Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 66
Vestrarnir virðast síður en
svo dauðir úr öllum æðum
og ef fram fer sem horfir
verða tvær kvikmyndir í
baráttunni um hylli áhorf-
enda í vetur.
Hollywood tekur með reglulegu
millibili ástfóstri við þetta tíma-
bil í bandarískri sögu. Hetjurnar
með Stetson-hattinn og sexhleyp-
una hafa fengið ófáan drenginn
til að skella á sig kúrekahatt,
klæðast vesti og gallabuxum og
skella sér útí byssuó. Þessi kvik-
myndagerð á auk þess sinn þátt í
því að hafa gert leikara á borð við
John Wayne og Clint Eastwood að
mestu kvikmyndastjörnum sög-
unnar. Hver sá sem vill því telj-
ast leikari með leikurum verður
að minnsta kosti að hafa riðið um
slétturnar á hundtryggum hesti.
En þrátt fyrir að vestri sé góð
uppskrift að mikilli velgengni þá
koma slíkar myndir yfirleitt í
hrönnum en hverfa þess á milli.
Síðast var það nánast fullkominn
vestri Clints Eastwood, The
Unforgiven, sem sópaði að sér
Óskarsverðlaunum en sagan um
morðingjann William Munny og
baráttan við lögreglustjórann
Little Bill Daggett fór vel ofan í
áhorfendur og akademíuna.
Venju samkvæmt fann Holly-
wood smjörþefinn af skjótfengn-
um gróða og árið eftir komu tvær
kvikmyndir með skömmu milli-
bili sem fjölluðu um hinn
réttsýna Wyatt Earp þar sem
Kurt Russell og Kevin Cost-
ner skiptust á að leika hinn
skeggprúða lögreglustjóra.
En síðan þá hefur varla heyrst
né spurst til villta vestursins á
hvíta tjaldinu.
Á föstudaginn má
segja að nýtt
„vestra“-tíma-
bil hefjist en þá verður stór-
myndin 3:0 to Yuma frumsýnd.
Myndin skartar þeim Russell
Crowe og Christian Bale í aðal-
hlutverku en söguþráðurinn er
sígild barátta góðs og ills þar sem
meðalljónið berst fyrir lífi
sínu við harðskeytta og
blóðþyrsta bandíta. 3:10
to Yma hefur verið spáð
mikilli velgengni á kom-
andi Óskarstímabili
enda ákvað dreifingar-
aðilinn að koma
henni strax í
sýningu
þannig að
hún yrði
fáanleg á
DVD-
mynddisk
þegar
Óskar-
sakademían gengi að kjörborð-
inu. Þótt hinni hörundsáru Aka-
demíu þyki fátt jafn skemmtilegt
og að láta ástralska ólátabelginn
Russell Crowe hafa styttuna þá
gæti The Assassination of Jesse
James by the Coward Robert
Ford sett strik í reikninginn.
Myndin greinir frá síðustu dögum
einhvers þekktasta útlaga Banda-
ríkjanna, Jesse James, sem klíku-
félagar hans myrtu skömmu fyrir
eitt stærsta rán þeirra. Brad Pitt
fer með hlutverk Jesse James en
Casey Affleck (sem er litli bróðir
Bens Affleck) leikur hugleys-
ingjann Robert Ford. Síðan má
ekki gleyma Appaloosa með þeim
Ed Harris, Viggo Mortensen og
Renée Zellweger sem er hugsuð
fyrir næsta ár en gefur sterklega
til kynna að vestrarnir séu komn-
ir í tísku aftur.
Kvikmyndarinnar Superbad
hefur verið beðið með mikilli
óþreyju enda hefur hún verið
hlaðin lofi af bandarískum gagn-
rýnendum og vilja sumir meina
að þetta sé einfaldlega besta
gamanmyndin í háa herrans tíð.
Myndin er byggð á strákapör-
um handritshöfundanna Evan
Goldberg og Seth Rogen en sá
síðarnefndi fer jafnframt með
stórt hlutverk í myndinni. Aðal-
persónurnar, sem svo skemmti-
lega vill til að bera nöfn hand-
ritshöfundanna, eru lúðar af
bestu gerð. Þeir bjóða sig fram
við að útvega áfengi fyrir
útskriftarteiti en á bak við góð-
mennsku þeirra býr hins vegar
djöfullegt skipulag. Þeir Evan
og Seth ætla nefnilega að sjá til
þess að fallegustu fljóðin fái nóg
af áfengi og sjá svo til þess að
þeir verði þessi „mistök“ sem
þær eigi eftir að minnast með
hryllingi í framtíðinni.
Þeir Rogen og Goldberg eru
taldir vera verðugir arftakar
hinna svokölluðu frat-pack klíku
sem hefur ráðið lögum og lofum
yfir bandarísku gríni að undan-
förnu.
Þeir félagar eru æskuvinir og
unnu meðal annars saman að
lokaþáttaröð Da Ali G-Show.
Rogen og Goldberg þykja með
eindæmum afkastamiklir og
hafa nú þegar lagt lokahöndina á
Pineapple Express sem væntan-
lega verður frumsýnd á næsta
ári en það yrði þá þriðja myndin
þeirra á jafnmörgum árum.
Ofurvondir unglingsstrákar
Clint Eastwood mun að öllum lík-
indum leikstýra góðvini sínum,
Morgan Freeman, í kvikmynd um
Nelson Mandela. Samkvæmt kvik-
myndavef Empire er talið líklegt
að Matt Damon bætist í hópinn.
Eastwood og Freeman kunna upp-
skriftina að Óskarsverðlauna-
myndum en þeir gerðu saman The
Unforgiven og Million Dollar
Baby sem báðar hömpuðu stytt-
unni góðu.
Myndin verður að öllum líkind-
um ekki frumsýnd fyrr en 2010
sökum verkfalls leikara sem
lamar Hollywood á næsta ári.
Hún er byggð á bókinni Human
Factor eftir John Carlin og gerist
skömmu eftir að aðskilnaðar-
stefnan í Suður-Afríku líður undir
lok. Þá var ákveðið að heims-
meistaramótið í ruðningi skyldi
fara fram í Jóhannesarborg þrátt
fyrir að landslið Suður-Afríku
hefði ekki fengið að taka þátt í því
áður vegna stjórnmálaástandsins
heima fyrir.
Talið er líklegt að Damon komi
til með að leika fyrirliða lands-
liðsins en ekki liggur fyrir hvort
Eastwood hyggst sjálfur leika eitt
aðalhlutverkanna.
Morgan Freeman
verður Mandela
Fann skúrkinn í sjálfum sér hjá Lecter
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.