Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 38
27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið hafnarfjörður
Jólaundirbúningur er nú
hafinn í Hafnarfirði, snemma
líkt og síðastliðin ár, þar
sem meðal annars er unnið
að því að reisa jólaþorp í
miðbænum fimmta árið í röð.
„Þorpið verður á Thorsplani
og samanstendur af tuttugu og
fimm húsum, þar sem kaupmenn
munu bjóða upp á söluvarning,“
segir Marín Guðrún Hrafnsdóttir,
menningar- og ferðamálafulltrúi
Hafnarfjarðarbæjar, og hvetur
áhugasama til að hafa samband
sem allra fyrst, þar sem verið er
að taka niður pantanir í húsin.
„Við viljum helst að mikið
sé um að vera í hverju húsi og
höfum því stungið upp á því að
nokkrir deili með sér húsi, svo
söluvarningurinn verði fjöl-
breyttur og vonandi örlítið jóla-
legur. Kaupmenn hafa annars
leyst þetta vel af hendi, skreytt
húsin hátt og lágt og staðið fyrir
alls kyns uppákomum.“
Að sögn Marínar tekur bærinn
meira og minna allur þátt í jóla-
undirbúningnum; skólabörn munu
skreyta jólaþorpið, kórar syngja og
unglingar troða upp. „Við ætlum að
virkja betur félagsmiðstöðvarnar
og unglingana sjálfa, sem hafa
af einhverjum ástæðum orðið
svolítið útundan. Það er ein helsta
breytingin í ár.“
Annars vill Marín gefa sem
minnst upp varðandi dagskrána
sjálfa, annað en að jólaballið verði
á sínum stað. „Við ætlum að slá
upp útijólaballi á sunnudögum.
Þetta hefur tvisvar sinnum verið
gert áður og heppnast gríðarlega
vel í bæði skiptin og eins og síðast
munu Felix og Gunni halda uppi
fjörinu.
Þá skemmtu allir sér konung-
lega við að dansa í kringum jóla-
tréð með húfur og vettlinga, enda
markmiðið að fjölskyldan geti átt
notalega samverustund.“ - rve
Notaleg fjölskyldustund
Nunnur úr Karmelklaustrinu hafa verið með frá upphafi og gera ekki undantekningu í ár.
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar,
lofar góðri skemmtun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jólaundirbúningur hefst snemma í Hafnarfirði og jólaþorpið í miðbænum verður opnað 24. nóvember. Verið er að kanna hvort
flötur sé fyrir því að hafa það opið virka daga síðustu vikuna fyrir jól.
Norm - X Auðbrekku 6, Kópavogi - Sími 565 8899 - netfang: normx@normx.is - veffang:www.normx.is
Norm - X hefur sérhæft sig í framleiðslu heitra potta
frá 1982 sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel
og ætlaðir fyrir hitaveituvatn.
Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd og ljósabúnað
og tvær gerðir af lokum
Við seljum einnig kamínur verð kr. 43.900
Gvendarlaug Setlaug 2050 L Grettislaug 1500 L Snorralaug 2000 L
með legubekk
Norm - X
Heitir pottar Heimasíðan okkar er www.normx.is
Íslensk framleiðsla
Norm - X hefur sérhæft sig í framleiðslu heitra potta
frá 1982 sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel
og ætlaðir fyrir hitaveituvatn.
Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd og ljósabúnað
og tvær gerðir af lokum
Við seljum einnig kamínur verð kr. 43.900