Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 73
Hljómsveitirnar Benny
Crespo’s Gang og Royal For-
tune koma fram á tónleikum
á Organ í kvöld. Benny
Crespo´s Gang, sem er með
tónlistarkonuna Lay Low
innanborðs, er að leggja
lokahönd á sína fyrstu plötu,
sem er væntanleg í búðir 19.
október. Sama dag kemur
sveitin fram á Iceland Air-
waves-hátíðinni.
Tónleikarnir hjá Benny
Crespo´s Gang eru þeir fyrstu síðan í maí og bíða aðdáendur
sveitarinnar því spenntir eftir að heyra nýja efnið. Royal For-
tune, sem er ólíkindablanda fimm einstaklinga úr Reykjavík,
kemur einnig fram á Airwaves-hátíðinni. Tónleikarnir í kvöld
hefjast klukkan 22.00.
Benny og Royal spila
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, verð-
ur sett formlega í kvöld en þá verður heimildarkvik-
myndin Sigur Rós – Heima frumsýnd að viðstaddri
hljómsveitinni sjálfri og kvikmyndagerðarmönnunum.
Hátíðin hefur sjaldan eða aldrei verið jafn glæsileg
en búist er við að tvö hundruð erlendir gestir sæki
hana heim. Alls 87 myndir verða sýndar á hátíðinni en
fimmtán þeirra berjast um aðalverðlaun hátíðarinnar,
Gullna lundann. Þar að auki verður bryddað upp á
skemmtilegum nýjunum, svo sem sýningu Jaws í
Laugardalslauginni og bílabíói í flugvélaskýlinu á
gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ.
Þar að auki verður blásið til finnskrar veislu þegar
leikstjórinn Aki Kaurismäki kemur og veitir sérstök-
um heiðursverðlaunum viðtöku en auk hans mun
Peter Greenaway og Hanna Schygulla verða sérstakir
gestir hátíðarinnar. Þá verður einnig fróðlegt að sjá
hvernig Embla kemur út á hvíta tjaldinu en það er
endurklippt útgáfa af víkingamynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Hvíti víkingurinn.
Kvikmyndahátíðin sett í kvöld
Ég leyfi mér hiklaust
svolítið dekur
Morgunmatur kemur brennslunni í gang og gefur þér orku
til að byrja daginn. Kellogg's Special K er bragðgóður og
hressandi morgunmatur og með honum færðu mörg
lífsnauðsynleg vítamín eins og t.d. fólínsýru og síðast en
ekki síst járn.
...ekki nema 90 hitaeiningar
„Það er fátt mikilvægara en að hugsa vel um heilsuna. Ég
borða þess vegna hollan mat og hreyfi mig reglulega og
finnst algjörlega ómissandi að fara í nudd öðru hverju. En við
konur megum samt ekki gleyma að dekra svolítið við okkur.
Það er til dæmis frábært að skipta stundum yfir í Kellogg's
Special K Red Berries í morgunmat, það er ótrúlega
bragðgott, með berjabitum saman við en fitulétt og fullt af
nauðsynlegum næringarefnum eins fólínsýru og járni. Ég
leyfi mér líka hiklaust Special K bliss á milli mála ef
sætuþörfin grípur um sig án þess að hafa minnstu áhyggjur
af því að ég sé að spilla kröftugri ferð í ræktina þann daginn.
Special K bliss stangirnar eru algjör himnasending, með
ávöxtum og dökku súkkulaði en bara 90 hitaeiningar.“
Hulda Björk Garðarsdóttir, óperusöngkona
Bragðgóðar nýjungar
frá Kellogg’s Special K:
Kellogg’s Special K bliss og
Kellogg’s Special K red berries
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
2
6
5
0