Fréttablaðið - 27.09.2007, Page 42
27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið hafnarfjörður
Samtök áhugafólks um starf í
anda Reggio Emilia á Íslandi
(SARE) voru stofnuð 13.
september síðastliðinn.
Leikskólinn Stekkjarás
í Hafnarfirði vinnur eftir
aðferðum Reggio Emilia og
leggur áherslu á skapandi
starf og gagnrýna hugsun.
Í Reggio Emilia-stefnunni er
lögð áhersla á að kennararnir
séu þrír, það er börn, kennarar
og umhverfið. Þessir þættir
eru samverkandi og hafa áhrif
hver á annan. Því er litið á börn
og starfsfólk sem samverka-
menn og samrannsakendur.
Áhersla er lögð á að nota náms-
kenningar sem falla að félags-
legri hugsmíðahyggju en hún
byggir á virkni barnanna sem
nema og að þau læri meira og
betur í samvinnu við aðra en
ein.
Einkunnarorð leikskólans
eru: „Hugmyndir barnsins –
verkefni dagsins“ og á það vel
við. - hs
Hugmyndir barnsins
eru verkefni dagsins
Samvinna skiptir miklu máli á leikskólanum.
Námsflokkar Hafnarfjarðar eru teknir
til starfa og framboð fjölbreytt að venju.
Meðal þess sem er á dagskrá í vetur er
námskeið fyrir verðandi töframenn.
„Ég ætla að kenna öllum töfrabrögð sem
vilja en þetta miðast við tíu ára aldur,“ segir
töframaðurinn góðkunni Jón Víðis Jakobs-
son og bætir við að námskeiðið sé byggt á
bók sem hann gaf út fyrir nokkrum árum.
Sú nefnist Töfrabragðabókin og hefur að
geyma leyndardóminn að baki nokkrum vel
völdum brögðum.
„Við lærum hugsunina á bak við töfra-
brögð og hvernig þau eru framkvæmd.
Klassísk brögð eins og að festa töfrastaf,
draga pening úr eyra, trefil í gegnum háls
og nokkra spilagaldra að auki. Jafnvel að
breyta stelpu í strák ef tími gefst.“
Að sögn Jóns byggja töfrabrögð af þessu
tagi á sjónhverfingum sem eiga lítið skylt við
galdra og því skulu nemendurnir ekki búast
við að geta lyft hlutum með hugarorkunni
einni saman eða flogið þegar þeir útskrifast.
„Töframenn geta alls ekki flogið. Þeir geta
hins vegar látið líta út sem svo sé.“
Þar af leiðandi getur hver sem er lært
að verða töframaður, ólíkt galdramönn-
um sem eru aðeins útvaldir eins og í tilviki
Harry Potter. „Maður verður ekki góður
nema að æfa sig,“ segir Jón. „Ég kenni
brögð sem eru einföld kunni maður þau.
En það þarf að tileinka sér kunnáttuna svo
að aðferðin sjáist ekki.“
Töfrabragðanámskeiðin hefjast 2. okt-
óber og hægt að skrá sig á námskeið fyrir
börn á aldrinum tíu ára og eldri og sextán
ára og eldri. Nánar á www.namsflokkar.
hafnarfjordur.is - rve
Breytir stelpu í strák
Jón Víðis er formaður Hins íslenska töframannagildis, sem eru samtök íslenskra töframanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jón stendur fyrir komu töframanns-
ins David Jones, sem sýnir í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu 1. nóvember.
SÓFASETT
MaryPaula
Hermes Barbara