alvar voru handteknir í
skútu við Fáskrúðsfjarðarhöfn
eftir að hafa reynt að smygla
rúmlega sextíu kílóum af fíkni-
efnum inn í landið.
Yfirheyrslur yfir fimm mönn-
um sem eru í haldi lögreglu vegna
rannsóknar á Pólstjörnumálinu
svokallaða halda áfram í dag. Lög-
reglan verst allra frétta af rann-
sókninni.
Lögreglumenn frá fíkniefnadeild
lögreglu höfuðborgarsvæðisins
fóru til Færeyja fyrir skemmstu
til að yfirheyra Íslending sem þar
er í haldi en hann var tekinn með
tvö kíló af amfetamíni í fórum
sínum, sama dag og níu aðrir voru
handteknir eftir að fíkniefnin
fundust í skútunni.
Verði áfram í gæsluvarðhaldi
„Ég tel að fundur-
inn hafi verið mjög jákvæður.
Menn urðu sammála um að eiga
næsta fund í Kaupmannahöfn í
byrjun nóvember,“ segir Tómas
H. Heiðar, formaður samninga-
nefndar Íslands, eftir fyrsta dag
fjórhliða viðræðufundar Íslands,
Bretlands, Írlands og Danmerkur,
fyrir hönd Færeyja, um svonefnt
Hatton Rockall-svæði.
„Áherslan á fundinum var að
finna hugsanlegar leiðir til að
skipta landgrunninu á Hatton
Rockall-svæðinu milli aðilanna.“
Spurður að því hvort endanleg
skipting svæðisins liggi fyrir
segir Tómas að þar til aðilar hafi
náð formlegu samkomulagi verði
svæðið áfram umdeilt.
Á fundinum leggja fulltrúar
Íslands höfuðáherslu á að
samkomulag náist sem fyrst um
skiptingu landgrunnsins.
Finna leiðir til
að skipta land-
grunninu
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
hvetur Bandaríkjamenn til að fara að fordæmi
Íslendinga og nýta sér jarðhita til orkuframleiðslu í
stórum stíl.
Í gærmorgun sat Ólafur Ragnar vitnaleiðslu hjá
orkunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings, þar sem
hann var kallaður til sem vitni í tengslum við
frumvarp um stórfellda eflingu á nýtingu jarðhita í
Bandaríkjunum.
Nánast einsdæmi er að þjóðhöfðingja sé boðið til
vitnaleiðslu þingnefndar í Bandaríkjunum og
þakkaði Ólafur Ragnar nefndinni þann heiður sem
sér væri sýndur með boðinu. Formaður nefndarinnar
og fleiri nefndarmenn þökkuðu Ólafi Ragnari aftur á
móti kærlega fyrir að gefa sér tíma til að miðla
nefndinni af þekkingu sinni á málinu.
Þeir spurðu hann um reynslu Íslands af nýtingu
jarðhita, sem Ólafur Ragnar sagði vera einstaklega
góða. Jarðhiti hefði reynst afar hagkvæmur orku-
gjafi og bæði ríkin, Ísland og Bandaríkin, gætu
hagnast á samstarfi um þróun jarðhitanýtingar í
Bandaríkjunum. Nefndarformaður orkunefndarinn-
ar er demókratinn Jeff Bingaman frá Nýju-Mexíkó,
en í nefndinni sitja 23 öldungadeildarþingmenn, þar
af tólf demókratar og ellefu repúblikanar.
Jóhannes B.
Björgvinsson, lögreglumaður í
Búðardal, fékk afhentan nýjan
lögreglubíl í fyrradag af Stefáni
Skarphéðinssyni, sýslumanni í
Borgarnesi.
Nýi bíllinn þykir hið mesta
þarfaþing því sá gamli þótti
mikill gallagripur. Í byrjun árs
greindi Fréttablaðið til að mynda
frá því að á tveimur árum hefði
bíllinn farið á verkstæði 58
sinnum og hefði aðalvarðstjórinn
í bænum því ítrekað þurft að
erindast á einkabíl sinum.
Nýi bíllinn er af gerðinni
Hyundai Santa Fe og búinn öllum
nauðsynlegum tækjabúnaði.
Fær loks nýja
lögreglubílinn
Rússar gerðu
tilraun til að senda lítinn pakka
úr ómönnuðu geimfari niður til
jarðar. Það mistókst.
Pakkinn var í litlu hylki og
festur við annan endann á þrjátíu
kílómetra langri línu, sem send
var niður úr geimfarinu. Hug-
myndin var sú að þegar línan
hefði náð fullri lengd myndi
hylkið losna og svífa niður í
tuttugu mínútur, en þá myndi
fallhlíf skjótast út og tryggja
örugga lendingu á jörðu niðri.
Svo virðist sem línan hafi
flækst þegar hylkið var komið 8,5
kílómetra niður úr geimfarinu,
og þar með var tilrauninni
sjálfhætt.
Ekki tókst að
senda til jarðar