Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 46
27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið hafnarfjörður
Hafnfirðingurinn Sigríður Ásta Árnadóttir hefur
getið sér gott orð fyrir endurunninn ullarfatnað.
„Ég er menntaður textílhönnuður og hef alltaf
verið haldin hálfgerðri ullarpeysuáráttu,“ segir Sig-
ríður spurð út í hugmyndina á bak við hönnunina,
sem er í skrautlegri kantinum.
„Svo átti ég einu sinni ullarpeysu inni í skáp sem
mér þótti svo leiðinleg og óspennandi að ég ákvað
að breyta henni og hekla á hana alls konar skraut.“
Smám saman vatt þetta upp á sig og fyrr en varði
var Sigríður komin með heilan ullarpeysulager.
Hún fékk síðan inni í Kirsuberjatrénu þar sem
fatnaðurinn fæst nú undir merkinu Kitchfríður.
„Kitch merkir eitthvað sem er ofhlaðið og ósmekk-
legt og það sem ég hanna er bæði skrautlegt og lit-
ríkt á íslenskan mælikvarða,“ segir Sigríður um
nafngiftina. „Þegar ég var í námi fékk ég skot á mig
fyrir að vera yfirdrifin og ákvað bara að snúa því
mér í hag, með því að vinna með það sem er kitch.“
Útkomuna má sá hér á síðunni og óhætt að segja
að orðin litríkt og skrautlegt nái vel að lýsa henni.
- rve
Ullarpeysuáráttan
Föt Sigríðar eru að vissu leyti afturhvarf til fortíðar.
Margir þekkja Sigríði undir nafninu Kitchfríður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sigríður leggur mikinn metnað í fatnaðinn.
Hjólreiðafélag hafnfirskra
kvenna er hópur hressra kvenna
sem vill auka sýnileika hjólreiðar-
menningar í Hafnarfirði.
„Segja má að kveikjan hafi
verið leti okkar stofnendanna.
Við höfðum keypt okkur hjól og
notuðum þau aldrei. Við ákváðum
þess vegna að stofna klúbb til að
beita okkur sjálfar þrýstingi, svo
við færum út að hjóla minnst einu
sinni í viku,“ segir Eiríksína Kr.
Ásgrímsdóttir, sem er í forsvari
fyrir Hjólreiðafélag hafnirskra
kvenna.
Félagið var formlega stofnað
á sjálfum kvennafrídeginum árið
2006 og fóru viðtökurnar fram
úr björtustu væntingum. Hundr-
að konur skráðu sig í félagið á
fyrstu tveimur mánuðunum en
á bilinu þrjátíu til fjörtíu þeirra
eru nú virkar og vekja mikla
athygli að sögn Eiríksínu þegar
þær þeysast um götur bæjarins.
„Það hefur stundum legið við
árekstri þegar hersingin mætir
á svæðið,“ segir hún og hlær.
„Karlarnir verða alveg lamaðir
af skelfingu og vita náttúrulega
ekkert hvert allar þessar víga-
legu konur eru að æða. Það er
flautað á okkur og hvaðeina.“
Eiríksína segir að þótt félagið
sé eingöngu ætlað konum hafi
karlarnir tekið virkan þátt í
starfinu meðal annars með því að
kenna konum sínum á hjólin og
séu því einskonar meðhjálparar.
„Þeir mega auðvitað alveg koma
með. Við flöggum þeim svona
spari.“
Hópurinn hittist klukkan
20.00 á miðvikudagskvöldum og
11.00 á laugardagsmorgnum við
Hafnarborg en nú fara að verða
síðustu forvöð að mæta þar sem
félagið fer í frí í vetur. Áhuga-
sömum er bent að hafa samband
við Eiríksínu í síma 690 4583. -rve
Liggur við árekstri
Eiríksína með hjól sitt sem hún notar mikið í vinnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Strandgata 55
220 Hafnarfjörður
Iceland
Tel: 565-1213
Fax: 565-1891
vikings@fjorukrain.is
w w w . f j o r u k r a i n . i s - P ö n t u n a r s í m i 5 6 5 1 2 1 3
Heitur pottur og sauna !
- ATH. Morgunmatur innifalinn í öllum pökkum.
Tilboð gilda til 15. apríl 2008.
Aukagistinótt kostar kr. 4.000 á mann fyrir herbergið.
4. Sælkerapakki:
Gisting og kvöldverður með þriggja rétta
sælkeraveislu í Fjörunni.
Í tveggja manna herbergi kr. 9.000 á mann.
5. Fyrirtækjapakkinn:
Tilvalið í miðri viku, fyrir innlenda sem erlenda
gesti í viðskiptaerindum
Gisting með kvöldverði (súpa,
kjöt eða fiskur, kaffi) í Fjörunni eða
í Víkingaveislu í Fjörugarðinum.
Tveggja manna herbergi kr. 8.000 á mann.
2. Þorrapakki:
Gisting og fordrykkur með þorrahlaðborði
í Fjörugarðinum.
Í tveggja manna herbergi kr. 9.000 á mann.
3. Árshátíðarpakki:
Gisting með fordrykk og þriggja rétta
hátíðarkvöldverði í Fjörugarðinum.
Í tveggja manna herbergi kr. 10.500 á mann.
1. Jólapakki:
Gisting og morgunverður með jólahlaðborði
í Fjörugarðinum.
Í tveggja manna herbergi kr. 9.000 á mann.
*Gildir frá föstudeginum 23. nóvember 2007.
Öðruvísi stemning -
syngjandi víkingar og valkyrjur