Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Mér finnst voða gott að fá mér
pakkanúðlusúpur með kjúkl-
ingabragði. Eftir að ég er búinn
að hita súpuna í þrjár mínútur
í örbylgjuofni set ég piparost
út í.“
Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar
erfðagreiningar,
fékk kvikmynda-
handrit frá
Baltasar Kormáki
til yfirlestrar en um
er að ræða spennu-
mynd sem fjallar
um líffærastuld í
þróunarlönd-
unum. „Ég vildi
nú bara athuga
hvort allar
læknisfræði-
legar stað-
reyndir væru
ekki örugg-
lega á
hreinu,“
sagði Baltasar þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. Kári gerði engar athugasemdir við
handritið. Myndin hefur hlotið vinnuheitið Run
for Her Life en að sögn Baltasars á enn eftir að
finna leikara í myndina og því er hún á algjörum
byrjunarreit.
Leikstjórinn stendur frammi fyrir hálf-
gerðu lúxusvandamáli þessa dagana því
honum stendur einnig til boða að leikstýra
tveimur öðrum mjög frambærilegum
myndum, þar á meðal einni þar sem
Óskarsverðlaunaframleiðandinn Bob
Yari er maðurinn á bak við tjöldin.
„Ég er ennþá að bræða það með
mér hvað ég geri,“ segir
Baltasar. „Maður reynir að
hanga á þessu eins og maður
getur. Kannski bíð ég bara
þangað til Mýrin hefur verið
frumsýnd í Bandaríkjunum
og sé síðan hvað gerist,“ útskýrir hann en
viðurkennir um leið að töluvert sé verið að
pressa á hann að taka ákvörðun sem fyrst.
Baltasar er annars önnum kafinn og segist
ætla að koma frá sér þeim verkefnum sem
hann hefur þegar lofað sér í. Verið er að
klippa kvikmyndina Brúðgumann og
svo hyggst hann taka fram
leikaraskóna á ný í kvikmynd
Óskars Jónassonar, Reykjavík-
Rotterdam, en það eru Óskar
Jónasson og Arnaldur Indriðason
sem skrifa handritð. „Þetta er án
efa eitt skemmtilegasta handrit sem
ég hef lesið,“ segir
Baltasar en
áætlað er að
tökur hefjist í
næstu viku.
Kári Stefáns las yfir handrit fyrir Baltasar
Heimildarmyndin Reiði guðanna,
eða Wrath of Gods, vann til enn
einna verðlauna á kvikmynda-
hátíð í Portúgal fyrr í þessum
mánuði. Hún hefur því samanlagt
unnið til fimm verðlauna á
hátíðum víðs vegar um heiminn.
„Myndin var opnunarmynd
hátíðarinnar og fékk verðlaun
dómnefndar,“ segir Jón Gústafs-
son, sem gerði myndina þegar
hann var aukaleikari í kvikmynd-
inni Bjólfskviðu eftir Sturlu
Gunnarsson. Reiði guðanna
fjallar um gerð þeirrar myndar
og þá erfiðleika sem framleið-
endur lentu í hvað varðar óblíð
náttúruöfl og fjármagn.
„Á hátíðinni í Portúgal var
blandað saman myndum um gerð
bíómynda og svo bíómyndunum
sjálfum. Reiði guðanna var eina
myndin sem ekki var sýnd með
myndinni sem hún fjallar um
enda er hún í fullri lengd og
stendur alveg ein og sér. Þetta er
sjálfstæð saga um mann sem
leggur allt í sölurnar til þess eins
að búa til kvikmynd og lendir í
óhemju erfiðleikum.“
Íslendingar fá tækifæri til þess
að sjá myndina í lok október
þegar hún verður sýnd á RÚV en
það hafði gengið fremur hægt að
selja myndina hérlendis. „Þegar
Þórhallur loksins horfði á mynd-
ina fattaði hann hvað þetta er frá-
bær mynd og ákvað að kaupa
hana,“ segir Jón en myndin hefur
þegar verið seld til Kanada og til-
boð frá Bandaríkjunum er í skoð-
un. „Í gær fékk ég boð um að
koma á Zion-kvikmyndahátíðina í
Utah, þaðan fer myndin á hátíð í
Flórída og loks til Beirút.“
Jón Gústafsson enn á sigurbraut
„Þetta er stærsta svona kosning á netinu hér og það
er tekið mikið mark á þessu. Þetta er vissulega
mikill heiður fyrir okkur,“ segir Friðrik Weiss-
happel, veitingamaður í Kaupmannahöfn. Friðrik og
félagar hans eiga og reka tvö kaffihús þar í borg
sem kallast The Laundromat Café. Vefsíðan Alt on
Köbenhavn, Aok.dk, stendur árlega fyrir kosning-
unni Byens bedste þar sem markmiðið er að finna
eftirtektarverða og skemmtilega hluti í Kaupmanna-
höfn. The Laundromat Café er einn fimm veitinga-
staða sem tilnefndir eru fyrir besta „brunch“-inn, en
morgunverðarhlaðborð Friðriks og félaga hefur
verið rómað frá því staðurinn var opnaður. Þetta
ætti að vekja mikla athygli á staðnum enda er Aok.
dk ein af fimm mest sóttu vefsíðum Danmerkur að
sögn Friðriks.
„Þetta er náttúrlega alveg frábært. Hérna úti fara
líka nánast allir í brunch um helgar. Það er bara
rútína hjá mörgum að fara á fætur um 10 og beint út
í brunch. Mér finnst þetta mjög góður siður,
sérstaklega þegar vinahópar eða fjölskyldur nota
þetta tækifæri til að hittast,“ segir Friðrik, sem
vonast að sjálfsögðu eftir stuðningi að heiman, að
Íslendingar greiði veitingastaðnum atkvæði í
kosningunni. „Það hafa tugþúsundir Íslendinga
komið til okkar síðustu fjögur ár og ég hvet alla sem
hafa smakkað matinn okkar til að leggja lóð sitt á
vogarskálarnar.“
Ítarlega er fjallað um The Laundromat Café á
Aok.dk. Þar er meðal annars að finna grein um bestu
hamborgarana sem fást í Kaupmannahöfn og er
staðurinn einn af fimm veitingastöðum sem nefndir
eru til sögunnar í þeim geira. Auk þess er vísað inn
á almenna umfjöllun um staðinn þar sem meðal
annars er að finna eftirfarandi kafla um Friðrik:
„Það var einu sinni smiður. Hann bjó á Íslandi.
Hann kynntist eitt kvöldið ljóshærðri danskri stúlku
í hestaferð. Kvöldið hefði getað verið upphaf og
endir þessarar sögu hefði stúlkan ekki boðið
smiðnum í partí í Kaupmannahöfn. Smiðurinn hreifst
af stúlkunni og ílengdist í Kaupmannahöfn. Þannig
kom það til að Friðrik og þrír vinir hans eiga í dag
tvö kaffihús hér, The Laundromat Café.“ Síðan eru
liðin fjögur ár og Friðrik og félagar hafa komið sér
vel fyrir í borginni. Eins og Fréttablaðið greindi frá í
vikunni á Friðrik von á fyrsta barni sínu í janúar
með danskri unnustu sinni. Mánuði fyrr fagnar hann
fertugsafmæli sínu svo það er í mörg horn að líta.
Netkosningin hefst á hádegi á föstudag og stendur
í tvær vikur. Slóðin er Byensbedste.aok.dk.