Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 32
Margir horfa löngunaraugum
á ísskápa með ísmulningsvél,
nuddpotta með sjónvarpi og
vígaleg gasgrill, en sjá ekki
afgangseyri í buddunni fyrir
slíkri munaðarvöru.
„Mig hafði lengi langað í amer-
ískan ísskáp og gasgrill af stærri
gerðinni, en hafði ekki efni á því,
eins og margir,“ segir Guðbrand-
ur Jónatansson, sem starfar af
fagurri hugsjón og fer ótroðnar
slóðir, en fyrirtækið hans 4you
var opnað á dögunum í illa nýttri
verslunaramiðstöð í Eddufelli í
Efra-Breiðholti; á stað sem marg-
ir hefðu fyrir fram talið ósenni-
legan fyrir lúxusvörur.
„Hingað er auðratað og afar
sanngjörn húsaleiga, en ég reyni
að halda öllum kostnaði niðri til
að bjóða betra vöruverð. Ég þarf
ekki að vera með búð í miðbæn-
um. Fólk kemur til mín af því ég
sel ódýrt,“ segir Guðbrandur, sem
smitaðist af verslunarháttum
Bónus, Rúmfatalagersins og
Ikea.
„Þessar vinsælu verslanir selja
vörur í magni og mig langaði að
gera eins með vandaðar vörur.
Með því vildi ég leyfa draumum
annarra að rætast, eins og mínum
eigin,“ segir Guðbrandur, sem
flytur inn glæsilegan munaðar-
varning sem hann selur á heild-
söluverði til hins almenna borg-
ara.
„Ég versla beint við verksmiðj-
ur ytra og nota enga milliliði.
Þegar mig langaði í stórt gasgrill
hafði ég samband við bandarísk-
an framleiðanda sem bauð það á
afar góðu verði. Ég spurði hvort
hann framleiddi grillin sjálfur en
þá svaraði hann að lítil sem engin
framleiðsla væri lengur í Banda-
ríkjunum; allt væri unnið í Kína.
Ég pantaði grillið því beint frá
Kína og fékk á útsöluprís,“ segir
Guðbrandur, sem óskar löndum
sínum að njóta þess sama og flyt-
ur inn tvöfalda ryðfría ísskápa,
rafmagnsnuddpotta með inn-
byggðu DVD og sjónvarpi, fjöl-
hæfar ítalskar kaffivélar, harm-
óníkur, nýmóðins vatnsrúm, 100%
náttúrulegar og verðlaunaðar
latexdýnur og dýrindis ekta
nautshúðateppi í úrvali.
„Rafmagnspotta og ísskápa fá
kaupendur á helmingi lægra verði
en út úr búð hér heima. Grill sem
fæst í verslunum á yfir 100 þús-
und sel ég á 49.800 krónur. Ég flyt
þau inn í gámum, seldi síðast 240
grill á fjórum vikum og er með
biðlista eftir næstu sendingu.
Nuddpotta sem kosta milljón út
úr búð sel ég á 450 þúsund. Kaup-
endur þeirra eru himinlifandi,
enda pottarnir fallegir með öllum
hugsanlegum lúxus,“ segir Guð-
brandur, sem blöskrar álagning
verslana á vörur sem Íslending-
um bjóðast.
„Nýlega kom vinsæl lífsstíls-
verslun að máli við mig og falað-
ist eftir nautshúðateppunum til
sölu. Ég spurði hvað þeir hygðust
selja teppin á og upp kom verð-
hugmyndin 170 þúsund. Ég bað
þá vel að lifa; ég seldi þau sjálfur
á 68 þúsund. Þarna stóð til að
leggja meira á vöruna en kostaði
mig að flytja hana inn til lands-
ins! En svona er nú álagningin og
segir ýmislegt um okrið þegar
fyrirtæki geta gefið allt að níutíu
prósenta afslátt af sínum vörum,“
segir Guðbrandur, sem selur mest
af sínum vörum áður en hann
flytur þær til landsins.
„Ég stefni á útrás 4you til hinna
Norðurlandanna, en þarlendir
aðilar vilja kaupa sig inn í fyrir-
tækið, sem og í Bandaríkjunum.
Fólk mun snúa sér í meira mæli
til þeirra sem selja beint á heild-
söluverði og spara sér himinháar
fjárhæðir í ófyrirleitna álagningu
verslana. Ég berst á móti verð-
lagningunni eins og Múskó. Berst
fyrir neytendur með vandaðri
lúxusvöru á sanngjörnu og við-
ráðanlegu verði fyrir alla.“
Sjá nánar á www.4you.is.
Lúxus handa öllum
Magnaða moppuskaftið
Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar
Gólfin þorna á augabragði
Fljótlegt og þægilegt
Sölustaðir:
Húsasmiðjan - Byko - Pottar og prik Akureyri - Áfangar Keflavík - Fjarðarkaup - Parket og gólf -
Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Litabúðin Ólafsvík - Skipavík Stykkishólmi - Rými -
SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Núpur Ísafirði -
Vélaleiga Húsavíkur. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.