Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 74
kl. 17
Söngsveitin Fílharmónía ásamt
Þjóðlagasveit Hauks Gröndal og
söngkonunni Ragnheiði Gröndal
leika klezmertónlist í Seltjarnar-
neskirkju í dag kl. 17.
Tónleikarnir verða svo endur-
teknir á morgun kl.17. Stjórnandi
tónleikanna er Magnús Ragnars-
son.
Í kynningum á dagskrá
Borgarleikhússins í haust
vakti nokkra athygli að
tveir gestaflokkar munu
á komandi vetri sýna þar
rómaðar sýningar frá
liðnum árum.
Miðasala er hafin á þá fyrri,
gestaleik frá Volksbuhne í Berlín.
Verkið og leikstjórinn eru ekki af
síðri endanum en Frank Castorf
er einn af virtustu leikstjórum í
Evrópu í dag. Verkið sem sýnt
verður er Endastöð Ameríka og
er túlkun Castorfs á leikriti
Tennesee Williams Sporvagninn
Girnd. Aðeins tvær sýningar
verða á verkinu, föstudaginn 26.
og laugardaginn 27. október.
Miðasala er hafin.
Sýningin er samstarfsverkefni
Volksbuhne í Berlín og Salzburg
Festspiel og var frumsýnd árið
2000. Sýningin hlaut kröftugar
móttökur við frumsýningu og
eftir að hafa sýnt í Salzburg og
Berlín hefur sýningin farið í leik-
ferð um heiminn og er nú komin
til Íslands.
Frank Castorf ólst upp í Austur-
Berlín og menntaði sig þar. Að
námi loknu var hann leikhússtjóri
á landsbyggðinni þar sem hann
mótaði sínar aðferðir, varð
snemma pólitískur og lenti upp á
kant við stjórnvöld Austur-Þýska-
lands. Hann tók við leikhússtjórn
Volksbühne am Rosa-Luxem-
bourg-Platz, Alþýðuleikhússins í
Berlín, árið 1992 og gerði leikhús
sitt að heimili fyrir framsæknar
sýningar með ríkri tilvísun til
yngri áhorfenda.
Castorf er óhræddur og ögrandi
í listsköpun sinni og hikar ekki
við að sviðsetja stór verk leikbók-
menntanna og bókmenntasögunn-
ar. Hann beitir póstmódernískum
aðferðum í meðferð sinni á leik-
bókmenntum, afbyggir verkin,
eins og það er kallað á máli
menntamanna síðustu áratuga,
það er hann rífur þau í tætlur og
skeytir saman á ný eftir eigin
hugmyndum um byggingu Hann
vílar ekki fyrir sér að nota
aðferðir margmiðlunar; mynda-
vélar, míkrafóna og stóra skjái og
skerma til að magna upp það sem
fram fer á sviðinu. Í Endastöð
Ameríka beitir hann þessum
aðferðum. Hann fer frjálslega
með verk Tennesee Williams,
brýtur upp byggingu verksins,
skeytir inn dægurlögum eftir
Britney Spears og Lou Reed,
varpar upp upprunalegum texta
Tennessee Williams og mundar
myndavélar og skjávarpa, en
hann er samt trúr inntaki verks-
ins sem heldur sínum beitta
boðskap sem styrkist frekar með
tilvísunum úr samtímanum.
Sporvagninn Girnd gerist í
kreppu eftirstríðsáranna í Amer-
íku. Verkið var frumflutt 1947 og
hefur af mörgum verið talið eitt
af bestu leikverkum síðustu aldar.
Samnefnd Hollywood-kvikmynd
með Marlon Brando og Vivian
Leigh í aðalhlutverkum er eflaust
mörgum minnistæð en hún skaut
þessum leikurum upp á stjörnu-
himininn. Hér á landi hefur verkið
komið á svið í tvígang. Þá hefur
það sést nokkrum sinnum í sjón-
varpsgerðum og einnig hefur
André Previn samið óperu eftir
verkinu.
