Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 36
Ford Escape hefur fengið nýtt
útlit og bætta eiginleika á ýms-
um sviðum.
Um leið og sest er inn í Ford
Escape-sportjeppann finnur
maður fyrir einhvers konar ró og
friði. Þægileg sætin lagast vel að
líkamanum, rúmt fótapláss gefur
góða tilfinningu og ekki sakar að
geta rafstillt bílstjórasætið.
Byrjað var að selja nýju útgáf-
una af Ford Escape í vor og hafa
orðið töluverðar breytingar á bíln-
um frá fyrri útgáfum, bæði innan
og utan dyra. Peppað hefur verið
upp á ytra útlit og má þar meðal
annars nefna grillið sem er nokk-
uð týpískt fyrir Ford þessa dag-
ana, töff og karlmannlegt.
Af breytingum inni í bílnum má
til dæmis nefna stöðugleikastýr-
ingu, veltivörn, tengi fyrir iPod og
MP3-spilara, loftpúðatjöld í hlið-
arrúðum að framan og aftan, loft-
þrýstingsmæli í hjólbörðum, dag-
ljós og geymsluhólf í gólfi
farangursrýmis.
Ekið var sjálfskiptum Escape
XLT með þriggja lítra bensínvél
sem skilar 200 hestöflum og 261
Nm togi. XLT-útgáfan hefur nokk-
uð fram yfir XLS-gerðina. Meðal
annars fylgir bílnum skriðstillir,
litað gler í afturrúðum sem gerir
bílinn vissulega nokkuð töffara-
legan og aksturstölva með áttavita
og útihitamæli. Talnalás á bíl-
stjórahurð er sniðugur fyrir veiði-
menn og aðra þá sem eru hræddir
við að týna bíllyklum á versta
tíma.
Ekki er hægt að kvarta undan
kraftinum. Bíllinn vinnur mjög
vel úr hestöflunum 200 og sjálf-
skiptingin er mjúk og skiptir
áreynslulaust milli gíra. Í beygj-
um liggur hann vel og ítrekaðar
tilraunir til að spóla urðu að engu.
Skiptir þar líklega mestu tölvu-
stýrt fjórhjóladrifið.
Í heildina er Ford Escape því til-
valinn fjölskyldubíll og frábær í
ferðalagið, ef frá er talinn einn
mikilvægur ókostur. 200 hestafla
bensínbíl er ekki hægt að kalla
sparneytinn enda er uppgefin
eyðsla Escape 11,2 í blönduðum
akstri.
Kraftmikill sportjeppi
Aflaðu þér nánari upplýsinga
Kíktu á netið: www.grillo.is
Veldu Grillo PK1000
Hjá DeDion færðu breiða línu sláttuvéla og burðarvagna á beltum
og hjólum. frá hinum þekkta smávélaframleiðanda Grillo á Ítalíu.
Auðveldaðu þér verkið. Auktu á hagkvæmni í rekstri
með Grillo vinnuvélum.
DeDion | Draupnisgötu 7L | 603 Akureyri
Sími 462 6900 | dedion@dedion.is | www.dedion.is
Smávélar & Þjónusta
2.160.000 kr. án vsk.www.grillo.is
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is