Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 44
hús&heimili
VEGGMYNDIR Surface View er breskt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í stækkunum ljósmynda og málverka til að
líma á veggi. Hægt er að velja úr verkum frá Victoria og
Albert-safninu, eftir Wayne Hemingway, Nic Miller og
fleiri. Viðskipta-
vinurinn ákvarðar
stærð myndanna
og getur valið úr
nokkrum gerðum
pappírs. Allar upp-
lýsingar um vegg-
myndirnar má finna
á vefsíðu fyrirtæk-
isins, http://www.
surfaceview.co.uk./,
þar sem kaupin fara
jafnframt fram.
Forsíðumynd: Anton Brink tók myndina á heimili
Valgerðar Ólafsdóttur og Jóhönnu Ríkeyjar Sigurðardóttur
á Grettisgötu. Útgáfufélag: 365 - miðlar ehf., Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir
solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@
frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta
Bjartmarsdóttir s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnars-
dóttir kristina@frettabladid.is.
á veggi
„Mér þykir auðvitað mjög vænt
um húsgögnin mín líka. Í stáss-
stofunni stendur skápur af verk-
stæðinu hans pabba, sem þætti
ekkert stofustáss sem slíkur, en
mér þykir dásamlegur. Ég hrífst
mest af antík með sál og sögu,“
segir listakonan og leiðbeinandinn
Fanný Jónmundsdóttir þar sem
hún stendur hjá eftirlætis „mublu“
heimilisins, rósum prýddri stokk-
rós (Alcea rosea) sem slæst við
regn og vinda í viðleitni sinni til
að halda í sumarið.
„Garðurinn er framlenging á
heimilinu og bjargar minni sálar-
heill. Þar vinn ég í mósaíki með
dagsbirtuna sem hjálparhellu, hef
gullfiska í tjörninni fyrir barna-
börnin og rækta rósir af öllum
gerðum,“ segir Fanný, en stokk-
rósin kom til Íslands sem græðl-
ingur í tösku Fannýjar.
„Ég heillaðist af fegurð stokk-
rósa þegar ég sá þær fyrst á ungl-
ingsárunum þar sem ég var au-
pair fyrir íslenska fjölskyldu í
danska smábænum Bragör. Blóm
hennar eru drapplituð, ljósbleik,
fölbleik eða hvít, og standa langt
fram á haust. Í Bragör einkenn-
ist byggð af gömlum húsum og
villum, og stokkrós vex villt milli
húsa. Það var því ánægjulegt
þegar sonur minn keypti sér hús
í Bragör, þar sem ég tók afleggj-
ara fyrir fjórum árum,“ segir
Fanný sem uppskar mikið blóma-
haf ári síðar, en stokkrós verður
yfir tveggja metra há.
„Og þá blómstraði hún rauð-
vínsrauðum rósum! Það var afar
óvænt, en reynist vera vegna þess
hve jarðvegurinn hér er súr í sam-
anburði við basískan jarðveg Dan-
merkur,“ segir Fanný sem á heim-
ilinu lifir með blómum ömmu sinn-
ar og annarra ástvina, sem sum
eru komin á fimmtugsaldur.
„Blóm eru lífverur sem lifa með
manni. Þau þarf að spyrja hvar þau
vilja vera því þeim er ekki sama
með hverjum þau standa og alls
ekki alltaf vinir,“ segir hún hlæj-
andi og þarf að hraða sér í Ráðhús-
ið þar sem hún sýnir Maríumyndir
úr mósaík á samsýningunni Hand-
verk og hönnun sem stendur yfir
til mánudagskvölds.
„Ég hef alltaf verið trúuð og
finnst gott að biðja til Maríu, en
myndir af Maríu geri ég bæði
sem listaverk og á legsteina. Ég
verð með Maríubænabók á sýn-
ingunni þar sem fólk getur skrifað
nafn sitt og farið með bæn í leið-
inni. Það verður minn brjóstsykur
fyrir gestina sem vonandi verða
sem flestir.“ thordis@frettabladid.is
Bæn í stað brjóstsykurs
Blóm eru eins og hvað annað heimilisfólk, en líka stáss sem skreyta heimilin. Lifa með
manni, vaxa, dafna og gleðja. Fanný Jónmundsdóttir er meira fyrir lifandi „mublur“.
Fögur eins og rós
stendur Fanný
Jónmundsdóttir,
leiðbeinandi og lista-
kona, hjá eftirlætis
heimilisprýði sinni,
blómstrandi stokkrós
frá Bragör.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
6. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR2