Fréttablaðið - 06.10.2007, Side 82
Hljómsveitirnar Bloodgroup og
Skátar leiða saman hesta sína
á tónleikum á Organ í kvöld kl.
22.00. Bloodgroup hefur nýverið
lagt lokahönd á sína fyrstu
breiðskífu, Sticky Situation,
sem kemur út í þessum mánuði.
Skátar sendu í vor frá sér breið-
skífuna Ghost of the Bollocks to
Come sem hefur fengið glimrandi
góða dóma í innlendum miðlum
sem og í erlendum.
Báðar sveitirnar gefa út ný
smáskífulög á næstunni. Annars
vegar gefur Bloodgroup út Try
On og hins vegar senda Skátar frá
sér lagið Taco N Surf a Prayer og
fá þau væntanlega að hljóma á
tónleikunum. Fjöllistamaðurinn
Auxpan treður einnig upp á
Organ.
Spila ný lög
Hljómsveitin Stuðmenn, ásamt
Bítlagæslumönnunum, halda tón-
leika á Nasa í kvöld í tilefni af
afhjúpun friðarsúlu Yoko Ono úti í
Viðey. Bítlagæslumennirnir Jónas
R. Jónsson og Gunnar Þórðarson
flytja nokkur vel valin lög frá
Liverpool. Sérstakur heiðursbítill
verður Valgeir Guðjónsson sem
flytur nokkur frumsamin lög í
bland við eldri smelli. Má búast
við því að nýtt lag Stuðmanna og
Valgeirs, Hvert á Ísland sem er, fá
einnig að hljóma.
Áður er tónleikarnir hefjast
verður kvikmyndin A Hard Days
Night sýnd á hvíta tjaldinu á
Nasa. Miðaverð er 1500 krónur.
Bítlavaka
Stuðmanna
Nýafstaðnar áheyrnarprufur
Benedikts Erlingssonar vegna
hlutverks suðræna sjarmörsins
Manolo í verkinu Sólarferð gengu
stórkostlega, að sögn leikstjórans.
„Við vorum sjörmuð í kaf,“ sagði
Benedikt, sem hefur þrengt hóp-
inn niður í þrjá. Hann segir minnst
tíu suðræna menn hafa mætt í
prufur, og á von á einum til
viðbótar sem flýgur sérstaklega
frá London til að reyna fyrir sér.
„Þeir voru eiginlega fullkomnir
á allan hátt. Það er ótrúlegt hvað
suðrænir karlmenn eru bara
sjarmerandi og gegnum gangandi
góðir leikarar, það kom mér mest
á óvart,“ sagði hann. „Og að sjá
þessa menn dansa… Ég skammast
mín bara fyrir að vera Skandínavi,“
bætti Benedikt við.
Hann segist helst óska þess að
hann gæti fyllt stóra svið Þjóðleik-
hússins af „fallegum, glænýjum,
suðrænum Íslendingum,“ og er
ekki frá því að reynslan geti af sér
eitthvað verkefni undir þeim for-
merkjum. „Annaðhvort geri ég
kvikmynd um þessa glænýju, suð-
rænu menn á þessu kalda landi,
eða að við setjum upp einhverja
stórkostlega samba-tangó-
chacha-flamingó sýningu á
stóra sviðinu og mönnum
hana með nýbúum,“ sagði
Benedikt. „Ég er bara
orðinn mjög hrifinn af
karlmönnum eftir
þetta,“ bætti hann við.
Sólarferð verður
frumsýnd á stóra
sviði Þjóðleikhússins
í janúar.
Isaac Hanson, meðlimur stráka-
sveitarinnar Hanson, þurfti
nýverið að gangast undir lungna-
aðgerð eftir að hafa fundið fyrir
verkjum í brjósti og öxl eftir
tónleika.
Aðgerðin gekk vel og telja lækn-
ar að hann muni ná sér að fullu.
Hanson þurfti að aflýsa nokkrum
tónleikum í Bandaríkjunum vegna
veikinda Isaac en sveitin vonast
til að fara aftur upp á svið strax á
mánudag. Vinsælasta lag Hanson
er MMMBop sem kom út árið
1997.
Hanson-bróðir í aðgerð
Sjarmörarnir slógu í gegn