Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 27

Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 27
Harpa Einarsdóttir er meðal þeirra kraftmiklu ungu Íslendinga sem eru að hasla sér völl á sviði fatahönnunar. Um þessar mundir starfar hún líka með CCP þar sem hún hannar búninga á persón- ur Eve Online. „Þeir eru að breyta leiknum þannig að það er hægt að sjá alla karakterana frá toppi til táar og af því tilefni þurftu þeir ný föt. Ég var ráðin í þetta af því ég get bæði teiknað og málað en er jafnframt fatahönnuður,“ segir Harpa. Spurð hvað henni finnist um augljósan áhuga íslenskra ungmenna á fatahönnun segir hún þetta vera erfiðan bransa. „Það eru til dæmis frekar fáir sem halda áfram eftir útskrift. Aðalvandamálið er að byrja að markaðssetja línuna. Sjálf er ég með tvö börn og þarf að vera í fullu starfi til að geta komið þessu í gang. Maður þyrfti eiginlega sponsor,“ segir Harpa en hönnunarlínu hennar, undir merkinu Starkiller, er hægt að kíkja á í Kjörgarði á þriðju hæð. „Við Selma, stelpan sem ég vinn þetta með, ætlum að markaðssetja línu nú í október en eins og staðan er í dag fást fötin í einni verslun í Stokkhólmi,“ segir Harpa að lokum en vænta má þess að meira beri á verkum hennar í nánustu framtíð, innan tölvuheima sem utan. Áhugasamir geta kynnt sér Starkiller á heimasíð- unni www.myspace.com/ starkillericeland Harpa drepur stjörnur Haustferðirnar vinsælu til St. John’s á Nýfundnalandi 17. - 21. nóvember í 4 nætur og 21. - 26. nóvember í 5 nætur Beint flug aðeins 3 - 3,5 klst. með brottför síðdegis kl.17:00 Bjóðum einnig dvöl allan tímann í 9 nætur St. John’s höfuðborg Nýfundnalands austast í Kanada er áhugaverð og ljúf borg heim að sækja eins og ótalmargir þekkja úr ferðum okkar þangað undanfarin 10 ár. Einstaklega hagstætt að versla. Frábær gestrisni, góðir veitingastaðir, írsk pöbbastemmning og fjölbreyttar skoðunarferðir. Gist á glæsilegum hótelum. Jólaskrúðgangan er 25. nóvember og sjávarútvegssýningin 22. - 24. nóvember. Dæmi um verð pr. mann miðað við tvo í herbergi, með sköttum: Holiday Inn, 4 nætur: kr. 62.800 og 5 nætur: kr. 65.600 Marriot, nýtt hótel, 4 nætur: kr. 67.400 og 5 nætur: kr. 71.100 Fairmont Newfoundland, 4 nætur: kr. 71.900 og 5 nætur: kr. 76.600 Bókið og staðfestið strax á ferðaskrifstofunni, Hesthálsi 10. Sími: 587 6000 - info@trex.is - www.trex.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.