Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 25

Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 25
Úsbekinn Alisher Usman- ov ræður nú ríflega fimmtungshlut í enska stórveldinu Arsenal. Stjórnarformaðurinn segir að félagið verði ekki selt erlendum fjárfestum. Lundúnaútibú Landsbankans hafði milligöngu um kaup auðkýfings- ins Alisher Usmanov á sex pró- senta hlut í enska knattspyrnulið- inu Arsenal. Usmanov, sem er frá Úsbekistan, á nú 21 prósents hlut í Arsenal gegnum fjárfestingar- félagið Red & White Holdings. Seljendur voru fjárfestirinn Birol Nadil og fjárfestingasjóðurinn Landsdowne Partners. Kaupverð á sex prósenta hlut í Arsenal er rúmlega þrjátíu millj- ónir punda, eða sem nemur rúm- lega 3,8 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt því er heildar- virði félagsins um 63,4 milljarðar íslenskra króna. Miklar hræringar hafa verið meðal hluthafa í Arsenal undan- farin misseri. David Dein sem var stjórnarformaður Arsenal í ára- tugi hvarf úr starfi á vormánuðum eftir deilur við aðra stjórnarmeð- limi. Dein hefur nú birst á ný sem andlit Red and White Holdings út á við. Breskir fjölmiðlar hafa mikið spáð í hvort Usmanov hafi í hyggju að taka Arsenal yfir. Núverandi stjórnarformaður Peter Hill- Wood, sem beint eða óbeint æður ríflega helmings eignarhlut, segir ekki í bígerð að selja félagið og þá sérstaklega ekki til erlendra fjár- festa. Arsenal er oft á tíðum nefnt „enskasta“ knattspyrnufélag úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir að lið félagsins skipi fjölþjóðaher knattspyrnumanna. Félagið telur sjálfa Englandsdrottningu meðal stuðningsmanna sinna. Landsbankinn hafði milligöngu um viðskipti með hlut í Arsenal Útborgun í hverjum mánuði! Vaxtaauki Viðskiptavinir fá greidda vexti mánaðarlega í stað árlega. Ef vextirnir liggja óhreyfðir inni á reikningnum safna þeir vaxtavöxtum. • Háir vextir, greiddir út mánaðarlega • Stighækkandi vextir eftir innstæðu • Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti Vaxtaauki er kjörinn fyrir fólk sem á sparifé og vill nota vextina til að standa straum af mánaðarlegum útgjöldum. Reikningurinn er óverðtryggður og er innstæðan laus til útborgunar hvenær sem er. Farðu inn á www.nb.is og stofnaðu reikning strax í dag. Nýjung www.nb.is • Sími 550 1800 1.000.000 9.958 3.000.000 29.875 5.000.000 53.333 10.000.000 106.667 15.000.000 160.000 20.000.000 215.833 * Samkvæmt vaxtatöflu Netbankans þann 12. sept. 2007 H im in n o g h a f / S ÍA FL Group er orðið næststærsti hluthafinn í þýska bankanum Commerzbank eftir að hafa aukið hlut sinn úr 3,24 prósentum í 4,25 prósent. Stærsti hluthafi bankans er ítalska tryggingafélagið Gener- ali með um níu prósenta hlut. Virði heildarhlutar FL Group í bankanum er um 69 milljarðar króna. Ekki er gefið upp á hvaða gengi kaupin fóru fram. Má gera ráð fyrir að kaupverð liggi í kring- um sextán milljarða króna. Kaup- in verða fjármögnuð með fram- virkum samningum og eigin fé. Halldór Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, segir Commerzbank einn fárra evrópskra banka sem staðið hafa við fjárhagsleg markmið sín að undanförnu. Rekstur bankans sé mjög góður og starfsemin hafi verið aukin umtalsvert að undan- förnu. „Við búumst við því að arðsemi bankans haldi áfram að aukast,“ segir Halldór. „Við teljum því að góð tækifæri felist því í kaupun- um nú, ekki síst í ljósi þess að við teljum bankann lágt verðlagðan eftir lækkanir undanfarinna vikna.“ FL næststærst í Commerzbank Fermetrafjöldi verslunarhús- næðis á Íslandi jókst um rúmlega 42 prósent á tíu ára tímabili frá 1996 til 2006. Þetta kemur fram í Árbók verslunarinnar sem Rannsóknasetur verslunarinnar og Kaupmannasamtök Íslands gefa út. Aukningin var hlutfallslega meiri utan höfuðborgarsvæðisins. Hún var 44 prósent á landsbyggð- inni en 41 prósent á höfuðborgar- svæðinu. Verslunarstörfum hefur á sama tímabili fækkað á landsbyggðinni. Skýrist það hugsanlega af því að verslanirnar hafi orðið færri og stærri og þurfi því ekki jafnmarga starfsmenn. Húsnæði fer ört stækkandi Yfirtökutilboð kauphallasam- stæðunnar Nasdaq og kauphallar- innar í Dubai hefur verið hækkað um fimmtán prósent eða í 265 sænskar krónur á hlut. Tilboðið hljóðar upp á 305 milljarða króna og styðja stjórnendur OMX það. Hækkun tilboðsins kemur í kjölfar þess að QIA, félag í eigu stjórnvalda í Katar, blandaði sér óvænt inn í slaginn um OMX í síðustu viku. Félagið hafði þá tryggt sér tíu prósenta hlut í OMX og setti við það samkomu- lag Nasdaq og Dubai í uppnám. Félögin höfðu samið um að Dubai eignaðist tuttugu prósenta hlut í sameinaðri kauphöll OMX og Nasdaq. Hækka boðið í OMX-kauphallir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.