Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2007, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 06.10.2007, Qupperneq 26
S einni hluti sumars er venjulega heldur syfjulegur tími í heimi stjórnmálanna, hvort heldur inn- anríkis eða á heimsvettvangi. Svo var þó engan veginn nú í ár. Spennan var næstum því áþreifanleg þegar stjórnmálaleiðtogar reyndu hvað þeir gátu að taka á vandamál- unum í Írak, Afganistan og Kosovo jafn- framt því sem veðlánakreppa bankanna minnti okkur á það hve fjármálakerfi heimsins er brothætt. Í þessari veröld frestaðra vandamála, óuppfylltra loforða og staðnaðra átaka verður æ ljósara að við erum of lengi að laga okkur að raunveruleika þess að á alþjóða- vettvangi er allt tengt innbyrðis. Meðal fjöl- margra leikenda á alþjóðasviðinu, þar sem meðal annars má nefna fjölþjóðafyrirtæki, alþjóðastofnanir og frjáls félagasamtök, eru það ríkin, nefnilega stjórnvöld sjálfstæðra ríkja, sem bera mesta ábyrgð, bæði á vanda- málunum og því að leita lausna á þeim. Samt er það afstaða þeirra, sem valdið hefur mestum vonbrigðum og sýnir afturhvarf til hernaðarmynstra fortíðarinnar. Við þurfum að hafa sameiginlega sýn á það hvernig takast skuli á við þau pólitísku, efnhagslegu og umhverfistengdu verkefni sem heimurinn stendur frammi fyrir. Hins vegar er erfitt að rækta slíka einingu í pólitísku andrúmslofti þar sem allt siðferði skortir. Satt að segja er siðferðiskreppa í stjórnmálum í dag, sem gerir það að verkum að nánast ómögulegt er að brúa bilið milli orða og gerða. Bilið er frekar að breikka en mjókka. Leyfið mér að koma með aðeins eitt dæmi um þennan ólæknandi sjúkdóm, þennan skort á siðferði í stjórnmálum. Árið 2000 samþykkti Allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna þúsaldarmarkmið um þróun, áætlun um að tryggja fátækasta fólki heimsins lágmarks virðingu. Meðal annars hét alþjóðasamfélagið því að fyrir árið 2015 skuli fækka um helming þeim sem draga fram lífið á innan við einum Bandaríkjadal á dag og búa við hungur, minnka um tvo þriðju dánartíðni barna yngri en fimm ára, og fækka um helming þeim sem ekki hafa aðgang að vatni. Árið 2005 komst leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna að þeirri niðurstöðu að ekki hafi náðst fullnægjandi árangur í að ná fram þessum markmiðum. Nú, þegar tíminn til 2015 er hálfnaður, varar skýrsla frá Sam- einuðu þjóðunum við því að árangur náist ekki nema helstu ríki heims standi við skuld- bindingar sínar um aðstoð. Ekki einn einasti af leiðtogum helstu ríkja heims hefur brugðist við þessari skýrslu, sem er eitt dæmið enn um að Sameinuðu þjóðunum sé ýtt út á jaðarinn. Þróunar- markmiðanna gætu beðið sömu örlög og þeirra umhverfisskuldbindinga sem sam- þykktar voru árið 1992 á Umhverfis- ráðstefnunni í Rio de Janeiro. Það má heita kaldhæðnislegt að frjáls félagasamtök hafi gert meira til þess að bjarga umhverfinu og aðstoða fátæklinga en stjórnvöld ríkja, sem virðast láta reka á reiðanum án þess að hafa neina heildarsýn eða ábyrgðartilfinningu. Þessu verður ein- ungis breytt með raunverulegri forystu. Ný kynslóð stjórnmálamanna er að taka við, nú þegar kosningar eru ýmist nýlega afstaðnar eða á döfinni í mörgum ríkjum. Þessir stjórnmálamenn hafa tækifæri, sem þeir verða að grípa, til þess að gera mun betur en forverar þeirra. En látið ykkur ekki detta í hug að þeir hafi nægan tíma. Ég kem auga á þrjár ástæður fyrir þessari siðferðiskreppu í stjórnmálum. Sú fyrsta er að alþjóðavæðingin hefur verið sjálfsprottið og blint ferli sem einkum hefur gagnast þeim sem betur stóðu í upphafi. Önnur er þau mannaskipti sem urðu í röðum helstu valdamanna í lok síðustu aldar og að nýrri kynslóð stjórnmálaleiðtoga tókst ekki að hafa stjórn á þessu ferli. Og svo auðvitað upplausn Sovétríkjanna, sem varpaði um koll einni af stoðum heimsskipanarinnar. Sú kreppa, sem nú ríkir í heimsmálunum, er fyrst og fremst kreppa trúnaðartrausts. Við blasir vaxandi vantraust og gagnkvæm tor- tryggni milli helstu leikendanna á heims- sviðinu – Bandaríkjanna, Evrópusambands- ins, Kína, Rússlands og þriðja heims ríkjanna. Þegar traust er ekki fyrir hendi þá Siðferðiskreppa í stjórnmálum Gagnkvæmt traust var forsenda þess að Kalda stríðinu lauk, segir Mikhaíl Gorbatsjov í fimmtu grein sinni í Fréttablaðinu. Jafn- framt fullyrðir hann að leiðtogar helstu ríkja heims hafi snúið af þeirri heillavænlegu braut sem þá var mörkuð. breytast