Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 4
„Fulltrúar meirihlutans
hafa þolað illa að vera eftirlitslaus-
ir í stjórn REI,“ segir Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar-
innar í borgarstjórn Reykjavíkur
og stjórnarmaður í Orkuveitu
Reykjavíkur (OR). Hann telur
nauðsynlegt að farið verði ofan í
saumana á öllum ákvörðunum
stjórnar fyrirtækisins.
„Fullkanna þarf heimildir stjórn-
armanna til að skammta sjálfum
sér laun, gera kaupréttarsamninga
við starfsmenn og svara þeim
spurningum sem við blasa. Hvers
vegna fékk Bjarni Ármannsson
einn manna að koma að REI og
verða hluthafi án þess að nokkur í
hópi eigenda fyrirtækisins vissi?
Hvers vegna var það ferli þegar
leita átti til nýrra hluthafa og bjóða
þeim að kaupa í fyrirtækinu á
góðum kjörum fyrir hundruðir
milljóna ekki upp á borðinu?,“ sagði
Dagur.
Samkvæmt stofnsamþykktum
REI hafði stjórnin heimild til þess
að auka hlutafé félagsins í 20 millj-
arða án þess að bera það undir
stjórn OR, sem í upphafi var eini
eigandi fyrirtækisins. Síðan hafa
forsendur breyst. Þegar Bjarni
Ármannsson kom inn í félagið sem
stjórnarformaður, og jafnframt
einn eigenda, var ákveðið að stefna
á hlutafjáraukningu í 50 milljarða.
OR yrði kjölfestueigandi í félaginu
með um 40 prósenta hlut. Þetta
breyttist eftir að Geysir Green
Energy (GGE) og REI sameinuðust
undir merkjum REI. Stefnan er nú
sett á að safna enn meira hlutafé
svo hægt verði að ráðast í verkefni
á erlendum vettvangi sem nú eru í
undirbúningi.
Svandís Svavarsdóttir, borgar-
fulltrúi VG og stjórnarmaður í OR,
segir allt ferli REI „með ólíkindum“
og augljóst sé að fulltrúar einka-
geirans stýri atburðarásinni sem sé
afar óviðeigandi í opinberu fyrir-
tæki. „Það var afar spennandi að
sjá það á forsíðu Fréttablaðsins að
vægi [Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar]
borgarstjóra í umræðu um starf-
semi fyrirtækja borgarinnar er
lítið sem ekki neitt. Augljóst er að
þeir félagar Bjarni [Ármannsson]
og Hannes [Smárason] eru farnir
að halda um stýrið og þá er okkar
aðkoma orðin óttalega máttlaus,“
segir Svandís. Hún harmar að OR
hafi ekki getað haft meiri áhrif á
þróun mála. „Þessum mönnum hafa
verið gefnir peningar, rannsóknar-
upplýsingar, sérfræðiþekking og
allt annað sem OR hafði á sínu
borði. Það er ekkert annað sem býr
að baki aðkomu þessara manna
heldur en að reyna að græða sem
allra mest á sem skemmstum tíma.
Það fer illa saman við hugmyndir
og tilgang opinberra fyrirtækja.
Þess vegna þarf að skoða málið frá
upphafi til enda með það að leiðar-
ljósi hvort hagsmunum skattgreið-
enda hafi verið gætt nægilega vel.“
Svandís segir Bjarna og
Hannesi gefnir peningar
Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir vilja að farið verði ofan í saumana á öllum ákvörðunum
Reykjavík Energy Invest (REI) frá stofnun. Ákvarðanir meirihlutans þola illa dagsljósið, segir Dagur.
Bönnuð skæruliðasam-
tök Kosovo-Albana hafa aukið á
spennuna í Kosovo með hótunum
um árásir gegn Serbum og Serbíu.
Alþjóðlegar miðlunartilraunir
standa nú sem hæst, en þær miða
að því að koma stjórnskipun
héraðsins í framtíðarbært form.
Í sjónvarpi Kosovo-Albana voru
á miðvikudag sýndar myndir af
rúmum tug svartklæddra skæru-
liða albanska þjóðarhersins, með
lambhúshettur og alvæpni.
Forsætisráðherra Kosovo, Agim
Ceku, sagði skæruliðasamtökin
vinna gegn hagsmunum Kosovo-
Albana með því að grafa undan
miðlunartilraununum.
Öfgamenn hóta
árásum á Serba
„Það er tvímælaust stefna
skólanefndar og bæjaryfirvalda
að vettvangsferðirnar haldi
áfram enda auka þær fjölbreyti-
leika í námi,“ segir Andrés
Pétursson, formaður skólanefnd-
ar Kópavogs, sem kveður börn í
bænum ekki þurfa að kvíða því að
hætt verði við vettvangsferðir á
vegum grunnskólanna. Komið
hefur fram að menntamálaráðu-
neytið telur ólöglegt að innheimta
gjald fyrir slíkar ferðir líkt og
tíðkast hefur í sumum tilfellum.
„Nú erum við bara að skoða
hvaða leiðir eru færar. Hver skóli
fyrir sig er með töluvert sjálf-
stæði í sínum fjármálum og getur
hagað hlutunum svolítið eftir
eigin höfði,“ segir Andrés.
Ekki hætt við
skólaferðalög
Reykjavíkurborg
hefur auglýst til sölu lóðir undir
57 íbúðir ofan við skógræktina í
Fosssvogi.
Byggingarréttur á lóðunum,
sem eru neðan Sléttuvegar vestan
við Borgarspítalann, verður
seldur hæstbjóðanda. Frestur til
að bjóða í lóðirnar rennur út eftir
þrettán daga, eða föstudaginn 19.
október.
Byggðin verður blönduð með
svipuðu sniði og er innar í Foss-
vogsdalnum. Fjölbýlishús verða
efst á svæðinu en neðar verða
raðhús og tvíbýlishús. Íbúðir í
fjölbýli verða 28. Í raðhúsum
verða þrettán íbúðir og í tvíbýlis-
húsum verða sextán íbúðir auk
sambýlis fyrir fatlaða.
Enn fremur er fyrirhugað að
Hrafnista reisi íbúðir fyrir aldr-
aða, hjúkrunarheimili og þjón-
ustumiðstöð á þessu svæði. Sömu-
leiðis er áætlað að Samtök
aldraðra byggi íbúðir fyrir sína
félagsmenn eins og gert er á
næstu lóð að Sléttuvegi 19-23. Þá
er ætlunin að nemendagarðar
verði á svæðinu sem og almennar
íbúðir í fjölbýli.
Þess má geta að lágmarksboð í
raðhúsalóð er 7,5 milljónir króna
og lágmarksboð í tvíbýlislóð er 15
milljónir fyrir báðar íbúðirnar.
Aðeins er tekið við tilboðum í tví-
býli þar sem tveir aðilar sameinast
um að bjóða í eina lóð.
Skógarlóðir til hæstbjóðenda
Vantar frostlög?
Fáðu áfyllingu af frostlegi
með afmæliskorti Olís
Þú færð afmæliskortið
á næstu Olís-stöð.