Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 76

Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 76
Atlaga að jólatuggum, lummum og klisjum. Húmorinn svo svartur að hann greinist varla, háðið djúpt en beitt, sjónarhornið nýstárlegt, afhjúpunin ögrandi, ljóðin svolítið fráhrindandi og óyfirstíganleg við fyrstu sýn en sækja á við stífan lestur. Víða flugskörp smíði með frumlegu og persónulegu (kvenlegu) myndmáli, skynvillum, hráslaga og margvísandi táknum ... „inn gengur óskráður sonur“ (13), gull í rauðri buddu sem bítur (8), hljóðnað almætti (10), gólandi sléttuúlfar (37) og fleiri fuglar, vængstýfing (17), hakkavél (15), jól í ósköpum náttúrunnar og ljóðagerð sem fangar þann umsnúning, skrælir slepjuna af. „Í pakkanum er ég“ (51). Ljóðmælandinn, sem er kona og skáld, hringir öllum gömlu jólabjöllunum, hristir pakkann, gjöfina, snjóinn, tréð, barnið, sveininn, guðspjallið, englana, álfinn, ljósið, helgina, heiðnina, kjólinn, köttinn, sokkinn, jafnvel baksturinn, en „spinnur öllu í hringi ... dregur í öfuga átt“ (27) með náttúrukrafti himnahverf- ingarinnar að vopni, „sporar út sykurhvíta jólakökuna“ (7) og bendir á sporin, hamflettir sak- lausa rjúpu á hvítum jólum og fleygir henni blóðugri út í hund- heiðna fönn. Náttúran er öðrum þræði skepnuskapur, gredda, „ímynduð vissa um yfirvegun“ (46). Seiður skáldkonunnar vekur upp spurningar um manneðlið (sem líka er mikið jólaspursmál) og náttúruna sem kynhvöt (sem er forsenda allrar sköpunar) með vangaveltum um tvíeðli manns og náttúru, daður við íslenskar andrógýnur, „góð, góður, góð, góður, eitthvað þarna á milli“ (11), tvíkyneðlið, náttúruna í manninum, innri togstreitu nátt- úrunnar, tvöfeldni hennar; sköp, eðli og náttúra eiga sér ljóslifandi andhverfu í þessum jólaljóðum með bókstaflegum öfugum for- merkjum; ósköp, óeðli, ónáttúra. Eðlileg átök andstæðra krafta. Álfurinn „þefar af sokkabuxunum þínum“ í skjóli nætur (43), jóla- sveinninn „fer með börnin upp í fjöllin og klæðir þau úr“ (21), kött- urinn eltir pilslausar telpur í stanslausum ófriði uns „stóra stundin rennur upp“ (9). Engar grýlur, en alvöru sveinar, oj. Jólin í uppnámi af náttúrulegum sökum ónáttúrunnar. Hryllilega raunsæ jól. Kortagoðsögnin snjóuð í kaf. Tilvistin, tilgangurinn, tíminn, upphafið og dauðinn eru klassískir jólasálmar og óma víða í Jólaljóðum – með sínu lagi; „munurinn á stofufangelsi og frjálsu lífi“ (45) er að hvorugt er raunverulegt, hvort tveggja er ímyndun, blekking, eftiröpun á list. Veruleikinn er í „ylhýrri stofu“ á blaðsíðunni á móti (44) þar sem þrír nafntogaðir íslensk- ir myndlistarmenn (karlar) sitja fyrir naktir „í stellingum“, þrí- einir og varnarlausir eins og ræningjarnir og frelsarinn á efsta degi og konurnar „horfa grannt á“ þegar móðir náttúra rennir sér fyrirvaralaust blaut og köld „niður af himnafesting- unni“ og færir þá alla á kaf í heiðna mjöll. Skáldkonan fylgir þessu eftir til loka; „allt var áður. En hlífðu mér ekki við endur- tekningunni“ (46), „geimverurn- ar“ í „heimi náttúrunnar“ eru (í raun og veru), „hláturinn faldi veggina“ (22) en englarnir eru fallnir, „grundin“ (17) lét undan. Ef vill. Það er ekki auðfundið „sam- hengi tilverunnar“ (14) í þessari bók, skin og skúrir, gull og svepp- ir á víxl í kynjaskógi. En kvikindið í náttúrunni er þar mjög raun- verulegt. Kvikindi í náttúrunni Boðið verður upp á leiðsögn um sýningu á kínverskum forn- minjum og fágætum listmunum í Gerðarsafni nú um helgina. Hjörleifur Sveinbjörnsson sér um leiðsögn í dag og dr. Geir Sigurðsson á morgun. Leiðsögn- in hefst klukkan þrjú báða dagana. Sýningin í Gerðarsafni kemur frá borgarlistasafninu í Wuhan í Hubei-héraði. Alls eru sýndir 107 gripir, margir hverjir æva- fornir, en sýningin bregður ljósi á helstu tímabilin í sögu Kína allt aftur til 31. aldar fyrir Krist. Ekki er vitað til þess að svo gamlir listmunir hafi áður komið til landsins. Meðal sýningargripa í Gerðar- safni eru munir úr bronsi og jaði, en þessi efni skipa svipaðan heiðursess í kínverskri list og gull og demantar gera í hinum vestræna heimi. Einnig eru sýndir munir úr leir og postulíni, til dæmis frá Ming-tímabilinu. Þá má líka sjá ýmsa skraut- muni útskorna úr bambus og gleri auk þess sem sýnd eru fágæt dæmi um lakklist og skrautskrift auk málverka á silki og pappír. Sýningin er sérhönnuð af Borgarsafninu í Wuhan og hafa munirnir aldrei áður verið sýndir utan Kína. Leiðsögn um kínverska menningu Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 ARIADNE eftir Richard Strauss Í kvöld 6. október kl. 20 örfá sæti laus Kynning Árna Heimis Ingólfssonar í boði VÍÓ kl. 19.15 3. sýn: Miðvikudaginn 10. október örfá sæti laus 4. sýn: Föstudaginn 12. október örfá sæti laus 5. sýn: Sunnudaginn 14. október örfá sæti laus Lokasýning: Föstudaginn 19. október örfá sæti laus á K r i ng l u k r ánn i E y j a s t uð í k v ö l d f r á V e s t m a n n a e y j u mLogar E i n e l s t a og mes t a r o k kh l j óms ve i t l a nd s i n s

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.