Fréttablaðið - 27.09.2007, Qupperneq 75
Undanúrslitaleikir
Powerade-bikars karla í körfu-
bolta fara fram í Laugardalshöll-
inni í kvöld. KR og Skallagrímur
mætast í fyrri leiknum klukkan
19.00 og seinni leikurinn er síðan á
milli Njarðvíkur og Snæfells.
Fréttablaðið fékk Friðrik Ragnars-
son, þjálfara Grindavíkur, til þess
að spá í leikina.
Íslandsmeistarar KR slógu út
Hamar í átta liða úrslitunum og
mæta liði Skallagríms sem fór í
sigurferð til Grindavíkur og sló
lærisveina Friðriks út. „Ég hallast
nú að því að KR vinni þó að mér
finnist Borgnesingar með fínt lið.
Þeir voru að spila mjög á móti
okkur en KR-ingar eru einfaldlega
gríðarlega sterkir og mjög vel
mannaðir,“ segir Friðrik um fyrri
undanúrslitaleikinn.
Njarðvík sló ÍR út í átta liða
úrslitunum og mætir liði Snæfells,
sem vann nýliða Þórs frá Akureyri
til þess að komast í Höllina.
„Njarðvíkingar hafa bætt við sig
mönnum og eru orðnir mjög vel
mannað lið að mínu mati. Ég spái
því að þeir vinni Snæfell. Njarðvík
er reyndar svolítið óskrifuð stærð
þar sem mikið er af nýjum
mönnum þar en ég sá leikinn hjá
þeim á móti ÍR og þá unnu þeir
eins og gömul dísilvél,“ segir
Friðrik en hann er samt mjög
hrifinn af Snæfellsliðinu. „Mér
finnst Snæfellsliðið stórskemmti-
legt og vel mannað en það eru
fleiri leikmenn sem geta skorað
20+ stig í Njarðvíkurliðinu heldur
en hjá Snæfelli og það gæti ráðið
úrslitum,“ segir Friðrik.
Friðrik býst því við að erki-
fjendurnir KR og Njarðvík glími
um enn einn titilinn á sunnudaginn.
„Þetta eru allt hörkulið sem eftir
eru í keppninni. Það er því ekkert
hægt að afskrifa Borgarnes eða
Snæfell því bæði lið eru mjög
sterk en mér finnst líklegt fyrir
fram að það verði KR og Njarðvík
sem spili til úrslita,“ sagði Friðrik
að lokum.
Spáir KR og Njarðvík í úrslit
Hreiðar Levy Guð-
mundsson byrjar frábærlega með
sænska úrvalsdeildarliðinu
Sävehof en hann hefur varið 40
skot í fyrstu tveimur leikjum
liðsins, sem báðir hafa unnist.
Hreiðar varði 20 skot og 2 víti í
32-23 sigri á GUIF um helgina og
hafði varið 20 skot í 38-31 útisigri
á Lindesberg í fyrstu umferðinni.
Aðeins einn markvörður í sænsku
deildinni hefur varið fleiri skot í
fyrstu tveimur umferðunum en
það er Richard Kappelin í liði
Alingsås sem hefur varið 46 skot.
Hreiðar hefur varið 43% skota
sem á hann hafa komið en
Sävehof er eitt fjögurra liða sem
hafa unnið fyrstu leiki sína.
Búinn að eiga
tvo stórleiki
Sigfús Páll Sigfússon,
handboltamaður í Val, spilaði
loksins sinn fyrsta leik fyrir sitt
nýja félag á þriðjudag eftir
langþráða bið. Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Vals, er ekki
síður feginn að málinu sé lokið.
„Þetta er búinn að vera erfiður
tími fyrir Sigfús og ég er
ánægður fyrir hans hönd og mér
fannst hann koma vel inn í þetta
og aðlagast fljótt,“ sagði Óskar,
sem harmar mjög hversu
félagsskipti Sigfúsar drógust á
langinn.
Sigfús Páll skoraði eitt mark úr
þremur skotum leiknum. -
Sigfús spilaði
loksins með Val
Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050
Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is
Munið vinsælu
gjafabréfin okkar
Öll kasthjól – 40% afsláttur
Kaststangir 20-50% afsláttur
Fluguhjól 15-50% afsláttur
Flugustangir 15-50% afsláttur
Öndunarvöðlur frá 9.995
Veiðivesti frá 1.995
10 stk. spúnar aðeins 1.990
Lítið notaðar leiguvöðlur aðeins 5.000
Sjókayakar 15-30% afsláttur
Þurrbúningar og vesti 15-50% afsláttur
Valdar haglabyssur 20-30% afsláttur
Felufatnaður 15-50% afsláttur
Útsalan hefst í dag og lýkur 7. október
Vinsælustu vörurnar seljast alltaf upp fyrst
Sjókayakar, fatnaður og búnaður aðeins í Sportbúðinni Krókhálsi 5. Skotvopn og felugallar aðeins í
Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Leiguvöðlur aðeins í Veiðihorninu Síðumúla)
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
BARA Í FÁEINA DAGA
Avram Grant, nýráðinn
stjóri Chelsea, þarf á undanþágu
að halda til þess að stýra liði
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni
vegna þess að hann hefur ekki
svokölluð UEFA Pro réttindi sem
eru skylda fyrir stjóra í deildinni.
Síðustu stjórar til þess að fá
þessa undanþága voru Glenn
Roeder og Gareth Southgate en
aðeins eitt félag í deildinni
mótmælti undanþágunni sem
þeim var veitt og það var
Manchester United. Líklegt er að
United geri slíkt hið sama í máli
Avram Grant, en hvort það ber
árangur mun tíminn einn leiða í
ljós. -
Þarf á undan-
þágu að halda