Fréttablaðið - 27.09.2007, Page 80
Athafnamenn ágirnast landið, orkuna, vatnið, fiskinn.
Mestur gróði fæst eflaust með því
að leggja þjóðfélagið niður, ekki
bara málið og krónuna. Hverjum
Íslendingi eru því boðnar 100
milljónir í vasann fyrir að yfir-
gefa landið. Þú mátt aldrei snúa
aftur, enda svo sem ekki til mikils
að snúa þegar allir eru fluttir í
burtu og bara risavaxnar verk-
smiðjur með innfluttum þrælum
eftir. Værirðu til í þetta?
dæmi setti ég upp fyrir
Lufsuna og vitandi það að við fjöl-
skyldan fengjum 400 millur og
tækifæri til að hefja nýtt líf í Kan-
ada (frábærasta land í heimi sam-
kvæmt Michael Moore og varla
lýgur hann) komumst við að þeirri
niðurstöðu að já, við værum alveg
til í tuskið. Ég meina, þegar allt
kemur til alls, hverjir eru kostirn-
ir við Ísland? Svona fyrir utan það
að allir sem þú þekkir eru hérna?
Ef þeir væru allir komnir við hlið-
ina á þér í úthverfi í Montreal,
hvað væri þá eftir? Sundlaugarnar?
Skyrið?
er það veðrið. Ekki er það
verðlagið og blygðunarlaust okrið
– halló! Lækkun virðisauka-
skatts!? Ekki er það endalaus
djöfulgangurinn og ruglið. Ekki er
það fámennið og fábreytnin. Ekki
er það hröð breyting samfélagsins
frá tiltölulega jöfnu samfélagi í
það að hrottalegur ójöfnuður lands-
manna þykir eðlilegur. Hver
samþykkti þessar breytingar? Æi
já, við búum í „opnu markaðskerfi“
og svona er þetta „alls staðar
annars staðar“.
fyrir allt þetta slæma er
eitthvað sem heldur aftur af
manni. Hamingjan hjálpi mér,
gæti það verið þjóðarstolt? Gæti
það verið hin fögru fjöll og firnindi
og gleðin yfir góða veðrinu þegar
það kemur loksins? Gæti það verið
kyrrðin og hreina loftið sem má
finna eftir hálftíma reiðhjólaferð
úr bænum? Gæti það verið vonin
um að ástandið lagist og að Ísland
verði einhvern tímann alveg
frábært fyrir alla?
— til hvers? Jú, til að
komast í burtu frá því. Maður
verður að sleppa af og til. Ekkert
er eins frískandi. Og Ísland er líka
til þess að koma aftur til, því eftir
dvöl í sveittri stórborg er undar-
lega ljúft að sjá hraunmolann birt-
ast aftur í nepjunni. Og þar fyrir
utan verða okkur aldrei boðnar
100 millur á kjaft fyrir að fara.
Hver á þá að borga yfirdráttar-
vextina?
Ísland –
til hvers?
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ekkert vandamál
er okkur ofviða
Við metum tíma viðskiptavina okkar mikils og kappkostum að veita úrlausn
á jafnvel erfiðustu vandamálum innan sólarhrings. Þetta kunna viðskiptavinir
okkar að meta, enda eru þeir ánægðustu viðskiptavinir farsímafyrirtækja,
samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni.
Hringdu í 1414 og vandamálið er úr sögunni
Leysum öll vandamál innan sólarhrings
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
1
6
6