Verkið segir frá kennslukon-
unni Blanche Dubios sem kemur í
heimsókn til þungaðrar systur
sinnar og eiginmanns hennnar,
Stanley Kowalski, pólsks innflytj-
enda. Blanche hefur flúið veru-
leika sinn inn í heim tálsýna og
lygi og þegar heimsókn hennar
dregst á langinn lendir henni
saman við Stanley, sem berst við
að halda karlmannlegri reisn sína
í samfélagi þar sem hann er upp á
kant, en í baráttu sinni afhjúpar
hann þess í stað dýrið í sjálfum
sér. Verk Castorfs er um baráttu
fólks í kreppu og veltir upp spurn-
ingunni um hversu mikilli
afneitun er nauðsynlegt að beita
til að lifa af?
Áhugamannafélögin eru með hó í
dag í Borgarleikhúsinu. Stutt-
verkahátíð Bandalags íslenskra
leikfélaga, Margt smátt, verður
þar haldin í fjórða sinn í dag kl.
14. Í þetta skiptið sýna sex leik-
félög alls 15 þætti og eru það allt
ný íslensk verk, samin af fólki í
leikfélögunum sjálfum.
Það eru Freyvangsleikhúsið,
Halaleikhópurinn, Hugleikur,
Leikfélag Kópavogs, Leikfélag
Mosfellssveitar og Leikfélagið
Sýnir sem taka þátt í Mörgu smáu
þetta árið og fer hátíðin fram á
Litla sviðinu.
Þetta er í fjórða skipti sem
Bandalag íslenskra leikfélaga og
Borgarleikhúsið halda þess hátíð
saman og endurspeglar hún hið
merka starf sem fer fram í ritun
stuttra leikverka innan raða
íslensku áhugaleikhúsanna. Má
segja að þar fari fram brautryðj-
endastarf á því sviði og hefur
orðið gífurleg aukning í uppsetn-
ingu slíkra verka hjá aðildar-
félögum Bandalagsins á undan-
förnum áratug.
Hér eru á ferðinni höfundar á
borð við Hjálmar Arinbjarnarson,
Hjólastólasveitina, Hrefnu Frið-
riksdóttur, Sigurð H. Pálsson,
Þórunni Guðmundsdóttur, Unni
Guttormsdóttur, Júlíu Hannam,
Árna Friðriksson, Bjarna Bald-
vinsson, Agnesi Þorkelsdóttur
Wild, Sigrúnu Harðardóttur, Hörð
Skúla Daníelsson og Hrund Ólafs-
dóttur með leikhóp sínum.
Áhugamenn
með einþáttunga
100 ára afmæli stórsöngvara
Eva Þyri Hilmarsdóttir heldur
tónleika í Fella- og Hólakirkju í
dag kl. 17. Á efnisskrá eru verk
eftir Beethoven, Chopin,
Granados og Prokofiev.
Eva hóf píanónám ellefu ára
gömul hjá Þorsteini Gauta Sig-
urðssyni. Hún stundaði nám við
Nýja Tónlistarskólann og síðar
Tónlistarskólann í Reykjavík, en
þaðan lauk hún píanókennaraprófi
og síðan burtfararprófi undir
handleiðslu Halldórs Haraldssonar
árið 2001. Frá árinu 2002 hefur
hún stundað nám við Det Jyske
Musikkonservatorium í Árósum í
Danmörku hjá prof. John Dam-
gaard, þar sem hún hefur lokið
mastersnámi og er um þessar
mundir að ljúka þaðan einleikara-
prófi.
Hún leggur jafnframt mikla
áherslu á kammermúsík og er
eftirsóttur meðleikari söngvara.
Eva Þyri hefur komið fram sem
einleikari með hljómsveitum,
frumflutt fjölda verka og kemur
reglulega fram með hljómsveitum
og kammersveitum af ýmsum
stærðargráðum.
Hún hefur haldið tónleika á
Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi, Frakklandi, Portúgal
og Rússlandi.
Þessa efnisskrá, sem hér er
flutt, hefur hún nýlega flutt á
Akranesi og Selfossi, í sal Sívala-
turnsins í Kaupmannahöfn og í
Tónlistarhúsinu í Árósum.
Píanóleikur í Fella- og Hólakirkju