Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 40

Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 40
 27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið hafnarfjörður Margt er á döfinni hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu í vetur og nú standa yfir æfingar á leikritinu Svartur fugl í uppsetningu leikhússins og Kvenfélagsins Garps. „Þetta er nýtt leikrit sem kall- ast á frummálinu Blackbird og er eftir skoska leikskáldið David Har- rower,“ segir Sólveig Guðmundsdótt- ir, leikkona og meðlimur í Kvenfélaginu Garpi, sem átti á síðasta ári í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið um upp- setningu á Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur. „Verkið var frumflutt á Edinborgarhá- tíðinni árið 2005 og ég keypti samstund- is réttinn á því eftir að hafa séð það. Það greip mig bara enda vel skrifað og afar spennandi. Leikrit sem sýnir að lífið er ekki svart og hvítt.“ Að sögn Sólveigar er Svartur fugl jafn- framt eitt umtalaðasta leikrit sem hefur komið frá Bretlandi í langan tíma og hefur það verið sýnt víða um heim við góðar undirtektir. Það er margverðlaun- að og hlaut meðal annars Laurence Olivi- er-verðlaunin í ár sem besta frumraunin. Leikkonan vill þó sem minnst segja um efniviðinn. „Ég ætla ekki að segja of mikið en í grófum dráttum fjallar verkið um Ray og Unu, sem áttu í ástarsambandi fyrir fimmtán árum og hittast á ný með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum.“ Sólveig og Pálmi Gestsson fara með hlutverk Unu og Ray og hrósar leikkonan mótleikara sínum í hástert, sem og öðrum aðstandendum sýningarinnar. „Hér er valinkunnur maður í hverju rúmi og við erum svo heppin að hafa fengið til liðs við okkur skoska leikstjórann Graeme Maley, sem þekkir verkið mjög vel.“ Svartur fugl verður frumsýnt laugar- daginn 6. október en hægt er að nálgast vetrardagskrá Hafnar-fjarðarleikhússins á vefsíðunni www.hhh.is. - rve Eldfimt umfjöllunarefni „Umfjöllunarefnið er eldfimt og best að það komi áhorfendum á óvart,“ segir Sólveig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Pálmi Gestsson, Sólveig Guðmundsdóttir og leikstjórinn Graeme Maley. Hansadagurinn er orðinn fastur liður í bæjarlífi Hafnarfjarðar en hann verður haldinn hátíð- legur í október næstkomandi. „Þetta hófst allt saman með því að Hafnarfjarðarbær gekk fyrir nokkrum árum í Hansa- sambandið, sem var samtök kaupmanna í norður-evrópskum borgum á miðöldum. Hlutverk nýju Hansasamtakana er að tengja borgirnar aftur saman í gegnum menninguna og söguna frá þessum tíma.“ Þetta segir Björn Pétursson, bæjarminjavörður hjá Byggða- safni Hafnarfjarðar, sem stendur fyrir sérstökum Hansa- degi í október næstkomandi. Þá verður efnt til hátíðarhalda sem fara fram í formi sagnfræði- legra fyrirlestra, kynningu á alþjóðasamtökunum, tónleik- um, leikjum og matarveislu í miðaldastíl. „Markmið er að vekja athygli á þessum þætti úr sögu bæjar- ins, á því tímabili þegar þýskir Hansakaupmenn réðu hérna lögum og lofum, og kynna hugs- unina sem býr að baki endur- vakningunni,“ útskýrir Björn. Að hans sögn er dagskráin vel á veg komin en hún fer fram á nýja torginu fyrir framan Byggðasafnið, á Vesturgötu sex til átta. „Torgið hefur allt verið endurhannað, en framkvæmd- ir hafa staðið á því í sumar og er við það að ljúka, og stendur til að vígja það á Hansadaginn sjálfan.“ Þeir sem vilja upplifa ósvikna miðaldastemningu ættu því að gera sér ferð til Hafnarfjarðar í næsta mánuði. - rve Aftur í miðaldir Björn Pétursson lofar miðald- astemningu á Hansadaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.