stjórnmálin í hættulegt „stríð allra gegn öllum“, eins og Hobbes orðaði það. Traust var óhjákvæmileg forsenda þess að ljúka Kalda stríðinu og kjarnorkuvopnakapp- hlaupinu. Sovétríkin tóku þar fyrsta skrefið, en Vesturlönd, einkum þó hinir bandarísku félagar okkar, gengu líka sinn hluta leiðar- innar - frá því að eiga í átökum við „heims- veldi hins illa“ þar til Reagan forseti viður- kenndi árið 1988 að sú lýsing heyrði fortíðinni til. Á leiðtogafundinum á Möltu árið 1989 lýstum við því yfir, ég og Bush forseti eldri, að lönd okkar litu ekki lengur hvort á annað sem óvin. Þetta leiddi til þess að þúsundir flugskeyta, skriðdreka og þungavopna voru tekin úr notkun og eyðilögð auk þess sem dregið var úr útgjöldum okkar til hernaðar- mála. Þrátt fyrir þetta eru nú stjórnmálamenn, bæði í Rússlandi og í Bandaríkjunum, sem segja að það hafi ekki verið traust heldur blekking sem leiddi af sér lok Kalda stríðsins, að endalok Kalda stríðsins hafi ekki verið sameiginlegur sigur beggja heldur hafi annar aðili þess reynst klókari en hinn og unnið sigur sem nú gefur honum heimild til að gera hvað sem honum sýnist. Við fáum einnig að heyra það að Vesturlönd hafi af klókindum sínum komið því til leiðar að Sovétríkin leystust upp. Eru þá alþjóðastjórnmál dæmd til þess að vera blekkingarleikur þar sem ávinningur eins er jafnan annars tap? Slík er tálsýn þeirra sem blindast hafa af völdum sínum, og hún er jafn hættuleg eins og hún er ábyrgðarlaus. Við megum ekki láta það líðast að afrakstur- inn af seinni hluta níunda áratugarins verði gleymdur eða afskræmdur. Á þeim árum tókst leiðtogum Sovétríkjanna og vestrænna ríkja að ná fram tímamótaárangri með því að viður- kenna réttmæta hagsmuni og réttmæt áhyggjuefni hver annars. Samningar um fækkun vopna, brotthvarf hersins frá Afgan- istan og um að auðvelda friðsamlega samein- ingu Þýskalands voru tvímælalaust okkur í hag, en mótherjar okkar og heimurinn allur hafa einnig notið góðs af því að stíga til baka frá brún hengiflugsins. Við samningaborðið kom í ljós að bæði við og Vesturlönd höfum ekki aðeins sérstaka þjóðarhagsmuni heldur einnig sameiginlega hagsmuni. Sameiginlegri yfirlýsingu leiðtogafundarins í Genf árið 1985, þar sem því var lýst yfir að hvorki Sovétríkin né Bandaríkin myndu reyna að ná yfirhöndinni á hernaðarsviðinu, var fylgt eftir með hverjum samningnum á fætur öðrum um fækkun langdrægra, meðaldrægra og skammdrægra kjarnorkuvopna. Bandaríkin hurfu hins vegar frá þessari stefnu með þjóðaröryggisáætlun sinni, sem samþykkt var árið 2002: Bandaríkin vilja nú hafa hernaðarlega yfirburði yfir öllum pólitískum andstæðingum sínum. Sú áætlun er jafnframt staðfesting á þeirri ofursýn sem Bandaríkjamenn hafa á eigin öryggishags- muni, studd af einhliða stefnu þeirra, fyrir- byggjandi árásum og þeirri lítilsvirðingu sem þau sýna afvopnunarsamningum. Hvers vegna skyldi þurfa gjörvallan vopna- forða Bandaríkjanna til þess að berjast gegn hryðjuverkamönnum, allt upp í sérútbúin langdræg flugskeyti? Hvers vegna að svara þeirri flugskeytaógn, sem enn stafar aðeins hugsanlega frá Íran, með eldflaugavarnar- kerfum í Póllandi og Tékklandi? Og jafnvel þótt þeim áformum sé hraðað áfram án þess að skeyta neitt um vilja meirihluta íbúa þess- ara landa, eins og greinilega sést á öllum nýlegum skoðanakönnunum, þá hafa lekið út upplýsingar um að Bandaríkin ætli sér að beita hervaldi gegn Íran fyrir árslok 2008. Hér er að verki þetta sama pólitíska heyrnarleysi og óforskammaða tillitsleysi gagnvart almenningsálitinu sem leiddi til hörmunganna sem enn sér ekki fyrir endann á í Írak. Samt ætti öllum að vera ljóst að hér er fleira í húfi en samskipti Bandaríkjanna við Rússland eða Íran. Önnur ríki, svo sem Kína, Indland, Brasilía og Suður-Afríka, fylgjast með og draga sínar eigin ályktanir. Utanríkis- og varnarstefna þessara upprennandi valda- miðstöðva mun tvímælalaust taka mið af því hvort Bandaríkin halda áfram einstefnu sinni eða hvort þau kjósa fjölhliða samvinnu þegar þau takast á við þau vandamál og verkefni sem við blasa í heiminum um þessar mundir. Rökfræðin á bak við landsvæðapólitísk stríðsátök okkar daga skeytir engu um það hve hinn raunverulegi heimur er margbrotinn og að það getur leitt af sér nýja stigmögnun slysfara. Stjórnmál í anda Machiavellis í bland við valdhroka er það síðasta sem við þurfum á að halda á 21. öld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.