Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 11
Hver sem er getur breytt
skráningu hvers sem er í símaskránni,
hvort sem það er símleiðis, í tölvupósti
og jafnvel með því að koma á staðinn.
„Við treystum því að fólk sé ekki að
hringla með skráningu annarra heldur
breyti bara sinni eigin skráningu,“ segir
Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri
Já.is. „Við treystum því að íslenska
þjóðin sé það heiðarleg að hún níðist ekki
á öðrum.“
Fyrir hátt í áratug þurftu allar breyt-
ingar í símaskránni að vera skriflegar en
það var aflagt fyrir sex til sjö árum.
Í dag er hægt að breyta skráningunni
símleiðis, með tölvupósti eða koma á
staðinn og ekki þarf að færa neinar
sönnur fyrir því að viðkomandi hafi
heimild til þess að gera breytinguna.
„Við tökum niður úr hvaða símanúmeri
var hringt en það er hægt að hringja úr
leyninúmeri og þá sjáum við ekki númerið.
Við höfum fyrir vinnureglu að senda
tölvupóst til baka, til dæmis þegar fyrirtæki
breyta skráningu, en við hringjum ekki í
fyrirtækið og spyrjumst fyrir,“ segir hún.
Um fjörutíu þúsund breytingar eru
gerðar á skráningum á ári. „Við komumst
ekki yfir að hringja alltaf til baka. Þessi ár
sem ég hef starfað hjá símaskránni er
teljandi á fingrum annarra handar þar sem
komið hafa upp tilvik sem hafa valdið
leiðindum. Þau hafa aldrei verið hjá
fyrirtækjum.“
Foreldrar barna á
Seltjarnarnesi sem ekki hafa náð
leikskólaaldri eða hafa ekki komist
inn á leikskóla munu fá skattfrjálsa
styrki frá og með áramótum.
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur
samþykkt tillögu þess efnis.
Styrkirnir verða í formi svokall-
aðra heimgreiðslna og eru veittir
foreldrum eftir að fæðingarorlofi
lýkur. Greitt er með börnunum þar
til þau fá inni á leikskóla, lengst til
tveggja ára aldurs. Við ákvörðun
upphæðarinnar var tekið mið af
þeim greiðslum sem nú eru inntar
af hendi hjá bænum vegna barna
hjá dagforeldrum og í einkareknum
leikskólum.
Foreldrar ung-
barna fá greitt
Sendráð Frakklands
mega krefjast lífsýna með
erfðaefni frá fólki
sem sækist eftir
að flytja til Frakk-
lands til að fá að
sameinast
ættingjum sínum
í Frakklandi
samkvæmt
frumvarpi sem
efri deild franska
þingsins sam-
þykkti í gær.
Markmið frumvarpsins er að
sanna fjölskyldutengsl þegar vafi
er á hvort að skjöl viðkomandi
innflytjanda séu ófölsuð.
Frumvarpið þarf að komast í
gegnum aðra atkvæðagreiðslu í
báðum þingdeildum áður en það
verður að lögum.
Einnig er lagt til að þeir sem
þess þurfi fái frönskukennslu.
Innflytjendur
sýni erfðaefni
Keilir hefur keypt tvær
skólabyggingar á gamla varnar-
svæðinu af Þróunarfélagi
Keflavíkur, ásamt byggingar-
lóðum. Í annarri byggingunni var
menntaskóli varnarliðsins til húsa
en í hinni var leikskóli. Báðar eru
þær á svæðinu sem skipulagt er
undir þekkingarsamfélag Keilis.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að heildarvirði samningsins sé
320 milljónir króna, og sé gert ráð
fyrir töluverðum endurbótum á
skólahúsnæðinu. Með kaupunum
tryggi Keilir sér framtíðar-
kennsluhúsnæði og lóð til þróunar
og vaxtar sem duga eigi næstu
áratugi.
Keyptu leik- og
menntaskóla
Reykjavíkurborg
getur nú ráðið fólk sem náð hefur
sjötíu ára aldri til starfa í minnst
33 prósenta starfshlutfall til eins
árs í senn, samkvæmt nýsam-
þykktri tillögu borgarstjóra í
borgarráði. Þó verður sett
skilyrði um að fyrir liggi starfs-
hæfnisvottorð viðkomandi.
Með samkomulagi við yfirmann
verður starfsmönnum þá heimilt
að vinna vinnuskyldu sína af
hendi á mismunandi tímum dags,
viku, mánaðar eða árs.
Þetta er liður í aðgerðum til að
auka atvinnuþátttöku eldri
starfsmanna Reykjavíkurborgar
og koma í veg fyrir manneklu í
umönnunarstétt.
70 ára og eldri í
borgarstörf
Hjón sem eiga
sumarhús í landi Kiðjabergs hafa
kært nýtt deiliskipulag svæðisins
til úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála. Sveitarstjórn
Grímsnes- og Grafningshrepps
samþykkti á fundi í vikunni að
auglýsa nýja skipulagið eftir að
skipulag sem sveitarstjórnin
afgreiddi árið 2005 var úrskurðað
ógilt. Nýja tillagan gengur enn
lengra en sú fyrri varðandi stærð
frístundahúsa sem mega verða allt
að 350 fermetrar með 40 fermetra
aukahúsi. Núgildandi skipulag frá
1990 leyfir að hámarki 60 fer-
metra hús. Mörg hús í Kiðjabergi
eru miklu stærri en það.
Hjón kæra nýtt
deiliskipulag