Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 44
Leikstjórinn og leikkonan Eyrún Ósk
Jónsdóttir aðstoðaði ungverska kvik-
myndagerðarmenn við gerð teikni-
myndar um Egil Skallagrímsson.
Ungverskir kvikmyndagerðarmenn voru
nýverið staddir í Hafnarfirði til að viða að
sér efni fyrir nýja teiknimynd í fullri lengd
um Egil Skallagrímsson. Eyrún Ósk Jóns-
dóttir, leikkona og leikstjóri, skipulagði
komu hópsins til landsins og var gestunum
innan handar á meðan á dvöl þeirra stöð.
„Þetta æxlaðist þannig að ég var úti í
skóla með ungverskum strák, sem ég fékk
í fyrra til að leika í einleiknum Ofurhetjan,
sem ég skrifaði og leikstýrði,“ segir Eyrún.
„Hann fór með upptökur af leikritinu
til Ungverjalands og þar komst leikstjóri
myndarinnar, Erik Novák, yfir þær. Erik
var þá á leiðinni til Íslands ásamt tökuliði og
vantaði einhvern til að skipuleggja ferðina.
Í framhaldi af því var haft samband við
mig.“
Að sögn Eyrúnar var tilgangur fararinnar
að ná andlits- og landslagsmyndum og
mynda hesta á tölti, sem yrðu teiknað-
ir ofan í og notaðir í myndina. Fjöldi
Íslendinga kom nálægt vinnunni, þeirra á
meðal starfsmenn fyrirtækisins Kaoz, RÚV
og Landnámsseturs Íslands auk rekstrar-
stjóra skátaheimilisins Hraunbúa og föður
hennar, Jóns Hlíðars.
„Þau tóku mikið upp í Borgarfirði, Krýsu-
vík og Hafnarfirði,“ segir Eyrún og bætir
við að Hafnarfjörður hafi hentað vel vegna
þess hversu stutt var til hinna tökustaðana,
auðvelt að komast í tæri við hesta og svo
hafi ungverski leikarinn úr Ofurhetjunni
mælt með Hraunbúum sem heppilegu gisti-
heimili.
Eyrún segir Ungverjana hafa skemmt
sér konunglega á meðan á tökum stóð og
þótt mikið til íslenskrar náttúru koma. „Þau
voru mjög hrifin og ætla að koma hingað
aftur fljótlega. Nú eru þau að ganga frá
styrkjum eftir vinnuna hér. Ætla að sýna
myndbúta til að fá samstarfsaðila til liðs við
sig, bæði úti og hér heima.“
Spennandi verður að fylgjast með vinn-
unni en ráðgert er að frumsýna myndina
árið 2009. - rve
27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12 fréttablaðið hafnarfjörður
Eyrún stýrir sem kunnugt er Jaðarleikhúsinu. Hér er hún ásamt föður sínum Jóni Hlíðari, sem hjálpaði til
við skipulagninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Teiknimynd um víkinga
Þessi mynd er tekin úr bæklingi um teiknimyndina.
Á vef Hafnarfjarðarbæjar blogga
bæjarfulltrúar á heimasvæði vefsins.
Svæðið er vettvangur fulltrúanna til
að koma skoðunum sínum á framfæri
og um leið gera bæjarbúum kleift að
fylgjast með störfum þeirra.
Jafnframt kemur fram á vefnum
að bloggið sé fyrst og fremst persónu-
legar skoðanir og vangaveltur ein-
staklingsins. Þær skoðanir sem koma
fram endurspegla ekki endilega skoð-
anir eða stefnu Hafnarfjarðarbæjar.
Aðalbæjarfulltrúar sem eru skráðir
með blogg eru Lúðvík Geirsson, Ellý
Erlingsdóttir, Haraldur Þór Ólason,
Guðmundur Rúnar Árnason, Margrét
Gauja Magnúsdóttir, Rósa Guðbjarts-
dóttir, Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir, Guðfinna Guðmundsdóttir,
Gunnar Svavarsson, Almar Grímsson
og Gísli Ó. Valdimarsson. - rh
Bloggandi
bæjarfulltrúar
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
er meðal aðalbæjarfulltrúa sem blogga á
vefsíðu bæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI