Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 36

Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 36
 27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið hafnarfjörður Óvissuferðir ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í tilbúnum og sérhönnuðum pakkaferðum. „Aðþrengdar eiginkonur er eins og heitið gefur til kynna ferð sér- sniðin að þörfum kvenna. Gert fyrir kvennahópa sem vilja gera sér góðan dag, láta dekra svolítið við sig og enda á ljúffengum mat.“ Þetta segir Inga Steinunn Björgvinsdóttir, verkefnastjóri Óvissu ehf. sem er ferðaþjónustu- fyrirtæki í Hafnarfirði. Það útbýr bæði tilbúnar og sérhannaðar pakkaferðir handa hópum. Má þar nefna sveitaferðir, menningarferðir, adrenalín- ferðir og fyrrnefndar aðþrengdar eiginkonur, sem eru nokkuð breytilegar að sögn Ingu. „Þemað er það sama og snýst um dekur en síðan geta konurnar valið á milli þrenns konar ferða eftir því hvort þær vilja fara um Suðurland, Reykjanes eða til Reykjavíkur,“ útskýrir Inga. „Svo fer bara eftir hópnum hvernig ferðin spilast hverju sinni. Hversu miklum hluta dagsins konurnar vilja verja í dekur eða mat og svo framvegis.“ Inga segir ferðirnar hafa notið mikilla vinsælda á meðal kven- þjóðarinnar og því augjóslega nóg af aðþrengdum íslenskum eiginkonum sem vilja gera sér dagamun. En skyldi ekki vera á döfinni að bjóða karlpeningnum upp á svipaðar ferðir, svolítið dekstur? „Það stendur ekki til, en karlarnir hafa þó úr ýmsu öðru að velja,“ segir Inga og hlær. „Tækjum við hins vegar upp á því að bjóða upp á aðþrengda eiginmenn reikna ég með að það yrði eitthvað minna um dekur en meira um adrenalínflæði.“ Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um ferðir Óvissu ehf. á vefsíðunni www.ovissuferdir. is eða með því að hafa samband í síma 599 6030. - rve Aðþrengdar eiginkonur láta dekra við sig Inga Steinunn segir eitthvað í boði fyrir alla hjá Óvissuferðum ehf. MYND/RÓSA Sýning um sjálfbæra þróun stendur nú yfir í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði, en hún er byggð á hugmyndum Jarðarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Inntak sýningarinnar er að mann- kynið sé nú komið að sögulegum tímamótum og verði að taka af- stöðu í umhverfismálum. Hvort það ætli að hætta að menga og vinna að sjálfbærni eða ekki,“ segir Steinunn Geirdal, meðlimur í SGI á Íslandi, Soka Gakkai International, sem stendur að sýningunni ásamt Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar, Staðardagskrá 21 í Hafnarfirði og Gamla bókasafninu. Að sögn Steinunnar er sýningin til komin vegna Jarðarsáttmál- ans, sem var settur saman af fólki af ólíku þjóðerni, kynþáttum og trúarbrögðum víðs vegar um heim. Jarðarsáttmálinn var síðan kynntur á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðana í Jóhannesar- borg árið 2002. „Sáttmálinn gengur út á að vinna að sjálfbærni á öllum sviðum þjóð- félagsins,“ útskýrir Steinunn. „Hann fjallar líka um að fólk fari að sýna hvert öðru virðingu og mannkynið líti á sig sem eina fjöl- skyldu á þessari jörð.“ Steinunn segir að SGI á Íslandi hafi átt frumkvæði að uppsetn- ingu sýningarinnar hérlendis en alþjóðlegu samtökin eru aðildar- félag að Sameinuðu þjóðunum og ein stærstu friðarsamtök í heiminum. „Sýningin er liður í starfi okkar þar sem við vinnum að friði, menntun og menningu, meðal annars með því að kynna verkefni af þessu tagi.“ Steinunn segir sáttmálann þegar hafa verið tekinn inn í námskrá nokkurra landa og vonast hún til að Íslendingar fylgi fordæmi þeirra þar sem um frá- bært kennsluefni sé að ræða. Sýningin stendur til 7. október. - rve Friður, menntun og menning Steinunn Geirdal aðstoðarleikskólastjóri er meðlimur í SGI, sem er á meðal þeirra sem standa að sýningunni Sjálfbær þróun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Dúóið Stemma verður með opna tónleika í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar, í kvöld klukkan kl.20.00. Það eru þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari sem skipa Stemma en þau eru jafnframt fastráðnir hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Herdís og Steef hafa leikið saman í tæp tíu ár og á þeim tíma hafa þau átt í samstarfi við tónskáld, sem hafa samið fyrir þau verk. Þeirra á meðal eru tónskáldin Sveinn Lúðvík Björnsson, Jónas Tómasson og Snorri Sigfús Birgisson. Á efnisskránni hjá þeim er einnig íslensk þjóðlagatónlist þar sem Steef spilar meðal annars á steinaspil Páls frá Húsafelli. Aðgangur er ókeypis er tónleikana. Þess má jafnframt geta að Hafnarborg er höfð opin til klukk- an 21.00 alla fimmtudaga. Nánar á www.hafnarborg.is Dúóið Stemma leikur í kvöld Hafnarborg í Hafnarfirði. Nýleg könnun leiðir í ljós að kynbundinn launamunur í Hafnar- firði hefur minnkað á síðustu árum. Anna Jörgensdóttir, starfs- mannastjóri Hafnarfjarðar, fagnar niðurstöðunni. „Könnun var gerð árið 2001 og þá mældist kynbundinn launa- munur átta prósent en mælist nú sex prósent og hefur því minnk- að um tvö prósent,“ segir Anna. „Án grunnskólakennara mældist kynbundni launamunurinn tólf prósent árið 2001 en mælist nú níu prósent. Þetta er óút- skýrður launamunur á meðalheildarlaunum karl- og kvenkyns starfsmanna, þar sem tekið er tillit til aldurs, starfsgreina, yfir- vinnu og starfsaldurs.“ Að sögn Önnu er ástæða til að fagna, sérstaklega þar sem munur á dagvinnulaunum kynjanna hafi eyðst út frá árinu 2001. Þá voru dagvinnulaun kvenna sex prósentum lægri en dagvinnu- laun karla, en mælist nú 0,6 prósent lægra. Séu kennarar ekki reiknaðir með var munurinn átta prósentum lægri árið 2001 en er nú 0,8 prósentum hærri. „Við höfum kerfisbundið unnið að útrýmingu kynbundins launamunar,“ segir Anna. „Meðal annars með sértækum aðgerð- um innanhúss, þar sem reynt hefur verið að jafna muninn út. Nú er árangurinn að koma í ljós.“ Máli sínu til stuðnings bendir hún á að innleiðing nýs starfs- matskerfis sem meðal annars tekur til starfsmanna í Starfs- mannafélagi Hafnarfjarðar, hafi leitt til þess að ákveðnar kvennastéttir fengu hækkanir. Anna segir starfinu þó engan veginn lokið. „Við ætlum að halda áfram og munum þá einkum horfa til yfirvinnugreiðslna, hvort þar sé skekkja sem þurfi að leiðrétta. Mér finnst ekki ósennilegt að ný könnun verði gerð eftir tvö til þrjú ár og þá verði munurinn minni.“ - rve Kynbundinn launa- munur minnkar Anna Jörgensdóttir er ánægð með niðurstöður könnunarinnar en leggur áherslu á starfinu sé ólokið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.